Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Qupperneq 19
10 ÁRA AFMÆLI LSH.
Formaður í ræðustól.
Landssamtök hjartasjúklinga héldu
myndarlega og hátíðlega mjög upp
á 10 ára afmæli sitt 10. okt. sl.
Afmælishátíðin var haldin í Perl-
unni og sóttu hana mörg hundruð
manns.
Það var Sigurður Helgason for-
maður samtakanna sem setti hátíðina
og flutti fróðlega og ágæta ræðu þar
sem hann rifjaði upp tildrög stofnunar,
helztu baráttumál og ávinninga sam-
takanna og hvað helzt væri framundan.
Hann greindi þar m.a. frá inngöngu
samtakanna í S.I.B .S sem um leið hefði
tryggt þeim aðild að Öryrkjabandalagi
íslands, sem hann kvað samtökunum
mjögþýðingarmikla. Hannfól svo Jóni
Júlíussyni stjórn samkomunnar. Guð-
mundur Árni Stefánsson heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra flutti ávarp
og árnaðaróskir til samtakanna og hét
góðu samstarfi um úrlausn hinna ýmsu
viðfangsefna sem framundan væm. Þá
flutti ávarp Ingólfur Viktorsson
skrifstofustjóri samtakanna sem færði
Önnu J. Cronin alúðarþakkirallraþeirra
mörgu sem hún hefði aðstoðað svo
einstaklega vel liti í London, en Anna
var heiðursgestur samtakanna á
hátíðinni. Ingólfur færði henni gjöf og
blóm vönd fagran frá samtökunum sem
Anna þakkaði innilega. Var henni
klappað lof í lófa og ljóst af öllu að
fórnfúst og óeig-
ingjarnt starf hennar
hafði reynzt miklum
fjölda fólks ómet-
anlegt. Síðan þágu
gestir góðar veitingar í
boði samtakanna og
undir borðum söng
Bergþór Pálsson
nokkur lög við und-
irleik Jónasar Þóris og
fékk verðskuldað
lófatak að launum.
Ljúf tónlist ÁrnaElfars
mætti gestum við
komuna og kvaddi þá
við brottför.
Eftir kaffidrykkju fluttu gestir ávörp
og heillaóskir: Haukur Þórðar-
sonform.S.Í.B.S.fluttikveðjurS.Í.B.S.
sem fagnað hefði að fá þessi fjölmennu
og öflugu samtök í sína fylkingu.
Landlæknir flutti og heillaóskir og
sömuleiðis Magnús Karl Pétursson
yfirlæknir frá Hjartavernd.
Ásgerður Ingimarsdóttir flutti
ávarp af hálfu Örykjabandalagsins og
er það birt hér í blaðinu.
Sigurður Helgason sleit svo hófinu
góða en grein eftir hann um hið
þróttmikla starf samtakanna birtist hér
í blaðinu síðar, en ræðukafli fylgir hér
með.
Geta má þess að á fyrstu hæð í
Perlunni var haldin fjölbreytt sýning
um þessar mundirþar sem ýmis félaga-
samtök, fyrirtæki og stofnanir kynntu
ýmsar vörur sínar eða starfsemi með
miklum myndarbrag. Á meðal þeirra
voru nokkur félög Öryrkjabanda-
lagsins sem kynntu ýmislegt í marg-
þættu starfi sínu.
Héðan fylgja óskir um farsæld og
lán til Landssamtaka hjartasjúklinga
um framtíð alla.
H.S.
nema læknar leggi línurnar um
forgangsröðun. Fyrirsjáanlegur er
mikill spamaður í heilbrigðiskerfinu
og má því gera ráð fyrir að ofangreind
umræða sé aðeins á byrjunarstigi og
margt fleira svipaðs eðlis komi fram
síðar og ef til vill erum við aðeins að
sjá toppinn á borgarísjakanum í
þessum efnum. Við íslendingar
stöndum ekki einir í umfjöllun um
forgangsröðun, heldur fer hún fram
hjáflestumöðrumþjóðum. Það erþví
brýnt að hefja strax hreinskilnar
umræður hér á landi og verða
sjúklingasamtök að taka virkan þátt í
þein'i stefnumótun. Annars fer hún
fram án þeirra þátttöku.
r
Eg vil strax gera alvarlega athuga-
semd við framangreind sjónar-
mið. Rétt er að spurt sé, h vort umrædd
forgangsröðun standist lýðræðislega
hefð og hvort hún brjóti ekki gegn
undirstöðum að kristilegu siðferðis-
mati okkar. Það er eflaust umdeilan-
legt, hvað sé kristilegt siðferðismat
og gæti mér sem fleirum reynst erfitt
að útskýra það, en vísa má beint til
orða frelsarans um „að ekki þurfi
heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem
sjúkir eru“. Hér má og nefna boðskap
dæmisagnanna um miskunnsama
Samverjann, bersyndugu konuna og
týnda sauðinn.
Ég tel brýna nauðsyn að sett verði
lög um grundvallarréttindi sjúklinga
og á þann hátt verði þeim tryggð rétt-
arvernd í framtíðinni. Efni væntan-
legra laga verða ekki rakin á þessu
stigi málsins, enda þarf að fara fram
rækileg undirbúningsvinna. Ég tel að
ekki megi dragast, að sú vinna hefjist
sem fyrst og vil hvetja öll sjúklinga-
samtök, félög og einstaklinga, að veita
þessu máli liðveislu. Sláum skjaldborg
um velferðarkerfið og hefjum baráttu
til sóknar, en ekki til skipulagslauss
undanhalds, eins og áðurnefnd hel-
stefna ber í skauti sér að minni hyggju.
Stór hluti þjóðarinnar verður að
sameinast í slíkri baráttu og sýna með
því mikla samstöðu. Leggja þarf það
síðan fyrir stjórnmálaflokkana, hvoit
þeir vilja styðja framgang sliks Iaga-
frumvarps á Alþingi fyrir næstu
alþingiskosningar. Með framan-
greindum aðgerðum er ekki verið að
berjast gegn sparnaði í heilbrigðis-
kerfinu og skipulagsbreytingum og
því síður að krefjast þess að vonlausu
lífi sé viðhaldið með tækjabúnaði. I
þeim efnum treystum við læknum,
sem bundnir eru af Hippokratesareiðn-
um og hafa reynst traustsins verðir.
Sigurður Helgason.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS