Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 27
Lárus heldur á nýja mótinu, sem steypt var í vélinni á myndinni. Gunnsteinn
heldur á gamla trémótinu sem notað var um áratugi.
Vísbending Vigfúsar
Hjálpartæki Ferlimál
Nú voru skómir mátaðir, hringt í
Gunnstein og stefnumót ákveðið.
Þegar ég mætti aftur, var þar mættur
Lárus sonur Gunnsteins, sem tók
gipsmót af fæti mínum. Liðu nú 10
dagar þar til Gunnsteinn hringdi og
sagði: „Komdu,skómirerutilbúnir“.
Þegar ég hitti hann á Skóstofunni
Dunhaga 18, varð ég bæði undrandi
og glaður. Gunnsteinn var búinn að
smíða innriskó, svo að nú get ég
notað venjulega skó sem ytriskó.
Að geta skipt um skó er mikil
hamingja. Hér eftir get ég notað
inniskó, spariskó, sandala, íþróttaskó,
skóhlífar eða gúmmískó í bleytu
o.s.frv.
Eg varð allt í einu frjáls.
Innriskór geta komið fleirum að
gagni.
Kær kveðja,
Vigfús Gunnarsson.
Ef Fréttabréf Ö.B.Í. birti reglulega
greinar um hjálpartæki, gæti það
haft mikla þýðingu fyrir marga. Eg
vona að þessi grein verði upphafið
að öðru me i ra og upplýsingastreym i ð
verði greiðara milli notenda og
framleiðenda, því að nýjungar eru
alltaf að koma fram.
I fimmtíu og fimm ár hef ég notað
sérsmíðaða yfirskó vegna afleiðinga
lömunarveiki. Skömmu fyrir síðustu
páska var ég á gangi innarlega á
Hverfisgötu og nálgaðist gatnamótin
við Snorrabraut, þegar ég tók allt í
einu eftir húsi sem á stóð:
„Alhliða stoðtækjaþjónusta —
Sérsmíðaðir skór —Bamaskór —
Innlegg — Iþróttaskór —
V armahlífar—Spelkur—Láttu þér
líða vel — Skóstofan Össur“.
Allt í einu kviknaði á perunni.
Inn í búðina snaraðist ég, hitti á
framkvæmdastjórann, Örlyg Ó.
Oddgeirsson og spurði: „Get ég notað
íþróttaskó?“ „Örugglega“, svaraði
hann, náði í eina og sagði: „Ef þeir
passa ekki alveg, breytir hann
Gunnsteinn á Dunhaganum þeim í
hvelli. Hann er góður skóari og
smíðar fyrir okkur“. „Ha! Hvað
segirðu? Hann er líka skósmiðurinn
minn, sem fékk gömlu mótin frá
Steinari Waage til að smíða eftir,“
svaraði ég.
Innri skórinn fellur vel að fætinum og smýgur greiðlega niður í aðra skó.
Ðarn á vori
Þú gengur svo hratt á gróandans vit
með grænan ilmandi fald.
Þú horfir á bjartast sólgeisla glit
og gefur þig töfrum á vald.
Blómskrúðið angar og blær um kinn
blíðlega hvíslar: Vor.
Þú gengur í leiðslu Ijúfur minn.
Lyngið geymir þín spor.
H.S.
S
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS