Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Page 45
Halldór Gunnarsson fulltrúi ÖBÍ
í Svæðisráði Reykjavíkur:
FYLGIR HUGUR MÁLI?
Hugleiðing um starfsskilyrði svæðisráða
Eins og öllum sem þessar línur les
ætti að vera kunnugt tóku ný lög
um málefni fatlaðra gildi á síðasta
ári. Ein af þeim breytingum sem þau
kveða á um er að hlutverki gömlu
svæðisstjórnanna skuli skipt á milli
svæðisskrifstofa og svæðisráða.
Svæðisskrifstofurnar sjái um
framkvæmdahliðmála, en svæðisráð
annist eftirlit með því að fólk sem er
fatlað njóti þeirrar þjónustu sem því
ber og réttindi þess séu að fullu virt.
Flestir hljóta að kinka kolli yfir
þessari skipan: Hvernig á sami aðili
að geta staðið fyrirþjónustu og fram-
kvæmdum í víðtækum málaflokki
og í leiðinni að fylgjast með því að
rétt sé að öllu staðið?
I þessum línum vil ég í örstuttu
máli greina nánar frá þeim skyldum
sem löggjafinn leggur svæðisráðum
á herðar, þá þörf sem fyrir hendi er
og síðan hvaða tæki fram-
kvæmdavaldið hefur lagt þeim í
hendur til verksins. Tek ég einkum
mið af reynslu minni sem fulltrúi
Öryrkjabandalagsins í Svæðisráði
Reykjavíkur undanfarið ár.
Hlutverk svæðisráðs: Eftirlit með
framkvæmd laga og réttindagæsla á
heimilum fyrir fatlaða.
í lögum um málefni fatlaðra frá
1992 segir orðrétt: „Svæðisráð í
málefnum fatlaðra skulu standa vörð
um rétt fatlaðra til þjónustu
samkvæmt lögum þessum og öðrum
eftir því sem við á.“ (36. gr. 15.
kafli). Lögin kveða einnig svo á um
að svæðisráð skuli skipa sérstakan
trúnaðarmann í því skyni að treysta
réttindi fatlaðra einstaklinga á
heimilum fatlaðra (sambýlum,
vistheimilum o.s.frv.)
Eftirlitið
Það er ljóst að árangursríkt eftirlit
með því að fatlaðir njóti þeirra
Halldór Gunnarsson.
réttinda sem þeirn ber samkvæmt
landslögum stendur og fellur með
því að þeir sem málið snertir láti
svæðisráð frá sér heyra. Árangur
svæðisráðs er einnig kominn undir
góðu sambandi viðhagsmunafélögin
stór og smá því þar býr þekkingin á
því hvar skórinn kreppir. Þetta eftir-
litshlutverk verður ekki síst sérlega
mikilvægt á næstu misserum þegar
framkvæmdþjónustunnareraðflytj-
ast yfir á hendur sveitarfélaganna.
Sá tími sem liðinn er frá tilkomu
þessarar nýju skipunar hefur leitt í
ljós að svæðisráðinu er allt of þröngur
stakkur skorinn af framkvæmda-
valdinu (sem svæðisráðið á lögum
samkvæmt að hafa eftirlit með!) Gert
er ráð fyrir 9-12 fundum á ári, þess
utan er ekki gert ráð fyrir að nokkur
maður komi nálægt þessu víðtæka
verkefni. í stuttu máli: Raunin hefur
orðið sú að bunkinn af óafgreiddum
málum hækkar óðfluga með hverri
vikunni.
Trúnaðarmaður
1 reglugerð um s væðisráð málefna
fatlaðra segir m.a. svo uni starfssvið
trúnaðarmanns: „Trúnaðarmaður
fatlaðra skal gæta hags þeirra fötl uðu
sem búa á sambýlum, vistheimilum,
heimilum fyrir börn og áfanga-
stöðum.... Hann skal fylgjast með
högum fatlaðra á framangreindum
heimilum fatlaðra að eigin frum-
kvæði. Skal hann í því skyni
heimsækja heimili fatlaðra
reglubundið og kynna sér hagi
hinna fötluðu á sviði einkalífs og
fjármuna.“ Það er ljóst að hér er
verið að tala um annað og meira en
hjáverk. Sem dæmi má nefna að
sambýli fatlaðra sem lög þessi taka
til eru yfir 20 í Reykjavrk að ótöldum
þeim sambýlisformum öðrum sem
hér heyra undir. Nýráðnum
trúnaðarmanni Svæðisráðsins í
Reykjavrk eru ætlaðir 27 tímar á
mánuði til að uppfy Ila framangreinda
starfsskyldu sína og að taka á þeim
málum sem komið er með til hans.
Þetta er fáránlegt.
Varanleg vonbrigði?
Lög, hversu vel sem þau eru samin
og af hve góðum hug þau eru sprottin,
koma að litlum notum ef þeirn er
ekki fylgt eftir í verki. Ef litið er til
þess árs sem liðið er frá gildistöku
laganna mætti ætla að lítill hugur
fylgdi þessari réttarbót. Sé það
afsökun stjómvalda að þörfin hefði
verið óljós í upphafi er sú afsökun
ekki lengur til staðar - þörfin á meira
vinnuframlagi ogbættri starfsaðstöðu
svæðisráða er nú öllum ljós sem það
vilja sjá. Verði ekki tekið mið af
reynslu þessa árs munu þær vænt-
ingar sem fatlað fólk hefur bundið
við svæðisráðin leysast upp í
vonbrigði.
Allt annaðen stóraukin fjárveiting
til svæðisráða stríðir gegn þeim
lögum sem svæðisráðunum erætlað
að standa vörð um.
Halldór Gunnarsson.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS