Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Síða 25
Hólmfríður Gísladóttir varaform.
Alnæmis s amtakanna:
Alnæmissamtökin, samtök
áhugafólks um alnæmisvandann
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandannvorustofnuðó.des. 1988
og verða því fimm ára á þessu ári. Þar
sem nafnið er óþjált í munni kýs
stjórnin að nefna félagið Alnæmis-
samtökin en nafninu verður breytt á
næsta aðalfundi sem haldinn verður í
febrúar næstkomandi. Samtökin hafa
það á stefnuskrá sinni að auka þekk-
ingu og skilning á alnæmi og styðja
smitaða og sjúka aðstandendur þeirra.
Félagsmenn eru 196.
Innan Alnæmissamtakanna starfar
Jákvæði hópurinn en það er sjálf-
styrktarhópur fólks sem hefur smitast
af HIV veirunni. Það erdraumurokkar
að ná til allra þeirra sem smitast hafa
og hjáipa fólki með aðstoð sálfræðings
til þess að vinna úr því áfalli sem það
fær við greiningu. Félagi úr Jákvæða
hópnum mun greina nánar frá starfi
hópsins í næsta Fréttabréfi.
Alnæmissamtökin gefaútfréttabréf
um alnæmismál fjórum sinnum á ári
og er það hið eina sinnar
tegundar á landinu. Það
kemur út í 1000 eintökum
og er dreift til félaga og
stuðningsmanna, fjölmiðla,
á heilsugæslustöðvar,
biðstofur sjúkrahúsa, ungl-
ingaheimili og stofnanir, til
SÁÁ, þingmanna og borg-
arfulltrúa. Fréttabréfið ílytur
fréttir beint til smitaðra og
er það eini miðill lands-
manna sem gerir slíkt og
stundar það með því það
sem nefnast annars stigs
forvarnir.
Alnæmissamtökin hafa
gengistfyrirfræðslufundum
fyriralmenningogskólafólk
víðs vegar um landið og
félagsmenn og fulltrúi Jákvæða
hópsins náðu t.d. á sl. vetri til 1200
ungmenna á Akureyri. Þá hafa
félagsmenn einnig stundað kynningar
á höfuðborgarsvæðinu og í fjöl-
miðlum.
Hólmfríður Gísladóttir.
Alnæmissamtökin hafa rekið
félagsmiðstöð í leiguhúsnæði á
Hverfisgötu í Reykjavík í nokkur ár.
Þar eru haldnir almennir félagsfundir,
stjómarfundir og hópstarf fer þar fram.
Auk Jákvæða hópsins koma aðstand-
endur þar saman regluiega yfir vetur-
inn.
Alnæmissamtökin, Landsnefnd
um alnæmisvarnir og Rauði kross
Islands héldu á þessu hausti fjórðu
námstefnu sína um alnæmismál undir
heitinu „Alnæmi mitt á meðal okkar“
en þær hafa yfirleitt verið mjög vel
sóttar. Er stefnt að því að þetta verði
árlegur viðburður.
Igegnumsamtökinhafafjölmargir
sjálfboðaliðar starfað og mun það starf
áreiðanlega vaxa og þörfin fyrir það
aukast á komandi árum með auknum
fjölda þeirra sem smitast af HIV veir-
unni. Félagsmenn dreymir um að
koma upp sveitum sjálfboðaliða til
þess að styðja þá sem komnir eru með
alnæmi, lokastig sjúkdómsins, á
ýmsan hátt, ekki síst þá sem deyjandi
eru.
Alnæmissamtökin hafa engan
fastan tekjustofn nema félagsgjöld 70-
80 greiðandi félaga, 1500 kr. á mann.
Ymsir aðilar hafa stutt samtökin dy ggi-
lega og sá stærsti hefur verið Kletta-
útgáfan sem tileinkaði félaginu hluta
af ágóða af sölu Nýju söngbókarinnar.
Nú er því söluátaki lokið. Einnig hefur
Rauði kross Islands styrkt samtökin
dyggilega.
Sótt hefur verið um
styrki til starfseminnar til
ríkis og Reykjavikurborg-
ar og vonast stjórn samtak-
anna eftir góðum undir-
tektum til þess að hægt sé
að vinna áfram kröftuglega
að málefnum alnæmis-
sjúkra og þeirra sem smitast
hafa af HIV veirunni.
Stjóm Alnæmissamtak-
anna vonast eftir góðu sam-
starfi við Öryrkjabandalag
Islands og aðildarfélög
þess. Það er t.d. Alnæmis-
samtökunum mikilvægt að
kynning á starfi og baráttu-
málum þeirra sem smitast
hafa af HIV veirunni geti
nú birst í Fréttabréfi
Öryrkjabandalagsins sem dreift er í
nær 15 þúsund eintökum um land allt.
Megi hið nýjaár, sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa helgað málefnum tjöl-
skyldunnar, verða öryrkjum Islands
og fjölskyidum þeirra heillaríkt.
Hólmfríður Gísladóttir.
Af vettvangi starfsins.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS