Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2020, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.05.2020, Qupperneq 6
snýr fyrst og fremst að því að leysa þau krefjandi verkefni sem blasa við stjórnmálum dagsins og vinna fyrir fólkið í landinu.“ Ekki bárust svör frá Katrínu Jak- obsdóttur forsætisráðherra, Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, Sigurði Inga Jóhanns- syni, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og sá þingmaður sem setið hefur lengst á þingi af núverandi þingmönnum, svaraði svona: „Þeir fyrstu sem fá að vita mitt svar við þessari spurningu í fyllingu tímans eru félagar mínir í Norðausturkjör- dæmi.“ Steingrímur hefur setið á þingi frá árinu 1983. einarthor@frettabladid.is Enn er langt til kosninga og því ekki tímabært að velta slíku fyrir sér. Gunnar Bragi Sveinsson, þing- flokksformaður Miðflokksins Meðal annars má nýta hitann frá brennsluofninum til rafmagnsframleiðslu. Ævintýrið hefst í Brimborg! Kauptu eða leigðu ferðabílinn fyrir sumarævintýrið Kauptu nýjan eða notaðan ferðabíl eða leigðu sumarbílinn í Brimborg. Öll bílaþjónusta á einum stað. Byrjaðu ævintýrið í Brimborg! Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 og 8 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 STJÓRNMÁL Kosningar fara að óbreyttu fram á næsta ári en sam- kvæmt stjórnskipan lýkur kjör- tímabilinu í október á næsta ári. Rætt hefur verið um að halda kosn- ingar fyrr en eftir því sem Frétta- blaðið kemst næst hefur engin ákvörðun verið tekin um það. Fréttablaðið sendi eftirfarandi spurningu þann 6. maí til allra 63 alþingismannanna: Ætlar þú að gefa kost á þér áfram í næstu alþingis- kosningum? Svarmöguleikar voru já, nei og óákveðin/n. Alls bárust svör frá 42 þing- mönnum en 21 þingmaður svaraði ekki þótt fyrirspurnin hefði verið ítrekuð þann 12. maí. Sextán þing- menn sögðust ekki vera búnir að gera upp hug sinn en 26 sögðust vera ákveðnir í að gefa kost á sér aftur. Svör einstaka þingmanna má sjá á frettabladid.is. Margir þeirra sem sögðust vera óákveðnir sögðu ótímabært að velta mögulegu framboði fyrir sér. Enn væri langt til næstu kosninga og ýmislegt gæti breyst. „Fyrir hönd þingf lokks Miðf lokksins var mér falið að svara þessum pósti á þeim nótum að enn er langt til kosninga og því ekki tímabært að velta slíku fyrir sér,“ segir í svari Gunnars Braga Sveinssonar. Af þeim tíu ráðherrum sem eiga sæti á Alþingi bárust aðeins svör frá fjórum: Áslaugu Örnu Sigur- björnsdóttur dómsmálaráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanrík- is- og þróunarsamvinnuráðherra, Svandísi Svavarsdóttur heilbrigð- isráðherra og Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráð- herra. Áslaug, Guðlaugur og Svan- dís ætla að gefa kost á sér að nýju, en í svari Lilju segir: „Ég hef ekki tekið ákvörðun um framboð. Minn hugur Fjórir af hverjum tíu ákveðnir Enginn af þeim sitjandi þingmönnum sem svöruðu fyrirspurn Fréttablaðsins hyggst hætta á þingi eftir kjörtímabilið. Fyrirspurn var send til allra þingmanna um hvort þeir hygðust gefa kost á sér áfram. n Ætla að gefa kost á sér 26 n Óákveðnir 16 n Svöruðu ekki 21 41,3% 25 ,4% 33,3% ✿ Margir ákveðnir VIÐSKIPTI Mikil aukning hefur orðið í sölu á heitum pottum síð- ustu vikur og eru þeir víða uppseld- ir á meðan beðið er eftir sendingum. Sundlaugar landsins hafa verið lok- aðar frá 23. mars síðastliðnum, en verða opnaðar aftur á mánudaginn. „Við bjuggumst við þessu og eigum nóg af pottum. Það koma sex gámar eftir helgina,“ segir Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Heitra potta. Uppblásnir heitir pottar eru upp- seldir í Hagkaupum. „Við höfum sannarlega fundið fyrir auknum áhuga landsmanna á Lay Z Spa pott- unum okkar. Það varð algjör spreng- ing í sölu og þeir seldust allir upp í kringum páskana,“ segir Margrét Björk Jónsdóttir, markaðsfulltrúi Hagkaupa. „Við eigum von á nýrri sendingu síðar í sumar ef allt gengur eftir, og margir sem bíða. Fáum fjöl- margar fyrirspurnir á hverjum degi.“ Kristján Berg telur sig vita hvers vegna ásóknin er svo mikil. „Fólk er að hugsa um sjálft sig og fjölskylduna. COVID-faraldurinn er búinn að breyta hugsunarhætti fólks. Heitur pottur er ódýrasta leiðin til að láta sér líða vel,“ segir Kristján Berg. „Þú kaupir einn pott sem dugar í tuttugu ár, svo er það andvirði einnar pitsu að reka hann á mánuði. Þetta kostar það sama og að fara einu sinni í mánuði með þriggja manna fjölskyldu í sund.“ – ab Beðið eftir sendingum af heitum pottum Fjölmargir hafa eignast heitan pott síðustu vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL UMHVERFISMÁL Sorpstöð Rangár- vallasýslu hyg gst koma upp brennsluofni á urðunarstaðnum á Strönd í Rangárþingi ytra fyrir dýrahræ og aðrar dýraleifar. Í ofninum verður hægt að brenna allt að fjögur þúsund tonn af dýra- hræjum á ári að því er segir í tillögu að matsáætlun fyrir framkvæmd- ina. „Með ákvörðun stjórnar Sorpu bs. um að hætta að taka við úrgangi frá Suðurlandi til urðunar í Álfsnesi og með breyttum áherslum hjá Kölku er ljóst að þessar förgunar- leiðir eru ekki lengur til staðar. Auk heldur uppfyllir urðun dýrahræja ekki þær kröfur sem gerðar eru í lögum og reglugerðum um förgun dýraleifa,“ segir í matsáætluninni. Þá segir að brennsluofninn á Strönd verði liður í lausn á bráðum vanda sem skapast hafi af þessum sökum. Ofninn af kasti allt að sjö hundruð kílóum á klukkustund. „Brennslan í brennsluofninum á sér stað við allt að 850°C hita og við það breytist lífræna efnið í ösku, útblástur og hita. Askan sem mynd- ast er að mestu gerð úr ólífrænum hluta úrgangsins og endar annað- hvort sem harðir kögglar eða duft,“ segir í matsáætluninni. Meðal ann- ars megi nýta hitann frá ofninum til rafmagnsframleiðslu. Strönd á Rangárvöllum er norðan Suðurlandsvegar, miðja vega milli Hellu og Hvolsvallar og er jörðin nú í eigu Sorpstöðvar Rangárvalla- sýslu. Á svæðinu eru þegar gámar fyrir mismunandi úrgangsflokka, stórt aðstöðuhús og minna móttökuhús, auk annarra mannvirkja. „Ekki er gert ráð fyrir að umrædd starfsemi hafi í för með sér veruleg áhrif á umhverfið umfram það sem fylgir þeirri starfsemi sem fyrir er,“ segir í matsáætluninni. – gar Nýr brennsluofn annar fjögur þúsund tonnum af dýrahræjum Brennsluofn leysir bráðan vanda. Enginn þeirra þingmanna sem svöruðu hyggst hætta á þingi að yfirstandandi kjörtímabili loknu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Nánar á frettabladid.is 1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.