Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Side 32
2. Stjórnar- og aðalfundur
FEPEDA:
Báðir fundirnir fóru fram í
félagsmálaráðuneytinu þann 27. júlí,
stjórnarfundurinn fyrir hádegi og
aðalfundurinn eftir hádegi. Unnið var
í vinnuhópum dagana 28. og 29. júlí
og setið bæði á formlegum og
óformlegum fundum þess á milli.
3. Fjölskylduhátíð:
Spönsku foreldrasamtökin
FIAPAS buðu upp á ýmiss konar
dagskrá fyrir börn/unglinga og
fullorðna. Farið var m.a. í dagsferð til
EI Escorial og skoðuð konungshöll
Phillips II frá 16. öld og grafhýsi
konunganna og einnig var farið til
Valle de los Caídos en þar er stór-
kostlegt neðanjarðarmusteri
(Brasilica), þá fóru þeir sem ekki áttu
erindi á stjórnar- og aðalfund FEPEDA
í ferð til Segovia sem er borg frá
miðöldum og til La Granja sem var
sumarhöll spænsku konungsfjölskyld-
unnar. Þar er garður sem er eftirlíking
af Versölum og þar voru skoðuð söfn
með málverkum og öðrum fallegum
hlutum. Akvöldin varalltaf skemmti-
dagskrá og síðasta kvöldið sýndu
börnin og unglingarnir leikrit og
dansatriði sem þau höfðu æft þessa
viku. Þá var okkur boðið að sjá óperu
og borgarstjórinn í Madrid bauð svo
fulltrúum landanna í „cocktail" síðasta
daginn.
„International symposium“
Eins og áður segir fór ráðstefnan
fram í félagsmálaráðuneytinu sem er
mjög glæsileg bygging og aðstaðan
öll til fyrirmyndar. Þarna hafa líklega
verið um 350 manns. Drottning Spán-
ar, H.M. Queen Sofia, setti ráðstefn-
una. I ræðu hennar kom m.a. fram að
þekking og skilningur á heymarleysi
hafi sem betur fer aukist í heiminum
og þar af leiðandi áhugi manna til að
draga úr þeim hindrunum sem stöðugt
mæta heymarlausum í hinu daglega
lífi. A þessari námstefnu væru saman
komnir fagmenn og áhugamenn sem
vilja bæta hér úr og miðla þekkingu
sinni.
Sérfræðingar í málefnum heyrnar-
lausra, læknar, prófessorar og tækni-
menn komu víða að og fluttu áhuga-
verða fyrirlestra og umræður fylgdu í
kjölfarið. Þarna varm.a. rætt umtákn-
málstúlkaþjónustu,kuðungsígræðslu,
textasíma, aðgang heymarlausra að
opinberum byggingum og að ýmiss
konar þjónustu. Kynnt voru ný
kennslutæki fyrir skóla s.s. tölvur með
raddþjálfunarforriti svo og ýmiss
konarhjálpartækifyrirheimilið.BBC
sjónvarpsstöðin var með kynningu á
textuðu efni og sérstökum fréttaþáttum
átáknmálio.fl.fyrirheymarlausasem
sú stöð flytur. I þessu sambandi er rétt
að hafa í huga það sem stendur í
mannréttindasáttmála Sameinuðu
þjóðanna: „Þjóðimareru ábyrgarfyrir
miðlun upplýsinga, enginn má
einangrast frá samfélaginu“.
Á ráðstefnunni var túlkað á þrem
tungumálum auk táknmálsins. Sýn-
ingarbásar voru frammi í anddyri og
þar gaf á að líta allt það helsta hvað
varðar tæknimál, t.d. nýjustu heyrn-
artæki, textasíma, tölvur, tæknibúnað
fyrir heimilið o.fl. Spönsku foreldra-
samtökin höfðu látið framleiða tvö
myndbönd um heymarleysi til að auka
vitund almennings um stöðu heym-
arlausra og þeirra daglegu hindranir.
Hvert land sem sótti fundinn fékk að
gjöf myndböndin og mun foreldra-
félagið hér heima reyna að koma því
á framfæri við fjölmiðla.
Á Spáni hefur ráðstefna sem þessi
óneitanlega vakið athygli ráðamanna
þar í landi á málefnum heyrnarlausra.
Helstu ráðherrar stj ómarinnar skipuðu
heiðursnefnd og greindu frá stefnu
stjórnvalda í málefnum heyrnarlausra
og svöruðu fyrirspurnum.
Námstefnan var mjög áhugaverð
og þama skiptust foreldrar og fagfólk
á upplýsingum og reynslu.
Stjórnar- og aðalfundur FEPEDA
Fundurinn fékk inni í félags-
málaráðuneytinu og fór fram á þrem
tungumálum. Kosin var ný stjórn, sem
samkvæmt lögum FEPEDA skyldi
endurnýjast að 1/3 hluta. Hin nýja
stjórn er þannig skipuð að forseti er
John Butscher frá Englandi, vara-
forsetar eru nú þrír í stað eins áður
(talið nauðsynlegt til að tryggja að
a.m.k. einn sitji stjórnarfundi sem
haldnir eru í hinum ýmsu löndum),
þeir eru Silvana Baroni (ftalíu), Jan
Stevens (Belgíu) og Doris Nelson
(írlandi). Gjaldkeri er Klaus Löning
frá Luxemburg og ritari Jean-Benoit
Ballé frá Frakklandi. Þá voru kosnir
fimm fulltrúar í fulltrúaráð til 3ja ára
og er undirrituð meðal þeirra.
Staða samtakanna var tekin til
umfjöllunarogerfjárhagsstaðanmjög
veik enn sem komið er. Aðalatriðið er
að afla FEPED A viðurkenningar innan
Evrópubandalagsins til að styrkja
samtökin og gera þau fjárhagslega
sjálfstæð.
Frönsku foreldrasamtökin
ANPEDA hafa gefið alla sína þjónustu
og skrifstofuaðstöðu og ensku sam-
tökin NDCS veita FEPEDA stuðning
með því að vinna ákveðin verk
FEPEDA að kostnaðarlausu.
Fulltrúar þeir sem kosnir voru á
fyrsta fundinum í Lissabon til að stýra
vinnuhópum gerðu grein fyrir störfum
sínum.
Þama er um að ræða vinnuhópa í
eftirfarandi málaflokkum: mennta-
málum, tæknimálum, menningarmál-
um, læknisfræðilegum málum,