Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 30

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Page 30
Arnþór Helgason form. Norræn atvinnu Dagana 5. og 6. maí var haldin ráðstefna um atvinnumál fatl- aðra. Ráðstefnan var haldin í Osló á vegum norrænu nefndarinnar um málefni fatlaðra og sóttu hana um 50 fulltrúar frá Norðurlöndunum. Mátti þar sjá fulltrúa frá tryggingastofnun- um, ráðuneytum, samtökum fatlaðra og vinnuveitendum. Héðan frá íslandi fóru 5 fulltrúar, Amþór Helgason, fulltrúi Öryrkjabandalags íslands, Birna Frímannsdóttir frá Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, Björk Páls- dóttir frá Tryggingastofnun ríkisins, Elísabet Guttormsdóttir frá Vinnu- miðlun Reykjavíkurborgar og Friðrik Sigurðsson frá Landssamtökunum Þroskahjálp. Hlutverk ráðstefnunnar var að veita mönnum yfirlit yfir stöðu mála á Norðurlöndunum og ræða leiðir til úrbóta. Dreift var skýrslum um þróun í atvinnumálum fatlaðra og flutt yfir- litserindi um þessi mál auk þess sem nokkrir fyrirlesarar brýndu menn til dáða á þessu sviði. Ráðstafanir yfirvalda á Norður- löndum og afstaða þeirra til atvinnu fatlaðra byggja á þeirri kenningu að hægt sé að leysa atvinnuvanda flestra með almennum úrræðum. Þá taka ráðstafanirnar nokkurt mið af þeirri staðreynd að mikið atvinnuley si hefur verið í þessum löndum og í Finnlandi hefur það farið vaxandi. A ráðstefnunni voru borin saman ákvæði í lögum landanna við önnur lönd svo sem Þýskaland og Banda- ríkin. Þjóðverjar hafa um nokkurt skeið búið við það fyrirkomulag að stórfyrirtæki eru skylduð til að taka ákveðinn fjölda fatlaðra í vinnu. Sé þessum ákvæðum ekki fullnægt greiða fyrirtækin sektir. Nokkur fyrirtæki hafa fremur valið að greiða þessar sektir en að taka fatlað fólk í vinnu. Þeir semfjölluðu um þennan þátt máls- ins lýstu allir andúð sinni á svoköll- uðum þvingunarákvæðum í lögum. ráðstefna um fatlaðra Arnþór Helgason. Norðurlandabúar hafa valið þann kost að styrkja atvinnufyrirtæki til þess að hafafatlað fólk í vinnu. Styrkir þessir eru með ýmsu móti. Vinnufram- lag hins fatlaða er mælt og fyrirtækinu greiddur styrkur til þess að hinn fatlaði geti náð lágmarkslaunum. Þá hefur aðstoð á vinnumarkaði verið tíðkuð. í Danmörku nemur hún allt að 20 klst á viku og hefur m.a. nýst mjög vel blindu eða sjónskertu fólki sem þarf á lesaðstoð að halda. Fram kom að þeir sem helst eiga undir högg að sækja á almennum vinnumarkaði eru hinir þroskaheftu. Þeim hefur hingað til verið vísað á verndaða vinnustaði og hefur lítið borið á þeim í vinnu hjá almennum fyrirtækjum. Nú hefur verið hafist handa við að finna þessu fólki störf á almennum vinnumarkaði og hefur víða komið í ljós að ýmis störf falla til sem henta mikið fötluðu fólki ágætlega vel. Fulltrúi danskra atvinnurekenda taldi að vinnuveitendur væru yfirleitt fúsir til að taka fatlaða einstaklinga í vinnu en gera þyrfti þeim grein fyrir þvf í hverju fötlunin væri fólgin og hver starfsgeta þeirra væri. Jafnframt taldi hann mikilvægt að hið opinbera styrkti fyrirtækin til þess að ráða fólk til starfa. Atvinnuleysi meðal fatlaðra á Norðurlöndunum hefur verið mikið. Norðurlandabúar hafa talið sig leysa þennan vanda með því að setja fjölda fólks á fyrirfram eftirlaun sem þýðir í raun að fjöldi ungs fólks er dæmdur til atvinnuley sis ævilangt. I umræðum á ráðstefnunni var þetta fyrirkomulag gagnrýnt og bent á að með þessu móti væru einstaklingarnir sviptir rétti sín- um til þess að láta sinn skerf af hendi rakna til hins almenna samfélags. Jafnframt var á það bent að með þessum hætti yrðu einstaklingarnir baggi á samfélaginu í stað þess að með vinnu sinni, hvort sem hún væri vernduð eður ei, yrði lagður grunnur að betri heilsu þessum einstaklingum til handa og þegar upp væri staðið hagnaðist samfélagið á vinnuframlagi þeirra í einni eða annarri mynd. Endurhæfing og menntun fatlaðra skiptir sköpum þegar um atvinnu er að ræða. Lögð var áhersla á að nauð- synlegt væri að samþætta starf hinna fjölmörgu sem að endurhæfingu starfa. Þannig yrði læknisfræðileg og félagsleg endurhæfing að haldast í hendur og á einhverju stigi yrði ein- hver að vera fær um að taka ákvörðun um það hvert stefna sky ldi með endur- hæfingu einstaklingsins. Aldrei yrði þó nægilega brýnt fyrir fólki að endur- hæfing mætti ekki miðast við þarfir stofnana heldur óskir og vilja hinna fötluðu. Svíar greindu frá merkilegu verkefni sem hrundið var af stað í Norður-S víþjóð fyrir nokkru. Það var kannað hvað hefði orðið um fólk sem notið hefði læknisfræðilegrar endurhæfingar eftir sjúkdóma eða slys. í ljós kom að flestir sem höfðu haldið til síns heima úti í strjálbýlinu að lokinni dvöl á sjúkrastofnun áttu að litlu að hverfa. Engar áætlanir höfðu verið gerðar um frekara fram- hald endurhæfingarinnar svo sem starfsmenntun eða félagslega aðlög-

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.