Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Síða 25
Ragnhildur Sigurðardóttir þroskaþjálfi fyrsti umsjónarmaður stuðn-
ingsíbúða á vegum Svæðisstjórnar Reykjavíkur.
tveggja nýrra sambýla á vegum
Svæðisstjórnar Reykjavíkur. Annað
þeirra mun taka til starfa síðar á árinu,
en til þeirrar starfsemi var nýlega keypt
fokhelt hús í Grafarvoginum. Þar munu
búa 7 íbúar í tveimur fbúðum. Hitt
sambýlið á að byggja á næstu
mánuðum í Tindaseli, í Breiðholti, en
þegar þetta er ritað er verið að teikna
húsið. Þar munu búa 6 íbúar einnig í
tveimur íbúðum. Vonir standa til að
síðarnefnda sambýlið taki til starfa
fljótlega á næsta ári.
Heimili fyrir fötluð börn í
Reykjavík eru tvö, í Akurgerði og við
Holtaveg. Þriðja heimilið er nú í
augsýn, en lóð var úthlutað nýlega við
Árland í Fossvogi og er verið að teikna
húsið um þessar mundir.
Framkvæmdasjóður fatlaðra
fjármagnar framkvæmdir vegna
stofnkostnaðar sambýla en Hússjóður
Öryrkjabandalagsins hefur keypt tvö
húsogleigirSvæðisstjómReykjavíkur
þau fyrir starfrækslu sambýla.
Á sambýlum í Reykjavík eru að
meðaltali 6,30 stöðugildi á hverjum
stað og vinna starfsmenn á vöktum.
Um þessar mundir eru greidd laun
rúmlega 107 stöðugilda samtals, en
algengt er að starfsmenn vinni
hlutavinnu.
Þrátt fyrir fjölgun sambýla fyrir
fatlaða í Reykjavík á síðustu árum
lengjast biðlistar stöðugt. Urn 200
manns bíða eftir að fá aðstoð við búsetu
eða vistun, en hluti þeirra gæti búið í
íbúðum með stuðningi.
Stuðningsíbúðir
Undanfarna mánuði hefur Svæð-
isstjórn Reykjavíkur unnið að nýju
búsetuformi fyrir fatlaða, — búsetu í
íbúðum með stuðningi og leiðbein-
ingum, en ekki viðveru starfsmanna
eins og tíðkast hefur á sambýlum.
Markmið með stuðningi sérhæfðs
starfsfólks á vegum S væðisstjómar er
að styrkja félagslega stöðu hinna
fötluðu í samfélaginu og gera þeim
kleift að búa í fbúðum eins sjálfstætt
og fötlun þeirra leyfir.
Þó stuttur tími sé liðinn frá því að
fyrstu íbúarnirfluttu í stuðningsíbúðir
ávegumSvæðisstjórnar, ermikilvægi
þess að starfsmenn búi yfir fagþekk-
ingu og færni komið i ljós.
Vinnutími starfsmannaþarf í senn
að vera sveigjanlegur og afmarkaður,
vegna þess að verið er að sty ðja fólk til
sjálfshjálpar á heimilum sínum, með
„hjálp“, sem hvorki má vera of lítil
eða of mikil.
Geðfatlaðir
Fagþekkingu geðheilbrigðisstétta
þarf til að styðja geðfatlaða til búsetu
í íbúðum og nú er verið að leggja
fyrstu drög að því verkefni hjá
Svæðisstjórn Reykjavíkur. Það ergert
t.d. með beiðni um stöðugildi til
félagsmálaráðuneytisins til að
undirbúa þjónustuna, og einnig hefur
verið gert samkomulag við geðdeildir
um ráðgjafar- og geðlæknisþjónustu.
Starfsmenn þurfa að vera sérfróðir
á sviði fötlunar viðkomandi íbúa til að
geta sinnt þessu verkefni.
Fagþekking þroskaþjálfa nýtist t.d.
vel í stuðningi við þroskahefta, en mál
geðfatlaðra eru af öðrum toga.
Hingað til hafa mál geðfatlaðra
fallið undir heilbrigðismál eins og
kunnugt er. Stjórnvöld hafa nýlega
ákveðið að búsetumál þeirra heyri
undir svæðisstjómir.
Þroskaheftir
Svæðisstjórn Reykjavíkur hefur
ráðið tvo sjúkraþjálfa til þess að
aðstoða þroskahefta einstaklinga í
íbúðum.
Þroskaþjálfarnir veita nú þegar
nokkrum fyrrverandi íbúum af sam-
býlum stuðning í íbúðum og einnig
þeim sem flutt hafa beint úr heima-
húsum.
Aðstoð þessi er mjög fjölþætt.
Nefna má sem dæmi að stuðningur
vegna matarinnkaupa og meðferðar
fjármuna er mikilvægur.
Sama má segja um félagslega
þætti, fræðslu og beina aðstoð vegna
samskipta við ýmsar þjónustustofn-
anir, s.s. banka, Tryggingastofnun
ríkisins o.fL Síminn er mikið notaður
í þessu nýbyrjaða starfi.
Þörf íbúanna fyrir aðstoð og
stuðning við sjálfstæða búsetu er að
sjálfsögðu rnest í byrjun. Eftir
ákveðinn aðlögunartíma er þjón-
ustuþörf endurmetin og heimsóknir
skipulagðar að nýju í samvinnu við
íbúana.
Launagjöld starfsmanna íbúða eru
greidd af ríkinu, en heimilisrekstur
greiða fbúar af lífeyristekjum sfnum.
Ekki erreiknað með að starfsmenn
hafi viðveru í þessum íbúðum, en komi
í reglubundnar heimsóknir.
Stuðningur til búsetu
og heimaþjónusta
Margir hafa velt fyrir sér hver sé
munurinn á stuðningi starfsmanna á
vegum Svæðisstjórnar Reykjavíkur
annars vegar og heimaþjónustu
Félagsmálastofnunar Reykjavikur-
borgar hins vegar.
Því er til að svara að stuðningur
starfsmanna á vegum Svæðisstjórnar
er viðbótarþjónusta við almenna
heimaþjónustu á vegum borgarinnar.
Stuðningurinn er veittur vegna
sérþarfa fólks vegna fötlunar og er
þessi aðstoð veitt í náinni samvinnu
við Félagsmálastofnun Reykjavík-
urborgar, sem annast almenna
heimaþjónustu við fatlaða.
FRÉTTABRÉF ÖR YRKJABANDALA GSINS