Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 36

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Blaðsíða 36
Uthlutun Framkvæmdasjóðs fatlaðra Úthlutun úr Framkvæmdasjóði fatlaðra fór fram í kringum mánaðamótin marz—apríl af hálfu Stjórnarnefndar um málefni fatlaðra. Til úthlutunar voru samtals um 340 millj. kr. en til viðhaldsverkefna var skilin eftir upphæð — rúmar 60 millj. Um úthlutunina urðu miklar umræður eins og venjulega og sýndist sitt hverjum um einstakar upphæðir, einstök svæði og verkefni. Eitt mun nokkuð öruggt: Enginn mun alánægður með sitt hlutskipti og heldur ekki fulltrúar í Stjómarnefnd, sem ævinlega reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu fremur en gera ágreining um einstök atriði, vitandi vel að fenginni reynslu, að ráðherrar eiga síðasta orðið og um leið ákaflega mikinn íhlutunarrétt um úthlutun einkum auðvitað félagsmálaráðherra. Úthlutun einkennist auðvitað einnig mjög af því, hversu vel hefur til tekist um stöðugildi til rekstrar og sjaldan meir en nú einmitt af völdum þess mikla sparnaðar og niðurskurðar, sem nú eru í hávegum hæstir. Ugglaust mun landsbyggðarfólki þykja sinn hlutur rýr nú miðað við Reykjavík og Reykjanes, en milli ára hljóta alltaf að vera mismunandi áherzlur og litið til höfðatölureglunnar frægu mun máske ekki halla eins á landsbyggðina og tölur segja til um. En allar hugleiðingar nú þjóna litlum tilgangi og ekki er ritstjóri frekar en aðrir að firra sig ábyrgð á endanlegum tölum Hins vegar hefði hann viljað sjá öllu úthlutað um leið og lét bóka sérvizku sína í þeim efnum. Sömuleiðis er hann að sjálfsögðu misánægður með einstakar tölur, en það munum við örugglega vera öll sem að úthlutun stóðum. Hér koma svo tölurnar — svart á hvítu. 1) Sérverkefni félagsmálaráðuneytisins: Hólaberg 86.............................17.0 millj. Greiningar- og ráðgj.st................. 0.8 — Leikfangasöfn........................... 3.5 — Eldvarnir............................... 2.0 — Framlag í Glit.......................... 4.0 — Kannanir................................ 2.5 — 19. greinin............................. 1.5 — Starfsþjálfun fatlaðra.................. 2.0 — Atvinnumál einhverfra................... 0.8 — Úrræði fyrir geðfatlaða.................10.0 — 2) Sérverkefni menntamálaráðuneytis: Búnaður og tæki......................... 6.0 — 3) Reykjavíkursvæði: Sambýli Blindrafélags................... 4.5 — íþróttafélag fatlaðra................... 0.5 — Styrktarfél. vang. Lyngás............... 3.0 — Styrktarfél. vang. Þykkvibær 1 ......... 3.2 — Sambýlaskipti v. Njörvasund.............12.0 — Sambýli fjölfatlaðra.................... 8.0 — Sambýli óstaðsett.......................20.0 — Sambýli óstaðsett.......................20.0 — Heimili MS-félagsins.................... 5.0 — Heimili heilaskaðaðra Grensás..........11.0 — Safamýrarskóli: Lóð.................... 2.0 — Safamýrarskóli búnaður................. 1.5 — 4) Reykjanessvæði: Hæfingarstöð Suðumesjum................20.0 — Skammtímavistun Kópavogi...............20.0 — Sumardvalarheimili Þroskahj............ 2.0 — Lyfta í Hamraborg...................... 1.5 — Skálatún — hjálpartæki................. 0.3 — Örvi búnaður........................... 0.5 — Kópavogshæli — endurb.................. 9.5 — Reykjalundur........................... 3.0 — 5) Vesturland: Sambýli Borgarnesi.....................10.5 — 6) Vestfirðir: Þjónustuíbúðir Bolungarvík............. 1.8 — Húsnæði geðfatlaðra.................... 8.0 — 7) Norðurland vestra: Sambýli fyrir fjölfatlaða..............10.0 — Gauksmýri............................. 0.65 — Dagvist Siglufirði..................... 0.5 — Visth. f. fötluð börn: Sauðárkróki............................ 2.0 — Húnavöllum............................. 2.0 —ath. Sérkennslubúnaður...................... 1.2 — 8) Norðurland eystra: Framkvæmdir v. Sólborgar............... 8.5 — Plastiðjan Bjarg....................... 5.5 — Sambýli húsbún......................... 2.0 — Sambýli fjölf.......................... 2.0 — Húsb. f. atferlistrufl................. 0.3 — 9) Austurland: Þjálfunar- og ráðgjafarmiðstöð......... 7.5 — 10) Suðurland: Hús fyrir fjölfatl.....................10.0 — Lóð hæfingarstöðvar.................... 3.0 — ......................................Alls: 272.050 Eftir standa því rúmar 69 millj. til viðhaldsverkefna, sem úthlutað mun síðla í maí, ef að líkum lætur. Um þetta skulu ekki fleiri orð höfð nú, en á það bent enn einu sinni að allar þessar tölur eru fengnar með samkomulagi í lokin, þó öll myndum við hafa kosið að hafa ýmsar þeirra á annan veg. En þá hefðum við líka þurft að hafa ólfkt meira fé handa á milli s.s. raunar lög standa til, en aldrei hafa verið að fullu efnd. Það væri efni í aðra grein, sýnu lengri og ítarlegri. Ath. Þessar þrjár fjárveitingar munu ekki vera staðfestar af félagsmálaráðherra, enda óljóst um alla framkvæmd. H.S.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.