Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Side 33
fjármálum, og skiptinemasambandi.
Island hefur verið með menntamálin
og sendum við út spurningalista til
allra aðildarríkjanna á þrem tungu-
málum. S vörin hafa verið að tínast inn
og mun Island taka saman lauslegar
niðurstöður og senda til aðalskrifstofu
samtakanna í París þar sem þær verða
tölvuskráðar.
Akveðið var að gefa út fréttablað
til að koma upplýsingum á milli landa,
þannig að við verðum öll betur
meðvituð um h vað er að gerast í hverju
landi fyrir sig. I fyrsta tölublaði á að
birtast skýrsla frá h verju landi þar sem
greint er frá menntastefnu heymar-
lausra og hvernig þeim málum er
háttað í hverju aðildarríki. Skrifaði ég
stutta greinargerð um menntamál
heyrnarlausra á Islandi; - hvaða
möguleikaþeirhafatilnámsídago.fl.
Hvað varðar aðra vinnuhópa þá
hefur töluvert starf verið unnið í
tæknihópnum og margt í undirbúningi.
Langur listi af verkefnum var kynntur
og þeim raðað í forgangsröð eftir að
könnun hafði farið fram meðal fund-
armanna um uppröðun á listanum.
Skiptinemavinnuhópurinn hefur
sent út umsóknareyðublað til allra
aðildarríkjannaogeigaforeldrafélögin
í hverju landi að þýða hann á sitt
tungumál og láta liggja frammi á
skrifstofu félagsins fyrir þá sem áhuga
hafa á að senda eða fá skiptinema. Nú
þegar er ein tékknesk stúlka í Belgíu á
vegum samtakanna.
Á fundinum var farið yfir þær
helstu lagasetningar í Evrópulöndun-
um sem snerta hey rnarlausa og hvernig
þeim er framfylgt.
4. aðalfundur FEPEDA með fjöl-
skylduhátíð verður haldinn í South-
ampton í Englandi dagana 24. - 30.
júlí næsta ár. The National Deaf Chil-
dren’s Society mun skipuleggja
hátíðina en það félag heldur upp á 50
ára afmæli sitt á því ári. Eg vil hvetja
allaforeldraheyrnarskertratil að sækja
fjölskylduhátíðina í Englandi og sjá
og sannfærast. Englendingar hafa
undirbúið þessa viku af mikilli kost-
gæfni og verður ýmislegt gert bæði til
skemmtunar og fróðleiks, mikið af
tækninýjungum verður kynnt sem gera
heyrnarlausum auðveldara að lifa
sjálfstæðu lífi. Tékkar hafa síðan
boðist til að halda 5. aðalfundinn í
Prag og sá 6. verður að öllum líkindum
í Vín í Austurríki.
Ekki er nokkur vafi á að nauðsyn-
legt er að hafa slík heildarsamtök
sem FEPEDA, þar sem fjallað er um
hin ýmsu mál sem foreldrafélögin í
öllum Evrópulöndunum hafa á stefnu-
skrá sinni. Heildarsamtök sem þessi
geta orðið mjög sterk og munu berjast
fyrir hagsmunamálum heyrnarlausra
og fjölskyldna þeirra á evrópskum
vettvangi. Foreldrar heyrnarlausra
barna sem tilheyra FEPED A eru betur
meðvitaðir um hlutverk og stöðu fjöl-
skyldunnar í menntunarmálum barna
sinna.
Eg vil undirstrika mikilvægi þess
að við reynum eftir fremsta megni að
taka þátt í þessu samstarfi. Foreldra-
og styrktarfélag heyrnardaufra er
fámennt félag sem hefur engan veginn
þá fjárhagsstöðu að geta sent fulltrúa
sinn á fundi víðs vegar um Evrópu
einu sinni eða oftar á ári. Mikilvægast
er þó að við séum með og fáum þar af
leiðandi að njóta þess sem FEPEDA
hefur að fly tj a okkur. Við sem foreldrar
berum mikla ábyrgð á menntun barna
okkar og með því að taka þátt í fjöl-
þjóðasamtökum sem þessum hvetur
það okkur til að mynda okkar sjálf-
stæðu skoðanir. Þannig getum við
betur metið hlutina sjálf, orðið
víðsýnni og réttsýnni.
Eg vil nota tækifærið og þakka
félagsmálaráðuneytinu fyrir að gefa
okkur tækifæri þetta árið til að sitja
þennan þriðja ársfund samtakanna.
Sigurveig Alexandersdóttir,
varaformaður Foreldra- og
styrktarfélags heyrnardaufra.
HLERAÐ í HORNUM
Flámæli Austfirðinga hefur lengi verið haft á orði. Það bar við í sveit á
Austurlandi að nágrannakona kom í heimsókn til vinkonu sinnar. Er hún var
sezt í eldhúsið fór hún að dást að því hve eldhúsgólfið væri hvítskúrað og
spurði hvernig hin færi að halda gólfinu svona hreinu. „Það er nú ekki vandi“,
sagði vinkonan, „ég þvæ það alltaf upp úr bleki“. „Upp úr bleki og hvernig
ferðu að ná því af?“, spurði sú gestkomandi. Kom þá misskilningurinn í Ijós.
Þvottaefnið sem konan notaði var Blik.
*
Mjög fín tiú þurfti að hafa ungan son sinn með sér í veizlu. Bað hún drenginn,
ef hann þyrfti að pissa á nieðan á borðhaldinu stæði að gefa sér merki með því
að rétta upp einn fingur. S vo þegar borðhaldið stóð sem hæst rétti sonurinn upp
tvo fingur. Konan hristi höfuðið og leit undrandi á hann. „Kúka líka“, sagði
þá sá litli.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS