Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 32

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Side 32
Frosti F. Jóhannsson gigtlæknir gigtarár 1992 Norrænt Á sl. ári fól Norðurlandaráð nor- rænu ráðherranefndinni að halda norrænt gigtarár 1992. Gigtarfélag íslands — sem eru samtök áhugafólks um baráttu gegn gigtarsjúkdómum — hefur umsjón með gigtarárinu hér- lendis. Markmið Meginmarkmið norræna gigtar- ársins er í fyrsta lagi að vekja athygli á því hvað gigt er. hvaða áhrif hún hefur á fólk og samfélag og hversu algengur sjúkdómurinn er, en áætlað er að a.m.k. 50 þúsund Islendingar séu með gigt. I öðru lagi er markmiðið að gera gigtar- sjúklingum lífið bærilegra með því að efla forvarnir eins og líkamsþjálfun og rannsóknir. Það er álit vísindamanna að það hilli undir lausn gigtargátunnar ef gigtarrannsóknir verða verulega efldar. Áætlað er að það myndi spara þjóðarbúinu á bilinu 5 til 10 milljarða ef gigt yrði fyrirbyggð. Auk þess myndi stór hópur manna losna við ómældar þjáningar. Kynningarefni Fyrra markmiði norræna gigtar- ársins er ætlunin að ná með víðtækri fræðslu um gigt og hversu mikið vanda- mál gigtarsjúkdómar eru bæði heilsu- farslega og félagslega og hvernig má fyrirbyggjahana. Frá áramótum hefur verið unnið að því að koma fræðsluefni á framfæri og verður því haldið áfram fram að norræna gigtardeginum 19. september í haust. I stórum dráttum er staðið að því sem hér segir: V eggspj aldi (sj á mynd) hefur verið dreift vítt og breitt um landið þar sem kynntar eru ákveðnar staðreyndir um gigt. Birtareru vikulegafræðslugreinar í Morgunblaðinu og í Ríkisútvarpinu eru í gangi þættir sem byggðir eru á viðtölum við sjúklinga og fagfólk en þettatvennt hóf göngu sína í janúarlok og verður haldið áfram fram á sumarið. Gefið verður út sérstakt fræðslurit urn gigt í júní og í samvinnu við VISA Island var í marsmánuði sl. dreift kynningarbæklingi urn Gigtarfélagið. Tilgangur bæklingsins er að fjölga félögum og safna styrktaraðilum og reynaþannig að tryggjafélaginu stærri tekjustofn og trey sta betur rekstur þess. Frosti F. Jóhannsson. Lokið er gerð 20 mínútna fræðslu- myndar en jafnframt hafa verið klipptar þriggja mínútna myndir úr henni. Ætl- unin er að fá stuttmyndimar sýndar eins oft og kostur er í sjónvarpsstöðv- unum. Myndin skiptist í fjóra kafla. Fyrst er almenn kynning á gigt, þá eru tveir gigtarsjúkdómar kynntir, bein- þynning og iktsýki. Seinni hluti myndarinnar fjallar svo um forvarnir, annars vegar mikilvægi líkamsþjálf- unar og hins vegar gildi rannsókna. Það efni sem hingað til hefur verið sagt frá er einkum ætlað að höfða til hinna fullorðnu, bæði almennings og fagmanna. En það er einnig ætlunin að ná til yngri kynslóðarinnar. Þannig varð það að samkomulagi við Menntamálaráðuneytið að fram færi myndgerðarsamkeppni meðal 11 og 12 ára barna í grunnskólum landsins í mars og apríl og af því tilefni var tekið saman fræðsluefni fyrir þennan aldurshóp og sent til skólanna. Að síðustu verður reynt eftir því sem tími gefst til að senda ýmsum aðil- um bréf — m.a. ýmsum félagasamtök- um — um gigtarárið og halda málþing sem víðast. Forvarnir — hópþjálfun og rannsóknir Hitt meginmarkmiðið sem unnið verður að á norræna gigtarárinu ent forvarnir. Gigtarfélagið hefur í hyggju að skipuleggja hópþjálfun fyrir gigtarsjúklinga, m.a. leikfimi í sal sem yrði sérsniðin fyrir þá svo og þjálfun í upphitaðri sundlaug. Ætla má að stór hópur gigtarsjúklinga geti verulega bætt líðan sína ef þeim yrði boðið reglulega, allan ársins hring, upp á slíka þjálfun undir handleiðslu fagfólks. Hugmyndinumhópþjálfun erm.a. tilkomin vegna þess að ekki má gleyma líðandi stund. Rannsóknir, sem hafa það markmið að leysa gigtargátuna, eru vissulega verðugt verkefni og í þeim felst mikil fyrirhyggja. Hins vegar er ljóst að þó komið verði í veg fyrir gigt í náinni framtíð þá koma þeir sem nú þjást af henni sennilega ekki til með að njóta þess nema að litlu leyti. Hópþjálfun hefur lítinn kostnað í för með sér en með henni má sennilega spararíki og einkafyrirtækjum töluvert fé. Gigtarrannsóknir sem hafa það markmið að fyrirbyggja gigt eru hins vegar kostnaðarsamar. Aðstæður eru um margt taldar ákjósanlegar hérlendis til að stunda slíkar rannsóknir og alls ekki fráleitt að skerfur okkar til lausnar þeirrar gátu geti orðið verulegur. Þess vegna ætlar Gigtarfélagið að safna fé í sérstakan vísindasjóð á vegum félagsins á norræna gigtardaginn, þann 19. september n.k. og er ætlun- in að nota sjóðinn til að stórefla rannsóknir á gigt. Fjármögnun verkefna Ofannefnt kynningarstarf hefur töluverðan kostnað í för með sér og því hefurGigtarfélagiðleitað til ýmissa aðila sem hafa skilning á mikilvægi þeirra verkefna sem félagið vinnur að. Fyrst er þess að geta að fjárveitinga- valdið veitti félaginu stuðning sem einkum er ætlaður til að mæta launa- kostnaði þeirra aðila sem vinna að framkvæmdum á gigtarárinu. I öðru lagi hefur félagið fengið ýmiss fyrir- tæki í lið með sér til að standa straum af kostnaði, þ.e. veggspjaldinu, fræðsluritinu, kvikmyndunum og dreifingu kynningarbæklings. Mest hafa þar lagt af mörkum Mjólkurdags- nefnd, Lýsi h.f., Sparisjóður Reykja- víkur og nágrennis og VISA ísland. Það fer ekki á milli mála að sá mál- staður sem GÍ vinnur að, nýtur skiln- ings og velvildar og er það þakkarvert. Frosti F. Jóhannsson.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.