Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Qupperneq 27
Grundvallarorsök þess ástands
verður ekki rædd hér, enda
nægar skýringar á lofti um þau efni á
vettvangi stjórnmálanna, þótt æði
misvísandi séu.
Það, að mér hefur hér orðið svo
tíðrætt um hin margnefndu frjálsu
líknar- og styrktarfélög, á sér því
einkum tvær höfuðástæður.
1) Hefðbundnar fjáröflunarleiðir
hafa verið ýmiss konar merkja- og
happadrættismiðasölur, sem eru
mjög starfsfrekar og í versnandi efna-
hag almennings ekki alltaf vel séðar.
Maður getur þó vart annað en
fyllst aðdáun yfir þolinmæði og
þrautseigju þessa fólks, sem til okkar
leitar, jafnvel þótt of lftinn árangur
beri hverju sinni. Mun betri og oft
árangursíkari hefur reynst sú aðferð
að efna til fjáröflunarskemmtana og
stöðugt þyrfti að huga að aukinni
fjölbreytni íþeimefnum. Þörfinfyrir
auknar framkvæmdir blasir hvar-
vetna við.
2) í upphafi þessara orða minna
minntist ég á hina almennu félagslegu
deyfð. Um þá hlið mála má skrifa
langt mál, um orsakir og afleiðingar.
Frá verkalýðshreyfingunni heyrast
áður óhugsandi tillögur um skipu-
lagsbreytingar á öllu innra starfi m.a.
til að mæta þeim vanda sem af
deyfðinni og áhugaleysi einstaklinga
óhjákvæmilega leiðir.
Já, mun einhver vilja segja, en hér
er ólíku saman að jafna. íverka-
lýðsfélögunum er að stærstum hluta
fullfnskt fólk sem daglega geturtekist
á við sín vandamál, þegar meðlimir
öryrkjafélaganna og styrktarfélaga
þeirra eru með margvíslegum og oft
ólíkum hætti hindraðir í þátttöku
eðlilegs félagsstarfs.
Þeir fy rrnefndu hafa sér til stuðn-
ings, að undangenginni oft harðri
baráttu, undirritaða kjarasamninga,
þegar öryrkjar og velunnarar þeirra
verða að sækja rétt sinn í umdeild
laga- og reglugerðarákvæði.
Hér verður ekki lagt mat á, hvort
hefur gefið raunbetri og áþreifanlegri
árangur. Þar verður hver, sem huga
leiðir að málum þessara áhrifamiklu
samtaka, að meta sjálfur íljósi reynsl-
unnar.
Oþarft er að bæta við þá afreka-
skrá framangreindra samtaka til að
leggja áherslu á þá þjóðfélagslegu
nauðsyn hvað öryrkja- og styrkt-
arfélögin áhrærir og að raunhæft mat
fari fram á þegar unnum störfum
þeirra og frjálsu framtaki. Hvers
vegna ekki að koma þarna á fót föstu
og skipulögðu samstarfi öryrkja og
verkalýðssamtaka? Hvaða óyfir-
stíganlegar hindranir ættu að geta
komið í veg fyrir markvisst samstarf
um að tryggja framhald þess, sem í
dag er að unnið og til að tryggja
framtíð umbjóðenda sinna, svo sem
í mannlegu valdi stendur? Fullvirkja
það afl, sem þegarerfyrirhendi inn-
an samtakanna og beina því inn á þær
brautir, sem liggja til sigurs í bar-
áttumálum hvers tíma.
Eggert G. Þorsteinsson
fv. ráðherra og forstjóri T.R.
BÓKARFREGN
Lf omin er út á vegum ísafoldar-
I ^prentsmiðju bókin: Þegar
hugsjónir rætast með undirtitl-
Bókin sem er prýdd 80 mynd-
um er um 330 síður og allur frá-
gangur til fyrirmyndar.
inum: Ævi Odds á Reykjalundi.
Höfundur og umsjónarmaður
þessarar tímabæru bókar um Odd
heitinn Ólafsson er svili hans Gils
Guðmundsson rithöfundur og
fyrrv. alþm. Guðrún Guðlaugs-
dóttir blaðamaður á í bókinni
allmörg viðtöl við samferðafólk
Odds, en höfundur tók svo viðtöl
við aðra.
í bókinni er komið inn á fjöl-
marga þætti í farsælli og árang-
ursríkri baráttusögu Odds heitins,
sagaReykjalundarfyrstu áratugina
rakin náið og einnig er rækilega
komið inn á hans rnikla starf fyrir
Öryrkjabandalag íslands og Hús-
sjóð þess svo og þingstörf hans,
auk margs annars.
Hér er um verðugan minnis-
varða hins mikilhæfa forystu-
manns að ræða sem öllum ætti að
vera dýrmæt lesning, ekki síst þeim
er láta sig mál öryrkja einhverju
varða, enda rekur bókin helstu
þætti þeirrar baráttusögu.
Höfundurinn er nákunnugur
persónunni og um leið snjall og
vandvirkur rithöfundur og er það
góð trygging fyrir glöggri heimild
og afar læsilegri um leið. Það er
okkur mikil ánægja að mega vekj a
athygli á þessari merku bók um
leið og við gleðjumst einlægiega
yfirþví hversu vel mætri minningu
Odds Ólafssonar eru gerð skil með
bók þessari.
Síðar mun Fréttabréfið gera
bókinni greinarbetri skil svo sem
verðugt er.
H.S.
Þegar hugsjónir rœtast
Ævi Odds á Reykjalundi
Gils Guðmundsson
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS