Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1992, Qupperneq 40
Gripið niður í glögga skýrslu
Skýrslur og fréttabréf einstakra
aðildarfélagaÖyrkjabandalagsins
berast gjarnan á borð ritstjóra og fær
hann af þeim fróðleik nokkum og oft
umtalsverðan.
Fyrirframan hann liggurnú skýrsla
frá stjóm Styrktarfélags vangefinna
og kennir þar margra mætra grasa.
Þar er í upphafi greint frá stjórn
félagsins, sem hélt 10 stjómarfundi á
árinu en auk þess héltframkvæmdaráð
félagsins 11 fundi, enda sízt vanþörf á
þeirri fundartíðni þegar fram kemur
að hve mörgu er hugað.
Hins vegar kemur í ljós
að starfsmenn á skrif-
stofu félagsins eru
áfram jafnmargir og
undanfarin ár þrátt fy rir
stóraukin umsvif
árlega. Geri aðrir betur.
En í stjóm nú eru:
Formaður: Magnús
Kristinsson, varafor-
maður: Hafliði Hjart-
arson, gjaldkeri:
Gunnlaug Emilsdóttir,
ritari: PéturHaraldsson
og meðstjórnendur:
Davíð Kr. Jensson,
Hörður Sigþórsson og
Magnús Lárusson.
Augljóst er af skýrslunni að félagið
nýtur mikillar velvildar margra, m.a.
er það glöggt af mörgum góðum
gjöfum til félagsins. Það kemur einnig
fram að fjölmargir einstaklingar sem
hópar hafa fengið styrki frá félaginu
aðallega til að afla sér aukinnar þekk-
ingar erlendis eða kynnast viðhorfum
annarra þjóða og sams konar samtaka
ytra á ýmsan veg. Meðal styrkþega
eru Perlan — leikhópurinn og Ösp —
íþróttafélagið, en hvoru tveggja
félögin hafa gert garðinn frægan.
í skýrslunni er ítarleg greinargerð
um hinar einstöku stofnanir Styrkt-
arfélagsins, en þar er af ærinni gnótt
að taka. Fyrst skal telja vinnustofuna
Ás, sem starfrækt hefur verið í 10 ár.
Þar voru að jafnaði 38 einstaklingar í
27 heilum stöðum og námu launa-
greiðslur til þeirra nálægt 6 millj. kr.
Þá er það Bjarkarás þar sem vistaðir
eru nú 48 einstaklingar. Bjarkarás átti
einmitt 20 ára afmæli 18. nóv. sl. og
varþessminnztmeðveglegriafmælis-
hátíð, sem um 300 manns sóttu. Næst
er svo um Lækjarás getið en þar eru
nú 34einstaklingar. Greinterm.a. frá
því að sjúkraþjálfun hafi færzt alfarið
inn á stofnunina og ráðinn hafi verið
endurhæfingarlæknir á staðinn.
Lækjarás varð 10 ára á árinu og 100
manna afmælisveizla haldin. Þar
bar hæst gjöf vistmanna og einna
foreldra, en vistmenn gáfu heimilinu
34 tré, sem gróðursett voru af for-
eldrum sunnan við húsið þar sem fjöldi
annarra trjáa gefnum af Mörtu og
Pétri í Mörk hefur verið valinn staður.
Enn kemur svo afmælishátíð en
Lyngásheimiliðátti 30áraafmælisem
haldið var veglega upp á í sól og sum-
aryl, þar sem gestir voru um 100.
Bömin í Lyngási eru 46 á aldrinum
tveggja til tuttugu ára og biðl isti er því
miður þar á bæ. Aldrei hafa fleiri
heimsóknir góðra gesta verið á
heimilið en í fyrra.
Barnaheimilið Lækur, sem nú
heitir leikskólinn Lækur hefur starfað
farsællega í tvö og hálft ár. Þar eru nú
16 börn, 9 stúlkur og 7 drengir.
Svo eru sambýlin talin upp hvert
af öðru: Víðhlíð 11, Háteigsvegur 6,
Sigluvogur 5, Blesugróf 29,
Auðarstræti 15, Víðhlíð 5 og 7 og svo
skammtímavistanir í Blesugróf 31 og
Víðihlíð 9. Alls staðar er á glöggan
háttgreintfrástarfsemihversheimilis
og helztu viðburðum þar á árinu.
Umhyggja, hlýja og jafnréttiskennd
einkenna alla þessa skýrslugerð mjög
rækilega.
í kafla um fbúðir segir svo orðrétt:
„Við upphaf ársins 1992 eru 16
verndaðar íbúðir á vegum Styrktar-
félags vangefinna og hefur þeim íbúð-
um, sem eru í umsjá félagsins fjölgað
um þrjár á árinu. Félagið á sjö íbúðir,
sex eru í eigu íbúanna sjálfra og
Öryrkjabandalagið á þrjár íbúðir. í
þessum fbúðum búanúna27einstakl-
ingar.“
Svo mörg voru þau orð og sýna
þau ásamt öðrum
tilvitnuðum hér að
fr aman hversu öfl-
ug starfsemin er.
Glöggtmásjáum-
fang starfsem-
innar á fjárlaga-
tölum, en 1992 er
Styrktarfélag van-
gefinna með
178,5 millj. undir
málaflokknum:
Málefni fatlaðra.
Að lokum kemur
svo bein tilvitnun
í skýrsluna frá
Bjarkarási þar
sem að nýjum
þætti í starfseminni er vikið svo:
„Skömmu fyrir afmælishátíðina
var tekin fyrsta skóflustunga að 200
ferm. gróðurhúsi við heimilið. Þeim
tilmælum hafði verið beint til gesta
að framlög til gróðurhússins væru vel
þegin í sambandi við afmælishátíðina.
Margar peningagjafir bárust þennan
dag og hafa fjölmargir velunnarar
heimilisins stutt þetta framtak.
Undirstöður hússins hafa verið steypt-
ar og búið er að semja við Límtré h.f.
um uppsetningu hússins og glerjun,
sem ljúka á nú í vor. Húsið er teiknað
á Teiknistofunni Óðinstorg sf. Með
tilkomu gróðurhúss við stofnunina
hefst nýr þáttur í starfsþjálfun vist-
manna, sem við hlökkum til að takast
á við.“
Það er margt gróðurhúsið og
fjölbreyttur gróðurinn sem hlúð er að
hjá Styrktarfélagi vangefinna.
Heill og farsæld fylgi þeim áfram
í öllu starfi.
H.S.