Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Page 18
AVARP
Asgerðar Ingimarsdóttur á afmælis-
hátíð Landssamtaka hjartasjúklinga
Eg fly t hér kveðjur og ámaðaróskir
frá Öryrkjabandalagi íslands og
formanni þess Amþóri Helgasyni, sem
því miður gat ekki verið hér í dag.
Gamalt máltæki segir að gott hj arta
sé gulli betra og einhvernveginn er
það svo að hjartað eryfirleitt tákn þess
sem er gott og elskulegt. Hver man
ekki eftir að hafa í skóla skrifað
upphafsstafi þess útvalda og dregið
hjarta í kringum það. Og það var talað
um að þessi eða hinn hefði svo stórt
hjarta að hann eða hún mætti ekkert
aumt sjá. Þá var hjartað ekki einungis
gott heldur stórt líka.
I ævintýrunum var svo stundum
talað um þá sem hefðu hjartað úr
steini eða jafnvel ís en þau bráðnuðu
nú ansi oft í lokin þegar þeir
góðhjörtuðu komu til skjalanna. Og
þá komum við aftur að því að gott
hjarta sé gulli betra, en stundum er
eins og það séu ekki allir sammála því
og þá er ég nú svona dulítið að hugsa
um skömmtun og sparnað t.d. á
hjartadeildum sjúkrahúsanna. Mér
finnst stundum að þá sé búið að snúa
máltækinu okkar við og gullið orðið
betra.
Landssamtökhjartasjúklingaeru 10
ára um þessar mundir. Það er
kannski ekki langur aldur í sögu eins
félags en samtökin hafa afrekað miklu
síðan þau geystust fram á völlinn.
Samtakamáttur sjúklingahópa og
styrktarmeðlima þeirra er mjög
sterkur. Það hefur svo oft sýnt sig í
tímans rás. Verður manni þá hugsað
til Samtaka berkla- og brjósthols-
sjúklinga, sem er eitt af stofnfélögum
Öryrkjabandalagsins og Landssamtök
hjartasjúklinga eru nú aðilar að.
Það fjölgaði umtalsvert í Öryrkja-
bandalagi Islands þegar þessi stóru
samtök genguíSÍBSogviðfögnuðum
því að þessi hópur gekk til liðs við
okkur. í Öryrkjabandalaginu eru nú
nítján félög með um 15 þúsund
félagsmönnum. Anæstaaðalfundi 16.
þ.m. bætast að öllum líkindum tvö
Ásgerður Ingimarsdóttir.
félög í hópinn og þá fjölgar enn
félagsmönnum bandalagsins. Þetta er
því orðinn umtalsverður hópur
þjóðfélagsins, sterkt afl sem vissara er
fyrir landsyfirvöld að taka með í
reikninginn þegar samið er um kaup
og kjör. Eg er ekki beinlínis að hóta
framboði en bara svona að minna á að
þessi hópur er stór og öflugur þegar
allir standa saman.
Sný ég mér þá að öðru nokkuð
óskyldu máli. I nefndri ferð minni
til Skotlands á dögunum var mikið
rætt í öllum fjölmiðlum um 57 ára
mann, semléztúrkransæðasjúkdómi.
Komið hafði í ljós að læknar höfðu
neitað honum um aðgerð, þar sem
hann reykti og mikill biðlisti hafði
myndast. Mér virtust skoðanir í
fjölmiðlum skiptast nokkuð um
aðeraðalsmerki hvers þjóðfélags
að sjá til þess að þeir sem minnst
hafa séu ekki settir hjá þegar verið er
að skipta hinni landsfrægu
þjóðarköku. Það verða allir að standa
vörð um velferðina og ekki eingöngu
hugsa um sjálfa sig og hvað þeir beri
úr býtum. En til þess þarf víðsýni og
framtak allra dugandi manna og
kvenna. Við íslendingar erum fræg
fyrir að hjálpa öðrum þjóðum í neyð
en við megum ekki gleyma okkar
eigin ranni og ekki hugsa sem svo að
hinir geti leyst þennan vanda.
Ég minntist áður á samtakamáttinn
og hversu miklu er hægt að áorka með
honum. Það er verðugt verkefni
Samtaka hjartasjúklinga að halda
áfram á þeirri braut sem þeir þegar
hafa markað að taka höndum saman
við aðra öryrkja og þrýsta á að það
velferðarkerfi sem við höfum búið
við verði ekki minningin ein.
Að svo mæltu flyt ég enn á ný
árnaðaróskir til ykkar dugmiklu
samtaka og óska ykkur alls hins besta
á ókomnum árum. Á. I.
réttmæti slíkra ráðstafana. Á málþingi
um forgangsröðun í heilbrigðiskerf-
inu, haldið á vegum siðfræðiráðs
Læknafélags Islands, koma fram í
aðalframsöguerindi svipuð sjónarmið
og var þar gefið skýrt í skyn að
sjúklingar verði útilokaðir frá
hjartaaðgerðum, þegar þeir verði
komnir yfir vissan aldur. Þá er talið
útilokað að veita hátæknilega þj ónustu
Sigurður Helgason form.
Landssamtaka hjartasjúklinga:
Kafli úr
hátíðarræðu