Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Qupperneq 28
Guðrún Hannesdóttir forstöðum.:
Skýrsla Starfsþj álfunar
fatlaðra
Starfsþjálfun fatlaðra varð 5 ára í
byrjun október á síðastliðnu ári
og einkenndist árið nokkuð af því.
Starfsárið hófst á því að haustið
1992 voru teknir inn 14 nemendur að
vanda en þá voru fyrir 13 nemendur er
fóru á 2. önn, alls voru því á haustönn
27 einstaklingar. Vegna veikinda
gengu 3 úr skaftinu en 24 luku prófum
í desember. I j anúar héldu þessir hópar
áfram á 2. og 3. önn og í maí síðastliðn-
um útskrifuðust 10 nemendur af 3.
önn.
Alls hafa þá frá upphafi útskrifast
67 einstaklingar frá Starfsþjálfuninni
eftir eins og hálfs árs dvöl og um 80%
nemenda þannig skilað sér í gegnum
allar þrjár annirnar.
I vor var tekið á móti umsóknum
fyrir haustið 1993, þærreyndust verða
liðlega fjörutíu um þau 14 sæti sem
laus voru á fyrstu önn. Sá hópur eða
reyndar 15 manns og þriðju annar
hópur 13 manns hófu svo vetrarstarfið
fyrsta september eða tuttugu og átta
einstaklingar alls. Þetta er mjög
blandaður hópur að vanda bæði hvað
varðar fötlun og allan bakgrunn.
Kenndir voru á síðasta ári 62 - 64
tímar á viku sem skiptust á tvo ti 1 fjóra
hópa eftir greinum, hver nemandi var
þá með 24 - 28 tíma á viku.
Nokkrir sérkennslutímar hafa
einnig verið veittir. Kennarar hafa ver-
ið sex talsins fyrir utan forstöðumann
með fjóra til tuttugu tíma hver. Öll
hafa þau starfað hjá okkur í nokkur ár,
reyndur og góður hópur.
Náms- og starfsráðgjafi hefur
síðastliðið ár verið til skrafs og
ráðagerða fyrir fyrrverandi og núver-
andi nemendur 4-6 tíma á viku.
Þriðju annar nemendur fóru allir í
starfskynningar og var hvarvetna vel
tekið.
Nú í vor fékkst styrkur úr sjóði til
Starfsmenntunaríatvinnulífinuen sótt
var í þann sjóð til að útbúa gögn, þýða
handbók, undirbúa og standa fyrir
Guðrún Hannesdóttir.
námskeiði fyrir útskrifaða nemendur,
nokkurs konar fjórðu önn þar sem
þjálfuð yrði gerð atvinnuumsókna og
annað er að atvinnuleit snýr og nem-
endurfengju m.a. starfsþjálfunarpláss
í fyrirtækjum til að spreyta sig og
öðlast reynslu. Undirbúningur þessa
tilraunanámskeiðs fór fram í vor og
sumar en sjálft námskeiðið hófst í
haust undir leiðsögn starfsráðgjafans
og mun það standa fram í desember.
Vonum við að framhald geti orðið af
þessu starfi.
Eins og áður sagði var síðastliðið
starfsár afmælisár og haldið var uppá
það með ýmsum hætti. 6. október,
afmælisdaginn var opið hús fyrir nem-
endur og kennara, gamla og nýja svo
og aðra velunnara. Við það tækifæri
færði stjórn Öryrkjabandalagsins
Starfsþjálfuninni að gjöf málverk eftir
Sól veigu Eggerz og kunnum við kærar
þakkir fyrir.
8.-10. nóvember var í Starfsþjálf-
un fatlaðra haldin sýning og námstefna
um tölvur og fatlaða í samvinnu við
Tölvumiðstöð fatlaðra. Bæði sýningin
og námstefnan voru geysivel sótt.
I mars var svo haldin árshátíð þar
sem gömlum nemendum og kennur-
um Skóla fatlaðra í Iðnskólanum,
forvera okkar, var boðin þátttaka en í
janúar voru 10 ár liðin frá því upphafi.
Tyllidagar voru að vanda, þá var
breytt útaf hefðbundinni dagskrá
m.a. farið í heimsóknir t.d. útvarpshús-
ið en fyrst og fremst boðin kynning á
ýmsu semfólkhafðiáhugaáaðfræðast
um t.d. framhaldsnám, starf ráðningar-
stofa og svæðisskrifstofa, réttindamál
og fl. og fengum við marga góða aðila
í heimsókn.
Ymislegt mætti tíunda úr félags-
starfi nemenda, blaðaútgáfu, sem
reyndar er einnig liður í kennslunni,
ræðunámskeið, fjáröflun í ferðasjóð
og utanlandsferð útskriftarhóps í vor
svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir utan vetrarstarfið sem áður
er lýst voru haldin grunnnámskeið í
töl vunotkun, opin öllum fötluðum. Frá
janúar fram í ágúst voru haldin 9 slfk
námskeið alls um 60 þátttakendur.
Styrkur fékkst hjá Starfsmenntasjóði
félagsmálaráðuneytis til þessa nám-
skeiðahalds.
Eins og fram kemur f ársreikn-
ingum Starfsþjálfunarinnar fyrir árið
1992 kostaði reksturinn það ár um
10.413.000, 8.500.000 fengust frá
ríkissjóði auk um 150.000 kr. í
námskeiðsgjöld. 2.000.000 vomveitt-
ar úr Framkvæmdasjóði fatlaðra en
stór hluti þess framlags er ekki nýttur
fyrr en á þessu ári vegna endurnýj unar
tækjakosts og annarsbúnaðar. 500.000
kr. fengust til tölvunámskeiðshalds úr
Starfsmenntasjóði sem fyrr sagði en
sá peningur kom þó ekki til ráðstöfunar
fyrr en á þessu ári vegna þess hve seint
hann var greiddur út.
Öryrkjabandaiagið hefur enn sem
fyrr brúað bilið í rekstrinum með því
að greiða húsaleigu okkar.
Aþessu ári eru 8.600.000 veittar á
fjárlögumtil Starfsþjálfunarinnar
auk 700.000 kr. úr Starfsmenntasjóði
vegna atvinnulífsnámskeiðs sem áður
var greint frá. Það er ljóst að enn sem
fyrr munu endar vart ná saman en við
unum þó þokkalega glöð við okkar
hag, enda í góðri von um nýtt húsnæði