Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 7
urðu nokkur skoðanaskipti um hversu
æskileg stjórnunaraðild fagfólks væri
í samtökum fatlaðra og sýndist sitt
hverjum.
Undir liðnum: Önnur mál kynnti
Guðríður Ólafsdóttir nokkrar tillögur
frá framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar
til stjórnar bandalagsins og verður
annars staðar greint frá afgreiðslu
þeima. Hafdís Hannesdóttir greindi
frá undirbúningnum að norrænni
kvennaráðstefnu á næsta ári og hvatti
til sem virkastrar þátttöku sem flestra
í þeim undirbúningi.
Halldór S. Rafnar bar upp svo-
hljóðandi tillögu sem samþykkt
var einróma, en meðflutningsmaður
hans var Aðalsteinn Steinþórsson.
„Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands mótmælir harðlega þeirri
síendurteknu tilhneigingu stjómvalda,
einstakra ráðherra og embættismanna,
að taka ákvarðanir í mikilvægum
málefnum fatlaðra án þess að hafa
samráð eða samstarf við forystumenn
öryrkja í viðkomandi málum, sam-
anber fyrirhugaðan flutning Blindra-
bókasafns Islands úr félags- og þjón-
ustumiðstöð blindra og sjónskertra“.
Að loknum þessum lið hófst
málþing um þjálfun fatlaðra barna og
verður nánar frá því greint annars
staðar.
í lok málþingsins kvaddi Karl
S teinar Guðnason nýskipaður forstj óri
Tryggingastofnunarríkisinssérhljóðs,
þakkaði boðið á málþingið og óskaði
eftir sem nánustu samstarfi við samtök
fatlaðra. Á erfiðum tímum yrði að
vera enn betur vakandi um réttindamál
fatlaðra og tryggja það að málefni
þeirra yrðu ekki útundan. Árnaði
bandalaginu allra heilla. Nýkjörinn
formaður, Ólöf Ríkarðsdóttir, sleit svo
fundi og málþingi um leið með stuttu
ávarpi, þakkaði starfsmönnum
fundarins svo og fyrirlesurum, bauð
Karl Steinar velkominn til starfa og
vænti góðs samstarfs við hann.
Þakkaði fólki góða fundarsetu og lauk
svo þessum aðalfundi um kl. 16.30.
H.S.
Námssjóður
Sigríðar Jónsdóttur
Nú hefur verið staðfest í dómsmálaráðuneytinu
skipulagsskrá fyrir Námssjóð Sigríðar Jóns-
dóttur, sem er í eigu og vörzlu Öryrkjabandalags
Islands.
Svo sem getið var í 2. tbl. 5. árg. Fréttabréfs
ÖryrkjabandaIagsi ns lét frú Sigríður Jónsdóttir
Melhaga 6 hér í borg eftir sig erfðaskrá, þar sem
hún arfleiddi Öryrkjabandalag íslands að húseign
sinni, sem reyndist að söluandvirði um 6,5 millj.
kr.
Þessari höfðinglegu gjöf fylgdu allnáin
fyrirmæli um hversu nýta skyldi og er þeim
fyrirmælumfylgtnákvæmlegaískipulagsskránni.
Verður hér gerð stuttlega grein fyrir helztu
atriðum skipulagsskrárinnar:
Námssjóðurinn er að stofnfé 6,5 millj. kr. og
skal ávaxtast með hagkvæmasta hætti. Til
úthlutunar styrkja má aðeins verja vaxtatekjum,
öllurn eða að hluta, því höfuðstóll skal óskertur
standa.
Sjóðurinn er eign Öryrkjabandalagsins.
Tilgangurinn er að veita styrki til öryrkja til hagnýts
náms, verklegs eða bóklegs, svo og til náms í
hvers konar listgreinum. Einnig er heimilt að
styrkja þá sem sérhæfa vilja sig til starfa í þágu
þroskaheftra.
Fyrstu stjórn skipa 3 menn til þriggja ára: Tveir
tilnefndirafÖryrkjabandalagi íslands ogeinn
af félagsmálaráðuneyti. Að þremur árum liðnum
skipar stjórn ÖBÍ. sjóðsstjórn.
Úthluta skal úr sjóðnum einu sinni á ári og
skal miða við að úthlutunardagur sé 11. júní, sem
er fæðingardagur Sigríðar. f fyrsta skipti skal
úthluta úr sjóðnum árið 1995.
Þetta eru höfuðatriði skipulagsskrárinnar og
af henni ljóst að í framtíðinni getur sjóðurinn að
verulegu gagni komið fyrir þá sem þar eiga
umsóknarrétt. Oft getur slíkur styrkur haft
úrslitaáhrif um það, hvort viðkomandi getur ráðist
í tiltekið nám.
Af hálfu Öryrkjabandalags íslands eru enn og
aftur færðar einlægar þakkir fyrir rausn hinnar
látnu sómakonu, sem einmitt lét sér svo annt um
málefni þessi.
Megi gjöf hennar verða mörgum giftugjafi í
framtíðinni, því þá er hennar markmiði fyllilega
náð.
H.S.
Eftirmáli: Formaður Öryrkjabandalagsins gat
rækilega um sjóð þennan og hina rausnarlegu
gjöf Sigríðar í ársskýrslu sinni. Færði þar fram
alúðarþakkir bandalagsins.
Stjórn sjóðsins skipa: Hafliði Hjartarson form.,
Helgi Seljan og Margrét Margeirsdóttir, sem er
fulltrúi félagsmálaráðuneytis í stjóminni.
n
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS