Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Blaðsíða 29
því þröngt er orðið um okkur. Við
setjum traust okkar á góða bakhjarla,
Öryrkjabandalagið og félagsmála-
ráðuneytið en í stjórn Starfsþjálfunar-
innar sem skipuð er af félagsmálaráð-
herra eru tveir fulltrúar tilnefndir af
Öryrkjabandalagi Islands og einn
fulltrúi félagsmálaráðuneytisins.
Ég vil nota tækifærið og þakka
þeim, svo og starfsfólki Öryrkjabanda-
lagsins fyrir gott samstarf á liðnu
starfsári.
Guðrún Hannesdóttir
forstöðumaður Starfsþjálfunar
fatlaðra.
HLERAÐ í
HORNUM
Bóndi nokkur gisti eitt sinn á
nágrannabæ og var saltfiskur á
borðum um kvöldið. Er bóndi hafði
snætt all vel segir hann allt í einu: „Ég
ætla ekki að éta meira af þessum
fiski. Ég kæri mig ekki um að míga
undir af þorsta“.
*
Það bar til hjá feðgum sem höfðu
sauðfjárbú, að hrútarnir siuppu til
ánna nokkru fyrirfengitíma. Faðirinn
átti orðið fáar ær, en hjálpaði samt til
við hirðinguna, m.a. passaði hann
hrútana. Syninum þótti ekki gott að
fá fyrirmálsær og varð honum að
orði, erhann sagði frá óhappinu: „Ja,
föður mínum átti nú flestar ærnar,
sem hann lembgaði sjálfur“.
*
Áðurfyrr varþað jafn algengt að fólk
ætti hesta til að ferðast á eins og
menn eiga bíla nú. Eitt sinn réðst
kaupakona um tíma á sveitabæ, var
hún kölluð Bogga. Kont hún eitt sinn
til næsta bæjar á reiðhryssu góðri,
sem hún átti, er hét Flóra. Þegar
kaupakonan fór fylgdi bóndi henni
áleiðis á hestum, og fékk þá að prófa
hryssuna góðu. Lýsti hann því á þessa
leið: „Það er góð meri Flóra, ég fylgdi
Boggu út hjá Biskupshól og reið
henni alla leið“.
Uthlutun
F ramkvæmdasj óðs
fatlaðra
Rétt þykir að birta hér úthlutun sjóðsins s.s. hún kom frá ráðherra
félagsmála, en tekið skal fram að hún er ekki að öllu eins og
stjórnarnefnd gekk frá henni árla á vordögum. Enn er óráðstafað
allhárri upphæð sem nauðsynlegt er að taka afstöðu til nú á
haustdögum svo nýtast megi sem mest og bezt, því víða eru verkefni
til að vinna.
Viðfangsefni: Þús kr.
1. Til viðhalds á stofnunum fatlaðra.......................54.100
2. Leikfangasöfn.............................................3.500
3. Svæðisskrifstofur, öryggisbúnaður, brunavarnir............8.000
4. Atvinnumál fatlaðra.......................................2.500
5. Styrkur vegna félagslegra íbúða...........................5.045
6. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.......................750
7. Til kannana og áætlana....................................4.500
8. Til hönnunar á húsi f. Starfsþjálfun fatlaðra............ 1.500
9. Kostnaður vegna aðgengismála............................ 13.060
10. Bygging (sambýli og vinnustofa) Hólabergi 86 ........... 11.000
11. Bygging heimilis f. fjölfötluð börn Árlandi............ 25.000
12. Styrkur til MS-félagsins v. byggingar dagstofnunar.......5.000
13. Styrkur til Blindrafélagsins v/viðbygg. Hamrahlíð........6.000
14. Stofnkostnaður vegna sambýla Fannafold og Tindaseli.....4.000
15. Hæfingarstöð Keflavík....................................7.000
16. Kaup á sambýli í Kópavogi.............................. 18.000
17. Verndaður vinnustaður Akranesi.......................... 1.320
18. Verndaður vinnustaður Borgarnesi.......................... 170
19. Bygging heimilis f. fjölfatlaða Sauðárkróki............ 28.000
20. Sambýli Blönduósi - útskrift af Sólborg................ 15.500
21. Sambýli Húsavík - útskrift af Sólborg.................. 15.500
22. Bygging sambýlis fyrir fjölfatlaða á Akureyri.......... 28.000
23. Bygging vistheimilis fyrir böm á Selfossi.............. 16.500
24. Heimili og vinnustaður fyrir geðfatlaða Skaftholti..... 20.000
25. Kaup á húsnæði fyrir svæðisskrifstofu Suðurlands.........9.420
26. Þroskahjálp á Suðurnesjum - styrkur v/Lyngsels
og til brunavama........................................ 1.263
27. Sólborg - sérdeild fyrir atferlistruflaða................2.900
28. Óráðstafað - félagslegar íbúðir
(Þroskahjálp-geðfatlaðir), sambýli..................... 62.540
Samtals.....................................................370.068
í þriðja tölublaði Fréttabréfsins urðu þau miklu mistök að ekki var
birt rétt úthlutun, heldur lenti vinnsluplagg alveg óvart inn á
síðurnar. Þetta er hér með leiðrétt um leið og innilega er beðizt
afsökunar á þessu leiðu mistökum.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS