Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Side 48
Séra Magnús Guðmundsson ritstjóri:
Parkinsonsamtökin
á Islandi tíu ára
Greinarhöfundur með tveim forystukonum samtakanna, Kristjönu Millu
og konu sinni, Aslaugu.
Aárinu 1983, nánar til tekið 3.
desember, var haldinn í Reykja-
vík stofnfundur félags parkinsonsj úkl-
inga og aðstandenda þeirra. Var þá
félaginu valið nafnið Parkinsonsam-
tökin á Islandi og kosin fyrsta stjóm
samtakanna en hana skipuðu: Jón Óttar
Ragnarsson formaður, Bryndís
Tómasdóttir varaformaður og aðrir í
stjórn: Hulda Guðmundsdóttir,
Kristjana Milla Thorsteinsson og
Magnús Bjömsson. Kristjana Milla
Thorsteinsson hefur ein setið í
stjórninni frá upphafi, fyrst sem ritari,
en lengst af sem gjaldkeri. Stjórnina
skipa nú auk Kristjönu Millu: Aslaug
Sigurbjörnsdóttir formaður, Stein-
grímur Thorsteinsson varaformaður,
Guðríður Pétursdóttir ritari, Ólafur
Sverrisson meðstjórnandi. I vara-
stjórn: Lárus Þórarinsson og Pálmi A.
Arason. Sl. 7 ár hefur Áslaug gegnt
formannsstörfum og sl. 6 ár hefur
Magnús Guðmundsson verið umsjón-
armaður fréttabréfs samtakanna sem
kemur út fjórum til fimm sinnum á ári.
Segja má að einn helsti hvatamaður
að stofnun Parkinsonsamtakanna
hafi verið frú Lise Hoffmeyer þáver-
andi formaður danska parkinsons-
félagsins sem mætti ásamt manni
sínum, Henrik Hoffmeyer lækni, á
undirbúningsfund sem haldinn var í
Lögbergi 20. júní 1983. Þar lýsti hún
í stórum dráttum markmiði og
starfsemi danska parkinsonsfélagsins:
1. Að nýta þá félagslegu þjónustu sem
fyrirfinnst í þjóðfélaginu.
2. Að styðja og létta undir með
aðstandendum í daglegum vanda-
málum þeirra.
3. Að vísa á sérfræðiþjónustu og
endurhæfingu, þ.e. sjúkraþjálfun,
iðjuþjálfun, og talþjálfun og ráðgjöf
af ýmsu tagi.
4. Að stuðla að sambandi milli sjúkl-
inga annars vegar og aðstandenda
þeirra hins vegar.
5. Að senda út fréttabréf og veita
aðstoð og upplýsingar með síma-
þjónustu.
6. Að veita fé til rannsókna á park-
insonsveiki.
Var kjörin undirbúningsnefnd á
þessum fundi og voru í henni þeir sem
síðan mynduðu fyrstu stjórn sam-
takanna, svo og nokkrir aðrir.
StarfParkinsonsamtakannasl. 10
ár hefur helst einkennst af
fræðslu- og skemmtifundum á vetuma,
ferðum á sumrin, útgáfu fréttabréfs og
bæklinga um sjúkdóminn og er þar
veigamestur bæklingurinn Parkin-
sonsveiki eftir Göran Steg prófessor í
Gautaborg sem svarar flestum spum-
ingum sem bornar eru upp um sjúk-
dóminn. Við þjálfun sjúklinga hafa
samtökin átt athvarf hjá MS-félaginu
að Álandi 13 og hjá Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra á Háaleitisbraut
11-13.
Á Akureyri er svo deild sam-
takanna sem starfar sjálfstætt undir
forystu Kristínar Jóhannsdóttur.
Magnús Guðmundsson.