Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Qupperneq 6
staðið sig með stakri prýði. Nú væri
að snúa sér að vinnustöðum banda-
lagsins af fullum krafti, útvega þar ný
verkefni og auka við önnur. í smíðum
væri reglugerð fyrir vinnustaðina.
Vænti þess í lokin að unnt yrði sem
fyrst að flytja stjóm og framkvæmda-
ráði góðar fréttir af rekstri vinnu-
stofanna.
Þá flutti Guðrún Hannesdóttir
forstöðumaður skýrslu Starfsþjálfunar
fatlaðra og er hún birt hér í heild fólki
til fróðleiks um þessa farsælu starf-
semi.
á voru lagðir fram reikningar og
fylgdi Eyjólfur Guðmundsson
endurskoðandi þeim úr hlaði. Aðeins
skal tæpt hér á örfáum tölum fólki til
glöggvunar, en allir reikningar liggja
frammi á skrifstofunni, ef fólk vill
fræðast nánar.
Fyrst varþað Starfsþjálfunfatlaðra
en rekstrartekjur voru alls rúmar 8,6
milljónir kr. en rekstrargjöld rúmar
11.3 milljónir kr. Óreglulegar tekjur
voru hins vegar 3,8 milljónir kr. og
munaði þar mest um framlag Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra til tækjakaupa
upp á 2 milljónir kr. og styrk frá
Öryrkjabandalaginu að upphæð 1,1
milljón kr.
Vinnustofur bandalagsins skiluðu
samtals rekstrartekjum upp á tæpar
11.4 milljónir kr. Beinn launakostn-
aður var upp á 13,8 milljónir kr.
Rekstrartap varð samtals að
upphæð um 12,1 milljón kr., en síðan
kemur til styrkur frá Öryrkjabanda-
laginu að upphæð 1 milljón kr. og svo
framlag frá ríkinu upp á 5,6 milljónir
kr.
HjáHússjóði Öryrkjabandalagsins
eru tölur eðlilega allmiklu hærri.
Húsaleigutekjurerutæpar78milljónir
kr. en gjöld, fyrningar og annar kostn-
aður samtals um 75 milljónir kr. Hluti
Hússjóðs af lottóhagnaði eru tæpar
111 milljónir kr.
Til að sýna umfangið er svo rétt að
geta þess að fasteignir í rekstri og
smíðum námu um síðustu áramót
tæplega 1,3 milljarði kr. Rétt er þá um
leið að geta þess að skuldir vegna
húsnæðislánanemaum615 milljónum
kr.
Þá var komið að reikningum
Öryrkjabandalagsins en rétt að taka
fram að allir þessir reikningar eru
miðaðir við árið 1992.
Gigtarfélagsmenn ásamt fleiru góðu
Heildartekjur frá Islenzkri getspá
námu tæpum 149 milljónum kr. og
þar af var hlutur bandalagsins 48
milljónir kr.
Helztu gjöld eru þessi:
Rekstrargjöld námu samtals rúmum
14,3 milljónum kr., þar af eru laun og
launatengd gjöld tæpar 7,3 milljónir
kr. Styrkir til aðildarfélaga á árinu
námu samtals 4,25 milljónum kr. og
styrkir til annarra 6,8 milljónum kr.,
enhæstuliðirþareru:Framlög’91 og
’92 til Sjóðs Odds Ólafssonar 2
milljónir kr., framlag til Starfsþjálf-
unarfatlaðra 1,1 milljón kr., framlag
til vinnustofanna 1 milljón kr., til
samstarf sins við Þroskahj álp fóru 960
þúsund kr., til íþróttasambands fatl-
aðra400 þúsund kr. og til Bréfaskólans
300 þúsund kr.
Þá er að Fréttabréfinu komið en
það kostaði rúmar 4,2 milljónir kr. Þar
nemurprentunrúmum2,l milljónum
kr., pökkun og burðargjöld rúmum
1,2 milljónumkr., setning, umbrot og
frágangur 440 þúsundum og
hljóðsnældur fyrir blinda tæpum 330
þúsundum kr.
Allir þessir reikningar voru svo
bornir undir atkvæði fundarfólks og
þeireinrómasamþykktir. Síðasti liður
fyrir matarhlé var svo skýrsla sam-
vinnunefndar ÖBÍ. og Þroskahjálpar
sem Helgi Hróðmarsson flutti. Hann
hefur í síðasta Fréttabréfi gert hina
prýðilegustu grein fyrir þessu
umfangsmikla starfi, en þess aðeins
getið hér hverjir sátu í samvinnu-
nefndinni: Frá Þroskahjálp: Asta B.
Þorsteinsdóttir, Hörður Sigþórsson og
Svanfríður Larsen. Frá ÖBÍ.: Arnþór
Helgason, Hrafn Sæmundsson og Ólöf
Ríkarðsdóttir. Starfsmaður með sóma
og sann er Helgi Hróðmarsson.
Að loknum góðum hádegisverði í
boði bandalagsins var gengið til
kosninga.
Fundarstjóri kynnti tilnefningar
aðildarfélagannaístjóm bandalagsins
til næstu tveggja ára en skrá um nýja
stjóm er birt hér í Fréttabréfinu nú.
Þá gerði framsögumaður uppstill-
ingarnefndar, Jóna S veinsdóttir, grein
fyrir störfum nefndarinnar og tillögum
um fólk í framkvæmdaráð.
I framboði til formanns voru Ólöf
Ríkarðsdóttir og Arnþór Helgason.
Formaður var kjörinn: Ólöf Ríkarðs-
dóttir. Aðrir í framkvæmdastj óm voru
sjálfkjömir þar sem ekki komu aðrar
uppástungurenfráuppstillingamefnd:
Varaformaður: Haukur Þórðarson,
ritari: Þórey J. Ólafsdóttir, gjaldkeri:
Hafliði Hjartarson, meðstjómandi:
Hafdís Hannesdóttir. Til vara í
framkvæmdastjóm: Ólafur H. Sigur-
jónsson, Elísabet A Möller og Hrefna
Pétursdóttir. Endurskoðendur voru
kjörin þau: Vigfús Gunnarsson og
Helga Einarsdóttir. Að kosningum
loknum kvöddu nokkrir sér hljóðs,
árnuðu nýjum formanni allra heilla og
þökkuðu fráfarandi formanni mikið
og gott starf og ánægjulegt samstarf.
Nýkjörinn formaður þakkaði sér sýnt
traust og kvaðst hlakka til að starfa
með nýrri stjórn svo og starfsfólki. Þá