Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Qupperneq 34
Frá Reykhólum. Kristín Tómasdóttir forstöðukona afhendir Önnu Ingvarsdóttur blóm í tilefni afhendingar
íbúðar. Ibúinn Gunnar Tryggvason horfir á með velþóknun.
Af umsvifum Hússjóðs
á landsbyggðinni
Rætt við framkvæmdastjóra Hússjóðs
Eins og lesendum Fréttabréfsins
ætti að vera mætavel kunnugt
hefur Hússj óður Öry rkj abandalagsins
umsvif um allt land. Þegar tekjur fóru
að koma frá Islenzkri getspá var sú
ákvörðun tekin að reyna skyldi eftir
föngum að mæta húsnæðisþörf öryrkj a
hvarvetna á landinu í góðu og rökréttu
samhengi við það, að tekjurnar koma
hvaðanæva að.
Við þessa ákvörðun hefur verið
mjög vel staðið og nú á Hússjóður
íbúðir, sem leigðar eru öryrkjum í öll-
um kjördæmum nema á Vesturlandi,
en vonandi verður sem fyrst ráðin bót
á því, enda Hússjóður og forysta hans
tilbúin til aðgerða, ef þaðan berast
umsóknir.
Ritstjóri hyggur hins vegar að
lesendum þyki nokkur fróðleikur í því
fólginn að fara yfir þessa íbúðaeign,
svo fólk geti séð svart á hvítu, hvar
unnið hefur verið í þessum efnum.
Réttast þykir að taka Suðurnesin með
í þessa mynd en sleppa höfuðborgar-
svæðinu og næsta nágrenni þess, enda
yrði það langur lestur til viðbótar.
Ritstjóri fór því á fund fram-
kvæmdastjóra Hússjóðs, Önnu
Ingvarsdóttur enda hæg heimatökin
og bað hana að gefa lesendum nokkrar
talnalegar upplýsingar um íbúða-
eignina á einstökum svæðum. Þess
skal þá getið, að um heildareign
Hússjóðs koma fram glöggar upp-
lýsingar í skýrslu formanns stjómar
sem hér er nú birt.
Svör Önnu fara hér á eftir:
Ef Suðumesin eru tekin fyrst fyrir
þá eru íbúðirnar þar samtals 8, í
Njarðvík 4, Keflavík 3 og í Sandgerði
1.
Eins og áður var sagt er Vesturland
enn ekki inni í myndinni. Þá eru það
Vestfirðir næst. Þar eru 2 íbúðir á
Isafirði og ein á Reykhólum eða
samtals 3. Næst er Norðurland vestra
og þar er aðeins Siglufjörður með og
þar er ein íbúð. Akureyri er eina
sveitarfélagið á Norðurlandi eystra
þar sem Hússjóður á íbúðir, en þær
eru líka 13 þar.
Svo er það Austurlandið og þar
eru íbúðirnar samtals 9 og skiptast
þannig: Egilsstaðir 4, Höfn í
Hornafirði 2, Eskifjörður, Seyðis-
fjörður og V opnafjörður með eina íbúð
hver staður.
Að lokum er svo komið að Suður-
landinu. Þar eru íbúðirnar alls 11 og
þær skiptast milli Vestmannaeyja þar
sem eru 5 íbúðir og Selfoss þar sem
þær eru 6.
Svo segist Önnu frá.
Samtals eru þetta 45 íbúðir og er
það dágóður árangur á 6 árum og sýnir
þann einlæga ásetning stjórnar og
framkvæmdastjóra Hússjóðs að koma
til móts við óskir og þarfir fólks úti á
landi s.s. frekasterkostur. Þó sjálfsagt
kunni að sýnast er líka jafn sjálfsagt
að upplýsa um þessa ágætu hluti sem
hafa gagnast svo mörgum.
Sem landsbyggðarmaður þykist
ritstjóri því mega þakka þessum
aðilum fyrir skilning og framsýni og
það þó helzt að hafa komið orðum svo
ágætlega í lýsandi verk.
Önnu Ingvarsdóttur eru svo þakk-
aðar hennar greinargóðu upplýsingar
og um hennar góða vilja til að halda
fram af fullri einurð vita þeir sem til
þekkja og þörfin kallar hjá.
H.S.