Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 10
brautir víðs vegar um borgina. Þessir
hljóðvitar hjálpa sjónskertu fólki að
átta sig á því hvar gangbrautir eru og
flýta umferð þess ótrúlega mikið. Þá
skapa hljóðvitamir mikið öryggi. Þrátt
fyrir þau orð sem ég hef látið falla um
Islendinga í greinarkomi þessu verður
að segjast sem er að sumir þessara
hljóðvita hafa ekki fengið að vera í
friði fyrir skemmdarvörgum og á þetta
einkum við um hljóðvitann á horni
Stakkahlíðar og Miklubrautar sem er
í námunda við Blindraheimilið að
Hamrahlíð 17. Þessi hljóðviti hefur
verið eyðilagður hvað eftir annað og
veldur það sjónskertu fólki sem á leið
um óendanlegum erfiðleikum.
Eitt mikilvægasta hagsmunamál
blindra er áreiðanlegt strætis-
vagnakerfi. Liður í þjálfun blindra er
að kenna þeim að nýta sér strætis-
vagna. Áður fyrr kölluðu bifreiðar-
stjórar upp biðstöðvar en um miðjan
8. áratuginn var því hætt. Þrátt fyrir
mótbárur blindra og eindregin tilmæli
hefur þessi þjónusta ekki verið tekin
upp. Blindur maður sem ferðast með
strætisvagni biður bílstjóra oftsinnis
að gera sér viðvart þegar ákveðnum
áfangastað er náð. Hann situr hins
vegar í stöðugri spennu yfir því hvort
bílstjórinn muni eftir þessu. Einfald-
asta lausnin á þessu vandamáli og sú
sem engan skaðar, væri sú að strætis-
vagnastjórar kynntu biðstöð skömmu
áður en vagninn kemur að henni.
Þannig væri miklu álagi létt af mörgum
farþegum.
Vafalaust hefur nokkuð dregið úr
því að blint fólk noti strætisvagna
vegna þess hvað ferðirnar eru strjálar.
Eitt af helstu hagsmunamálum not-
enda hvíta stafsins eru því tíðari ferðir
Dagur hvíta stafsins var haldinn
hátíðlegur föstudaginn 15. október sl.
Blindrafélagið stóð fyrir hópgöngu
þennan dag frá Hlemmi niður á Aust-
urvöl 1 til að vekj a athy gli á hvíta stafn-
um og þýðingu hans fyrir blinda.
Þátttaka í göngunni var hin ágætasta -
nokkur hundruð manns gengu alla
leið. Hinn góðkunni fjölmiðlamaður,
Hermann Gunnarsson, gekk „blindur“
með hvíta stafinn alla leið og lýsti svo
reynslu sinni af því í fjölmiðlum og
vakti þannig enn meiri athygli á
málefninu. Göngufólk safnaðist svo
saman áHótel Borg að aflokinni góðri
gönguferð og fékk sér hressingu. Var
þar mikil þröng á þingi.
í tilefni dagsins var vel gerður og
vandaður þáttur í sjónvarpinu auk
strætisvagna.
I greinarkomi þessu hefur verið
drepið á nokkur atriði sem snerta not-
endur hvíta stafsins. Vonandi verða
þessi skrif til þess að opna augu ein-
hverra fyrir þörfum þeirra vegfarenda
sem eru sjónskertir eða blindir. Aukin
tillitssemi skaðar engan en getur aukið
frelsi margra.
Arnþór Helgason
allrarannarrarumfjöllunarummálefni
blindra s.s. greinaskrif í blöðum bám
bezt vitni um.
B lindrafélagið gaf út sitt glæsilega
ársrit, Blindrasýn og dreifði því víða
m.a. í þeim tilgangi að leita fleiri
styrktarfélaga fyrir Blindrafélagið.
Mun sú söfnun hafa skilað félaginu
allgóðum árangri.
I þessu blaði hér er einmitt nú að
finna bæði fróðlega og skemmtilega
grein um hvíta stafinn og notagildi
hans eftir Arnþór Helgason fv.
formann Öryrkjabandalagsins.
Blindrafélaginu er árnað allra
heilla með sitt ötula starf og árang-
ursríkan dag.
H.S.
Dagur hvíta stafsins
Opið hús hjá MS-félaginu
Veglegt afmælisrit
Eins og greinilega var getið um í
síðasta tölublaði Fréttabréfsins þá
er MS félag íslands 25 ára á þessu
senn liðna ári.
Mánudaginn 20. sept. sl. bauð svo
félagið til hinnar herlegustu veizlu,
hafði opið hús í dagvist sinni að Álandi
13. Þangað kom mikill fjöldi félaga
og gesta með forseta Islands frú
Vigdísi Finnbogadóttur í fararbroddi.
Formaður félagsins Gyða J.
Ólafsdóttir bauð gesti velkomna,
minnti á aldarfjórðungssögu farsældar
hjá félaginu og hvað framundan væri,
þar sem nýja MS húsið bæri hæst.
Arnþór Helgason, formaður ÖBI
flutti ámaðaróskir bandalagsins og
færði félaginu peningagjöf í tilefni
afmælisins.
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri
flutti heillaóskir og þakkaði félaginu
vel unnin störf og hét áframhaldandi
liðsinni ráðuneytisins við félagið.
Jóhann Pétur Sveinsson færði
hamingjuóskir frá Sjálfsbjörg -
landssambandi fatlaðra — minnti á
tengsl þessara tveggja félagasamtaka
og fagnaði framtakinu nýja.
Fullskipað var og vel það í Álandinu
þennan dag og fólk horfði til fram-
tíðar björtum augum.
í tilefni afmælisins gaf MS félagið
út ljómandi gott afmælisrit þar sem
saman fóm fróðleikur um félagið, starf
þess og áform, svo og læknisfræðilegar
upplýsingar um sjúkdóminn, orsakir
hans og afleiðingar.
Um leið og við hér hjá ÖBÍ. árnum
félaginu allra heilla og samfögnum
þeim með árangursríkabaráttu viljum
við líka þakka ánægjulegt samstarf
áranna sem við vonum að félaginu
hafi verið eitthvert hald í.
H.S.
10