Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Qupperneq 23
stjórnvöld og almenning, ef
breytingarnar komast ekki til skila.
Sjálfsagt er að beita hagkvæmni í
öllum rekstri, hvort sem það er í
ríkisrekstri eða öðrum rekstri.
Sérstaklega þegar farið er með
almannafé. En almenningur á rétt á að
honum séu veittar góðar og ítarlegar
upplýsingar um það sem hann á rétt á
samkvæmt landslögum, það má
sparnaður ekki koma í veg fyrir.
Við hjá upplýsingadeild
Tryggingastofnunar höfum gert okkur
far um að kynna réttinn til bóta sem
víðast. Með námskeiðahaldi,
blaðaskrifum og fyrirlestrum. í
dagskrárþáttum í útvarpi og sjónvarpi
höfum við notað hvert tækifæri til að
koma upplýsingum á framfæri.
Verkalýðsfélögin hafa verið dugleg
við að fá okkur til að kynna
almannatryggingarnar fyrir
trúnaðarmönnum sínum. Fagfélög
heilbrigðisstétta og félög aldraðra,
sjúkra og fatlaðra, skólar og ýmis
félagasamtök hafa fengið okkur til
fræðslufunda. En betur má ef duga
skal.
Draumur um upplýsta framtíð
Ég á mér draum í þessum efnum.
Draum um öfluga upplýsingadeild
með nægu starfsfólki til að rækja
hlutverk sitt. Draum um nýja
heildstæðaalmannatryggingalöggjöf,
þar sem enginn sem á henni þarf að
halda, verður útundan.
Löggjöf sem kynnt er í
skólakerfinu, svo menn þekki þann
rétt sem lögin veita. Kynningar við
allra hæfi, þar sem hinir fjölbreyttu
möguleikar tækninnar eru nýttir.
Kynningar á myndböndum, í sjónvarpi
og útvarpi, með fyrirlestrum og
fræðsluefni svo fatlaðir, hver svo sem
fötlun þeirra er, fái þær upplýsingar
sem þeim ber og geti notið þess réttar
sem lög landsins kveða á um í
velferðarkerfi okkar allra.
Ásta R. Jóhannesdóttir.
Um leið ogÁstu Ragnheiði erþakkað
framlagið er öllum sem á þurfa að
halda hent á að leita sér sem heztra
upplýsinga um rétt sinn refjalaust.
Útvarpsráð í önnum.
Árni Salomonsson nemi:
ÖRBYLGJAN
í vetur var bryddað upp á þeirri nýbreytni á tyllidögum Starfsþjálfunar
fatlaðra að opna útvarpsstöð. Þetta var útvarpsstöðin Örbylgjan FM 105,9 og var
hún starfrækt í þrjá daga. Tilgangur þessarar stöðvar var fyrst og fremst að hafa
gagn og gaman af en einnig að kynna skólann okkar, Öryrkjabandalag íslands og
fleiri málefni tengd okkur fötluðum.
Hugmyndina að rekstri stöðvarinnar átti Sigvaldi Búi Þórarinsson, nemandi
á fyrstu önn við skólann, og var hann einnig aðalhvatamaður þess að hugmyndin
varð að veruleika. Sigvaldi Búi var síðan skipaður útvarpsstjóri stöðvarinnar.
Hugmyndina að nafninu Örbylgjan átti Arnþór Helgason formaður
Öryrkjabandalags íslands. Við „Örbylgjumenn“ þökkum honum kærlega fyrir
frumlegt og gott nafn. Arnþór kom einnig í skemmtilegt og fróðlegt viðtal sem
var öllum til gagns og gleði sem á hlýddu.
Útvarpsstöðin var staðsett í húsakynnum Starfsþjálfunar fatlaðra á níundu
hæð í Hátúni 10A og er ekki annað hægt að segja en að þau hafi verið kjörin til
útvarpssendinga. Því miður höfum við heyrt þær raddir að sendir okkar hafi
truflað útvarps- og sjónvarpssendingar í húsunum lítillega og biðjum við þá íbúa
í Hátúni 10, 10A og 10B sem urðu fyrir óþægindum, afsökunar og þökkum þá
þolinmæði, sem þeir sýndu okkur.
Ýmislegt gekk á og mörg skemmtileg atvik áttu sér stað þessa þrjá daga. Þrátt
fyrir það voru þeir bæði lærdómsríkir og skemmtilegir. Til dæmis má segja frá
því atviki þegar einn af dagskrárgerðarmönnum stöðvarinnar tók viðtal við
fyiTverandi nemanda um ágæti danslistarinnar. Þegar viðtalinu var að ljúka fór
tæknidraugurinn að segja t il sín og kom í veg fyrir að tónlist færi í loftið. Á meðan
tæknimaður stöðvarinnar gerði sitt besta til að kveða niður tæknidrauginn, urðu
dagskrárgerðarmaðurinn og viðmælandi hans að blaðra frá sér allt vit svo það var
næstum því fyndið. Allt fór vel að lokum.
Einnig gerðist það í beinni útsendingu í viðtali við Helga Seljan að annar
dagskrárgerðarmaður stöðvarinnar „fraus“ og kom ekki upp orði (við nefnum
engin nöfn). Helgi Seljan er eins og allir vita gamall þingmaður og bjargaði þessu
listilega fyrir horn með mælsku sinni.
Þegar við sem stóðum í þessum útvarpsrekstri lítum til baka, stendur upp úr
sú virka þátttaka sem náðist meðal nemenda skólans meðan á rekstrinum stóð.
Allir stóðu saman um að gera þetta vel og skemmtilega.
Okkur fannst útvarpsreksturinn tengja skólann okkar við aðra starfsemi sem
fram fer í húsinu. Bæði kynntum við okkur í útvarpinu og tókum viðtöl til dæmis
við fólk á vinnustofunum.
Við vonum að þetta fyrsta útvarp úr Hátúnsblokkunum verði ekki það síðasta.
Við í Starfsþjálfun fatlaðra höfum fullan hug á að taka upp þráðinn að nýju síðar.
Einnig viljum við benda öðrum á þennan skemmtilega möguleika til að koma
málefnum sínum á framfæri. Fyrir hönd Örbylgjunnar
Árni Salomonsson.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS