Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 29
Hrynjandilist hreyfinganna.
munur verður á tjáningu og þeim sem
tjáir. Þannig er hægt að segja að
hrynjandilist sé algjörlega fædd af
hreyfingum líkamans. Hrynjandilist
er ætlað að sýna allt það sem tilheyrir
mannlegum skapnaði og samhengi
þess við alheiminn í kringum
okkur.Hrynjandi grundvallast á þeirn
skilningi, að tungumál sé tjáningarmáti
sálarinnar, að í sérhverju hljóði sem
kemur úr talfærum okkar sé falin
sálræn tjáning hugsana, tilfinningaog
vilja.
Sá sem leggur stund á hrynjandilist
verður að læra nákvæmlega eðli og
merkingu hvers hljóðs, sem fyrir okkur
flestum eru ómeðvituð, til að geta gert
það sýnilegt. Hann verður að skilja
innri grind málsins, og þau innri
lögmál, sem stjórna öllum
tungumálum, verða að vera honum
meðvituð. í þessum tilgangi hefur
Rudolf Steiner ákvarðað hverjum
bókstaf ákveðna hreyfingu, sem er í
raun sú hreyfing sem verður í talfærum
okkar við myndun stafa og orða.
Einnig hefur sérhvert hljóð ákveðna
eiginleika spennu og tilfinninga.
Eins og áður var sagt, er ákveðin
hreyfing fyrir hvern hljóðstaf, sem
svarar til þeirra hreyfinga sem myndast
í barkakýli og talfærum. Því má með
öðrum orðum segja, að hrynjandinsé
í raun eins og eitt stórt barkakýli og
hreyfing talfæra.
Samhljóðar og sérhljóðar hafa ekki
sama hlutverk því án sérhljóða
myndaðistengin hljómur. (I stafrófinu
er falin öll manneskjan).
Dæmi:
A undrun
B umlykjandi
C léttleiki
D að benda, útgeislun
E að verða fyrir einh verju og standa
það af sér
T mikill straumur að ofan og niður
F þú veist að ég veit
I er ítrekun sjálfsins
L yfirbugun efnis með formi
M að vera samþykkur
H blásandi andardráttarhljóð
U kalt og stíft
R rúllandi hringsnúandi
Æ hangandi eiginleiki
En af hverju er verið að rekja þetta
allt í einmitt þessu blaði. í örstuttu
máli skal komið inn á ástæðuna.
Hrynjandilist til lækninga
Víðs vegar um Evrópu eru þorp og
heimili fyrir þroskahefta þar sem
hrynjandilist er hluti af daglegri
meðferð. Út frá listforminu hrynj-
andilist þróaði Rudolf Steiner lækn-
ingameðferð sem hefur áhrif á andlega
líðan og einnig á líkamlega sjúkdóma.
Hrynjandilisterbeitt við lækningu
krabbameinssjúkra, annað hvort við
beina lækningu eða til að bæta andlega
líðan. Þróuð hefur verið meðferð við
augnsjúkdómum og sífellt er unnið að
áframhaldandi tilraunum til að bæta
heilsufar. Hrynjandilist er tilvalinn
lækningarmáti fyrir þá sem eiga erfitt
með að tjá sig með tali og einnig fyrir
þá sem eiga við líkamlega hömlun að
stríða. Hægt er að styrkja t.d. vinstri
spastíska hlið einstaklingsins með því
að æfa og styrkja hægri hliðina.
Með reglulegri æfingu er hægt að
efla og styrkja þroskahefta einstakl-
inga bæði andlega og líkamlega. Þeir
læra að umgangast og upplifa líkama
sinn á nýjan hátt og þeim eykst sjálfs-
traust við síendurteknar samræmandi
æfingar.
Reykjavík 30.4 1992,
Rósa Björg Helgadóttir.
Þögul tákn segja sitt.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS