Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Side 40
kirkjunnar á sínu eigin máli, táknmáli
og var það mjög gleðilegt að það
skyldi takast. Þeir gátu því sótt sína
fyrstu jólaguðsþjónustu, sem flutt var
á táknmáli 26. desember á „Ári
fatlaðra".
Eins og sést á þessari upptalningu
þá hafa mörg félög viljað gera
eitthvað sérstakt í tilefni „Árs fatlaðra“
og eru þau miklu fleiri sem koma ekki
við sögu hér í þessum annál. Eg get
nefnt t.d. að sum blöð og félagasamtök
höfðu þann hátt á, að skrifaðar voru
greinar reglulega í blöð og tímarit og
hinar ýmsu fatlanir kynntar, einnig
voru birt viðtöl við fatlað fólk. Það var
einnig mjög oft að formaður var beðinn
um alls konar skriflegar upplýsingar
um bandalagið eða efni í blaðagrein
auk þess að koma fram á fundum,
ráðstefnum og öðru þar sem rætt var
um málefni fatlaðra en sem ég hef
ekki tekið með íþessari upprifjun. Oft
leið ekki sú vika að ekki væri einh vers
staðar verið að kynna málefni fatlaðra
af hálfu ÖBÍ.
Eg er þeirrar skoðunar að öll þessi
kynning hafi átt sinn þátt í að breyta
viðhorfi fólks til fatlaðra almennt.
Að lokum vil ég þakka öllu því
góða samstarfsfólki mínu í stjóm ÖBL,
framkvæmdastjóra og starfsfólki
bandalagsins þann stuðning sem þau
veittu mér þessi tvö ár, sem ég var
formaður ÖBÍ. Það var ómetanlegt að
njóta liðveislu þeirra og hjálpsemi. Ég
veit að þessi ár sem formaður voru
mér góður „félagsmálaskóli“ og efldu
enn frekar áhuga minn á því að vinna
að málefnumfatlaðra. Ég læt þá þessari
upprifjun lokið um leið og ég óska
Öryrkjabandalagi íslands allra heilla í
stöðugri baráttu sinni fyrir bættum
hag fatlaðra.
Höfundur þessarar góðu greinar
og glöggu er Jóna Sveinsdóttir
fv. formaður bandalagsins og er
í stjórn þess nú.
Barnið í jötunni
Nína Björk
Árnadóttir skáld:
Það verða að vera ilmvötn
það verða að vera ilmsápur.
Það verður að vera djúpnæring í hárið
það verða að vera húðkrem
það verður að vera glanskvoða í hárið
það verður að vera vatnsekta farði.
En jatan
var svo smá
jatan lyktaði af heyi.
Jesúbarnið dafnaði
og boðaði tólf ára
jafnrétti
frið
bræðralag.
Það verður að vera leður
í sófanum í horninu
minnst sæti fyrir sjö
og svo þriggja sæta sófi
tveggja sæta sófi
og stór stóll með skemil fyrir þreytta
fætur
húsbóndans.
En jatan
var svo smá
Fiska og brauð gerði Hann öllum.
Og Ijósakrónan verður að vera
úr krystal
skórnir
úr leðri.
Hann hljóp berfættur
um sandana
og boðaði jafnrétti.
Skelfdur og undrandi
liggur hann nú í jötunni
frelsarinn okkar allra.
Hann stóð klæðlítill
og boðaði bræðralag meðal okkar.