Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1993, Blaðsíða 50
í BRENNIDEPLI
Fjárlagaafgeiðsla stendur fyrir
dyrum. Hún skiptir miklu fyrir
alla samfélagshópa, en ekki sízt ræður
hún miklu um hag og heill fatlaðra í
landinu. Farið verður næst yfir helztu
þætti fjárlaganna sem varða fatlaða
mestu, en endanleg afgreiðsla bíður
nú Alþingis og vonandi verður hún til
góðs. Ljóst er þó að ýmsar alvarlegar
blikur eru á lofti fyrir þá sem minnst
hafa handa á milli, þó á orði sé haft að
þeim skuli helzt hlíft.
Senn liðið ár hefur greinilega ekki
fært fötluðum of marga ávinninga, þó
þá megi finna, en ýmsar kárínur í þess
stað s.s. var í upphafi árs með breyting-
um í skattamálum svo og ýmsum end-
urgreiðsluþáttum trygginganna og á
ýmsan veg auknum tilkostnaði, þó
ákvæði vorsins um þá sem harðast
yrðu úti þar kæmi ýmsum til góða.
Umræða haustsins um heilsukort
eða tekjutengd iðgjöld eða einhverja
aðra skattainnheimtu til heilbrigðis-
kerfisins hefur öll verið hin undarleg-
asta og sveiflur verið miklar. Okkur
hér á bæ er ljóst að öll viðbótarskatt-
heimta sem kemur á einhvern hátt við
okkar fólk er því mörgu hverju alger-
lega ofviða. Nóg er að gert nú þegar.
Við skulum vona að sú fjáröflunarleið
sem farin verður að endingu hitti þá
eina fyrir sem eiga gott með að greiða
meira til samfélagsins. Af þeim er
býsna mikið á landi hér og til þeirra
þarf að ná, einkum þó þeirra sem falið
getatekjur sínarog svíkjaþannig sam-
félagið um réttmæta þátttöku í kostnaði
þess.
Umræðan um húsaleigubæturnar
og lægri uppbót um leið úr trygginga-
kerfinu til öryrkj a hefur líka á villigöt-
um lent, því fjarri fer því að uppbót
trygginganna sé einvörðungu við
húsaleigu miðuð heldur ýmiss konar
aukakostnað sem fötlun fylgir.
Mörgum tekjulágum öryrkjanum
bregður í brún við álagningarseð-
ilinn sinn þegar hann er allt í einu
kominn í skuld vegna Framkvæmda-
sj óðs aldraðra, því þar munar um þe ssa
upphæð, þó engan hafi ég heyrt sjá
eftir fjármununum í þágu aldraðra.
Sama gerist þegar ljóst verður að
aðstoð frá félagsmálastofnunum, oft
sértæk neyðaraðstoð, kemur til frá-
dráttar á sérstakri heimilisuppbót
næstu mánaða og fólk þar með komið
í vissan vítahring sem það hafði ekki
hugmynd um. Það væri hollt hverjum
og einum sem hefur með málefni fatl-
aðra að gera, allt upp í æðstu valdastóla
og þó einkum þar, að virða fyrir sér
aðstæður fatlaðra og við hvaða kjör
þeir búa og gera sér þess um leið ljósa
grein að þar munar um hvert þúsund.
Vonandi fæst þó á þessu ranglæti ein-
hver leiðrétting sem allra fyrst.
Bótaþegar trygginga slysatryggja
sig t.d. með merkingu á skattaskýrslu
gagnvart slysum við heimilisstörf og
greiða þar fyrir smáa upphæð að vísu,
en ef slys hendir er engar bætur að
hafa, vegna lagaákvæðis um að ekki
megi saman fara almennar trygginga-
bætur og bætur slysatrygginga.
Blessunarlega fá fatlaðir bifreiða-
eigendur benzínpeninga, en hin-
ir sem ekki eiga, en þurfa þó oft á
bifreið að halda, fá ekki neitt.
Eingreiðslumar sem umræða hefur
verið um að fella niður, en ekki er að
óreyndu trúað að verði, enda
samningsrof af lakasta tagi, þær
greiðslur koma mjög misjafnt til fatl-
aðra, sakir þess að ekki er við tekju-
tryggingu miðað. Eins og í svo mörgu
öðru eru þetta aðgerðir í skerðingarátt.
I óteljandi horn er því að líta í ótal
greinum og er þó fátt eitt talið hér. Þau
vandamál fólkssemhérábæerfengist
við daglega eru ótrúlega fjölbreytt en
fyrst og síðast afar alvarleg og illleys-
anleg um leið.
Á þau vandamál má í engu bæta
og vonandi vísar endanleg afgreiðsla
fjárlaganna í aðra átt og heilladrýgri
til lausnar og léttis.
*
Hér hjá Öryrkjabandalagi íslands
hafa þau tíðindi helzt verið í
brennidepli að formannsskipti hafa
orðið í bandalaginu.
Amþór Helgason hefur gegnt starfi
formanns bandalagsins síðustu sjö ár
og farizt það starf farsællega úr hendi,
hann hefur verið óþreytandi við að
vekja athygli á baráttumálum
bandalagsins og leitanýrra sóknarleiða
í málefnum fatlaðra. Glögg yfirsýn
mála og ríkur skilningur á því sem
máli skiptir hafa verið einkenni hans.
Hann hefur verið ágætur fulltrúi
bandalagsins út á við, ötull merkisberi
í mörgu þörfu máli, einarður og ódeig-
ur. Honum eru einlæglega þökkuð vel
unnin störf hingað til, því enn eigum
við Arnþór að sem stjómarmann í
bandalaginu og í öðrum trúnaðar-
störfum fyrir það. Sömuleiðis væntir
ritstjóri Fréttabréfsins þess að það
megi njóta hans góðu rithæfileika hér
eftir sem áður.
Nýjan formann bjóðum við vel-
kominn til starfa. Ólöf Ríkarðsdóttir
er reynd félagsmálakona sem hvar-