Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Qupperneq 20
Ólafur Ólafsson landlæknir:
AÐ SYNDA OG
SÖKKVA EKKI
Svar landlæknis við grein „Að synda eða sökkva“, sem birtist
í Fréttabréfi Öryrkjabandalags íslands 3. tbl. 1993.
Hr. ritstjóri.
Sú sjálfsagða regla ritstjóra, að
gefa aðila þeim sem veist er að,
tækifæri til að s vara í sama tölublaði
og ásakanir birtast virðist ekki í
heiðri höfð í blaði yðar.
Mál það er Erna F. Baldvinsdóttir
skýrði frá í síðasta blaði yðar þarf
að leiðrétta. Rétt er að um var að ræða
mjög erfitt mál ekki síst fyrir sjúklinga
og aðstandendur. Hér var um að ræða
eitt erfiðasta tilfelli sem rekið hefur á
fjörur embættisins. Siðamáladeild
Læknaráðstaldi aðeðlilegahafi verið
staðið að rannsókn en vinnureglum
hafi ekki verið fylgt. Meiri hluti
Læknaráðs féllst á fyrri hluta ályktunar
Siðamáladeildar en ekki á síðari hlutann, þ.e. taldi að
venjulegum vinnureglum hefði verið fylgt. Landlæknir
tók ekki þátt í afgreiðslu málsins í Læknaráði þar eð hann
hafði fjallað um málið áður. í svari landlæknis kom fram
að venjulegum vinnureglum hafi ekki verið fylgt og
þess vegna hefði sjúklingur ekki verið vistaður á
sjúkrahúsi til nánari rannsóknar. Þessi niðurstaða var
aðal forsenda þess að sjúklingur fékk síðan bætur
vegna meints tjóns. I bókum landlæknis kemur einnig
fram að sjúklingi var ráðlagt að leita lögfræðiaðstoðar.
Oneitanlega fannst mér því hallað réttu máli og að ósekju
vegið að embættinu.
I greininni er mjög dregið í efa hlutleysi
Landlæknisembættisins varðandi málarekstur sjúklinga.
Engin haldbær rök eru þó færð fyrir þessum ásökunum og
vegna þessa óska ég eftir að eftirfarandi skýrsla um
afgreiðslu embættisins sé birt.
Fjöldi kvörtunarmála er berast embættinu eru milli
170-200 á ári. Það eru 70 mál á 100.000 íbúa en t.d. í
S víþjóð eru þau 80 á 100.000 íbúa. Ef litið er á alvarleg mál
þar sem kært er vegna meints líkamstjóns er fjöldi mála um
10 á 100.000 íbúa en í Svíþjóð eru þau um 14 á 100.000
íbúa og í Danmörku 8 á 100.000 íbúa.
Gangur mála
Allflest mál eru afgreidd af Landlæknisembættinu, oft
eftir að embættið hefur leitað umsagna sérfræðinga. Af og
til er leitað til erlendra sérfræðinga og í vaxandi mæli til
íslenskra sérfræðinga er lokið hafa sérfræðinámi erlendis
og búsettir eru þar. Ef málum sem
Landlæknisembættið hefur afgreitt er
vísað til Læknaráðs (Siðadeildarmál)
víkur landlæknir sæti sem formaður
ráðsins og tekur ekki þátt í afgreiðslu
málsins. Slík málatilvísun er nú sjaldgæf
eða um 1 -2 mál á ári. Aður fy rr var fleiri
málum vísað til Læknaráðs, en eftir að
Land-læknisembættið fékk starfsmann
í 1/4 stöðu hefur embættið ráðið betur
við þessi mál. Mál sem vísað er til
Réttarmáladeildar Læknaráðs er aldrei
fjallað um hjá embættinu en vísað
óskoðað áfram til deildarinnar. Umsögn
deildarinnar er síðan borin undir
meðlimi Læknaráðs og afgreidd af
ráðinu í heild. Rannsókn mála er
tímafrek og er nauðsynlegt að embættið fái aukna
stöðuheimild fyrir sérfræðing þ.e. í 50% stöðu, til þess að
sinna þessum málum. Þess skal getið að Svíar telja að eitt
Lex Maria mál (al varlegt mál) taki viku vinnu (40 klst.) en
meðalafgreiðslutími er 18 mánuðir (SOU: 1989:80, Stock-
holm). Afgreiðslutími Læknaráðs og landlæknis hefur
styst mjög, t.d. eru öll mál frá 1991 nú afgreidd.
Samantekt yfir aðgerðir Landlæknisembættisins frá
1981-1990:
Flest mál
eftir 1985
Læknamistök 71
Vafi 5
„Slysni“ 15
Sum mál urðu tilefni til að gerðar voru tillögur um
reglugerðar-/lagabreytingu, meðal annars Slysatrygg-
ingasjóð sjúklinga árið 1983 og innsýn sjúklinga í eigin
sjúkál (brey ting á læknalögum). Enn fremur hefur embættið
sett fram fjölmörg tilmæli um úrbætur um bætta þjónustu
við sjúklinga sem séð hafa dagsins ljós, s.s.: Urbætur á
fæðingarhjálp, slysa-, tannlækna- og augnlæknaþjónustu,
bæklunarlækningum, þjónustu lýtalækna, skipulagi á
biðlistum og innköllun sjúklinga, blóðþynningu og eftirlit
með lyfjaávísunum lækna á eftirritunarskyld og róandi lyf
og vaktþjónustu, t.d. í Reykjavík.
Bætt þjónusta við áfengissjúka, erfiða fíkniefna-
neytendur, geðfatlaða og stutt að betra þjónustuformi við
geðsjúka fanga meðal annars með stofnun meðferðar-
heimilis á Sogni. Embættið hóf baráttu fyrir stóraukinni
Ólafur Ólafsson.