Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Page 39
formenn Sjálfsbjargar, Blindrafélags-
ins og Þroskahjálpar auk formanns
Öryrkjabandalagsins. Þessi þáttur var
klukkutíma langur og var útvarpað
14. janúar.
Það næsta var að meðlimir úr stjóm
ÖBÍ. ásamt framkvæmdastjóra ÖBI.
tóku þátt í ráðstefnu hjá Bandalagi
kvenna þann 24. janúar, en þar var
Öryrkjabandalagið kynnt og síðan set-
ið fyrir svörum.
Daginn eftir eða 25. janúar var
afhending höfðinglegrar gjafar til
Öryrkjabandalagsins frá Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur á 90 ára
afmæli þess félags. f tilefni af
Alþjóðaári fatlaðra ákvað stjóm V.R.
að gefa Öryrkjabandalaginu 30 millj-
ónir gamalla króna eða 300 þúsund
nýkrónur. Þessari rausnarlegu gjöf
veitti Oddur Ólafsson viðtöku.
8. mars var haldin ráðstefna um
„Umferðar- og öryggismál blindra og
heymarlausra“. Þeir sem stóðu að ráð-
stefnunni voru Junior Chamber
Reykjavík og var formanni boðið að
taka þátt í henni.
Þann 29. mars var sérstök kynning
á málefnum fatlaðra á vegum
SjálfstæðisflokksinsíValhöll.Þarvar
haft „opið hús“, þar sem félög fatlaðra
kynntu starfsemi sína. Formaður
Öryrkjabandalagsins hélt hálftíma
ræðu, þarsem starfsemi ÖBÍ. varkynnt
og aðildarfélög þess, einnig nokkur
önnur félög. Áður höfðu félögin látið
formanni í té margs konar upplýsingar
um félögin og voru þær fróðlegar og
gagnlegar. Þessi ræða er ennþá til og
þar er hægt að leitaupplýsinga á einum
stað um þau aðildarfélög, sem voru í
bandalaginu 1981.
Boð barst frá 1. maí nefnd til ÖBÍ.
um að senda áheymarfulltrúa á fundi
hjá nefndinni til að fylgjast með undir-
búningi að 1. maí hátíðahöldum með
það í huga að koma fötluðum að í um-
ræðu dagsins. Það varð svo að ráði að
formaður Öryrkjabandalagsins var
beðinn um að flytja ávarp á Lækjar-
torgi á 1. maf hátíðahöldum og er mér
það mjög minnisstætt.
5.maí 1981 áttiÖryrkjabandalagið
20 ára afmæli og var það skemmtileg
til viljun að þetta merkisafmæli skyldi
bera upp á „Ár fatlaðra“. I tilefni þess
varhaldinn blaðamannafundur4. maí,
þar sem bandalagið var kynnt og síðan
á afmælisdaginn var afmælisins
Norman Acton aðalframkvæmdastjóri Alþ jóðlegu endurhæfingarsamtak-
anna ásamt nokkrum ágætum fulltrúum Islands.
minnst á myndarlegan hátt með veislu
á efstu hæð í Hátúni 10, þar sem m.a.
formönnum allraaðildarfélaganna var
boðið ásamt fjölmörgum velunnurum
bandalagsins. Um kvöldið var svo
veisla fyrir íbúana í húsum ÖBÍ. ásamt
stjórninni og varþarfjölmenni mikið.
ann 11. júní var opnuð sýning er
nefndist „Þróun í málum heym-
arlausra í 114 ár“ á vegum Félags
heymarlausra og var hún framlag fé-
lagsins til „Árs fatlaðra“. Formanni
var boðið að vera við opnun sýningar-
innar. Tveimur dögum síðar eða 13.
júní var útifundur á vegum Sjálfsbjarg-
ar um málefni fatlaðra og var þar túlk-
að fyrir heymarlausa, en það var ekki
vanalegt á þessum árum. Formaður
ÖBÍ. var viðstaddur þennan fund.
16. september 1981 kom góður
gestur í heimsókn hingað til lands, en
það var Norman Acton framkvæmda-
stjóri Rehabilition International eða
Alþjóða- endurhæfingarsamtakanna,
sem ÖBI. er aðili að. Hann dvaldi hér
í boði ÖBÍ., en Alfanefndin aðstoðaði
við móttökurnar og sáu ÖBI. og Alfa-
nefndin um skipulagningu heimsókn-
arinnar. Norman Acton kom hingað
til að afhenda forseta Islands stefnu-
skrá Alþjóða-endurhæfingarasamtak-
anna fyrir níunda áratuginn. 16.
september flutti Norman Acton opinn
fyrirlestur í Norræna húsinu og 17.
september var blaðamannafundur í
Hátúni 10 í tilefni af komu hans.
Síðar þann sama dag var móttaka
á Bessastöðum í boði forseta Islands,
þar sem Norman Acton afhenti forseta
stefnuskrána. Um kvöldið var svo
kvöldverðarboð til heiðurs Norman
Acton í boði Alfanefndar og ÖBI.
9. október var sett landsþing
Þroskahjálpar og var formanni ÖBÍ.
boðið að flytja ávarp við þingsetn-
inguna.
Alfanefndin stóð fyrirráðstefnu um
ferlimál dagana 11.-12. nóvem-
ber og var formaður þátttakandi í
henni.
Nokkrum dögum síðar eða 19.
nóvember var kynning á námsefni
fyrir fatlaða og var formaður við-
staddur þá kynningu. Þetta námsefni
var sett upp í formi brúðuleikhúss og
flutt síðan í skólum og tel ég að þar
hafi vel til tekist með kynningu á
hinum ýmsu fötlunum. Það var nú
farið að líða á árið, en tveir viðburðir
eru enn eftir, sem ég vil nefna í þessum
annál. Sá fyrri er Menningarvaka
haldin 28.11. - 4.12. ’81 á vegum
Alfanefndar. Hún baryfirskriftina „Líf
og list fatlaðra“. Við setningu menn-
ingarvökunnar flutti formaður ÖBI.
ávarp ásamt fleirum. Þetta var mjög
lifandi menningarvaka haldin að Hótel
Borg og hófst að jafnaði kl. 15.30 á
daginn og stóð til kl. 18.30 og svo
voru al ltaf einh ver atriði flutt á kvöldin.
Þarna kom fram fólk með hinar ýmsu
fatlanir ásamt ófötluðum og einnig
kynntu félög fatlaðra starfsemi sína
með bæklingum sem lágu frammi.
Síðari viðburðurinn semég nefndi
er vígsla fyrsta heyrnleysingjaprests-
ins á Islandi, en þann 13. desember
’81 var séra Miyako Þórðarson vígð.
Það var búið að vera baráttumál hey rn-
arlausra að fá að njóta þjónustu
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS