Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Blaðsíða 31
Sigurveig Alexandersdóttir varaform. FOSH:
Ráðstefna á vegum FEPEDA
Evrópusamtaka foreldrafélaga heyrnarskertra barna
Hér á eftir verður sagt frá ráðstefnu
og þriðj a aðalfundi FEPEDA-samtak-
anna ásamt fj ölsky lduhátíð sem haldin
var í Madrid á Spáni dagana 23. til 30.
júlí sl.
Félagsmálaráðuneytið styrkti For-
eldra- og styrktarfélag heyrnardaufra
til að senda fulltrúa á aðalfundinn og
fór undirrituð fyrir hönd félagsins,
auk þess sótti fundinn Eybjörg Ein-
arsdóttir frá félaginu Heyrnarhjálp en
húnereinnigístjómforeldrafélagsins.
Hvað er FEPEDA?
FEPEDA, sem er skammstöfun úr
frönsku, eru Evrópusamtök foreldra
barna með alvarlega heyrnarskerð-
ingu. Samtökin myndaforeldrafélögin
í Evrópu. í mörgum tilfellum er um að
ræðafleiri en eittforeldrafélag íhverju
landi, sem þá í flestum tilfellum sam-
einast í eitt heildarlandssamband sem
síðan tilnefnir fulltrúa sinn í Evrópu-
samtökin FEPEDA.
FEPEDA-samtökin eru ung eða
þriggja ára, stofnuð í Luxe mburg sum-
arið 1990. Stjórnarfundir eru haldnir
fjórum sinnum á ári og aðalfundur í
lok júlímánaðar ár hvert og stefnt að
því að í tengslum við hann sé vikulöng
fjölskylduhátíð. Þessar fjölskyldu-
hátíðir, sem hafa verið haldnar í
Lissabon í Portúgal, Metz í Frakklandi
og þetta árið í Madrid á Spáni, hafa
gefið óvenjulegt tækifæri bæði fyrir
foreldra og börn frá allri Evrópu til að
hittast, fræðast, skiptast á skoðunum
og miðla hvert öðru upplýsingum.
Rétt er að rifja upp helstu markmið
samtakanna:
- að gera heyrnarskertum bömum/
unglingum og fjölskyldum þeirra
kleift að lifa betra lífi, án tillits til
þjóðfélagsstöðu þeirra, menningar
eða efnahags.
- að stuðla að rannsóknum og leggja
til þeirra fé. Tryggja það að
upplýsingum og þekkingu sé miðlað
í þeim tilgangi að foreldrar hafi um
fleiri kosti að velja og meiri áhrif á
menntun barna sinna.
- að greiða götu heymarskertra barna
Sigurveig Alexandersdóttir.
og unglinga hvað snertir menntun,
atvinnu og menningu og sjá til þess
að þau njóti fullra borgaralegra
réttinda hvar sem er í Evrópu.
- að setja á fót stofnun til hagsbóta
heymarskertum börnum/unglingum
og fjölskyldum þeirra.
- að upplýsa og fræða almenning um
heyrnarleysi og hvaða hindranir
fötlunin hefur í för með sér.
- að stuðla að samvinnu, vináttu og
gagnkvæmum skilningi. Standafyrir
skemmtisamkomum og heimsókn-
um milli heyrnarskertra barna/
unglinga og fjölskyldna þeirra í
öllum löndum Evrópu.
í samtökunum í dag eru 24 þjóðir.
Madrid 23. - 30. júlí 1993.
Spönsku foreldrasamtökin
FIAPAS sem höfðu veg og vanda af
undirbúningi þessa móts, höfðu fengið
inni fyrir hópinn í klaustri í útjaðri
Madridborgar, sem heitir P.P.
Dominico Fathers. Þarna voru saman-
komnir rúmlega 300 manns.
Það verður nú að segjast eins og
er, að þegar við Islendingarnir sáum
aðstöðuna lá við að við fengjum áfall.
Eins og allir vita er júlímánuður
heitasti tíminn í Madrid og þessa viku
var óvenju heitt eða frá 38-45 gráður
á Celsíus. í klaustrinu var engin
loftkæling og vistarverur afskaplega
nöturlegar svo ekki sé meira sagt. I
stórum samtökum sem þessum sést
best hvað þjóðirnar gera misjafnar
kröfur. Við sem komum frá Norður-
Evrópu vorum í hálfgerðu „sjokki“
yfiröllu saman. Drykkjarvatn varekki
að hafa nema það sem kom úr kran-
anum og sem Spánverjarnir fullyrtu
að væri mjög „gott vatn“, en enginn
kælir til að geyma í, ef svo færi að
maður kæmist í verslun til að kaupa
vatn, en klaustrið var eins og áður
sagði í útjaðri Madrid og engar versl-
anir í næsta nágrenni. Eftir að við
sáum svo hvemig morgunverðurinn
var uppbyggður vorum við alveg viss
um að við myndum að öllum líkindum
ekki lifa af þessa viku. Kaffið var svo
sterkt að það þurfti hníf til að skera á
bununa úrkönnunni og flóuð sjóðheit
mjólk út í. Meðlætið var franskbrauð
skorið í litla bita með smjöri og sultu.
Matsalurinn var ca 300 m- á stærð,
ber steinn í hólf og gólf þannig að
bergmál var óumflýjanlegt og þegar
ca 300 manns eru í einum slíkum
matsal með jámstólum og borðum
ærast þeir nánast sem eitthvað heyra.
Nunnurnar sem báru svo fram þennan
„yndislega" morgunmat voru svo ekki
beint þjón-ustufúsar og mátti maður
varasigáaðyrðaáþær. Spánverjamir
fengu að vonum mikið af kvörtunum
vegna alls þessa, sem varð til þess að
seinni hluta vikunnar lagaðist ástandið
og fengum við meira að segja djús og
jógurt.
Dagskrá vikunnar:
Flokka má dagskrána í þrjá megin-
þætti:
1. Námstefna:
I tengslum við FEPEDA fundinn
var okkur boðið að taka þátt í nám-
stefnu - „INTERNATIONAL SYM-
POSIUM" sem bar yfirskriftina
„Utrýmum hindrunum í samskiptum“
og fór fram dagana 24., 25. og 26. júlf
í félagsmálaráðuneytinu. „The Na-
tional Institute of Social Services"
(INSERSO) og spönsku foreldrasam-
tökin höfðu veg og vanda af undir-
búningnum.
Sjá næstu síðu
i:
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS