Fréttablaðið - 14.05.2020, Side 8
BRETLAND Á sunnudag tilkynnti
Boris Johnson afléttingu sóttvarna-
takmarkana í þremur skrefum.
Slagorði baráttunnar var breytt
úr „Vertu heima“ í „Vertu á verði.“
Þetta lagðist hins vegar illa í Skota,
Walesverja og Norður-Íra og nú er
svo komið að munurinn á milli Eng-
lands og annarra landa Stóra-Bret-
lands hefur ekki verið meiri í 300 ár.
Árið 1998 var ákveðið að hinar
fjórar þjóðir Stóra-Bretlands hefðu
allar sjálfstæði í mótun heilbrigðis-
stefnu. Þetta gerir leiðtogum í Edin-
borg, Cardiff og Belfast kleift að
stýra hvernig að afléttingu verður
staðið.
Munurinn er margvíslegur. Eng-
lendingar hafa ákveðið dagsetningu
fyrir opnun skóla en ekkert hinna
landanna. Það sama á við hvatn-
ingu fyrir ýmsa atvinnustarfsemi.
Englendingar og Norður-Írar leyfa
ferðalög til líkamsræktar en hin
löndin ekki. Walesverjar einir hafa
ekki tekið afstöðu um hvort fólk
eigi að hylja vit sín í fjölmenni.
Löndin eru öll að fara sínar eigin
leiðir og Walesverjar meira að segja
búið til sitt eigið slagorð, „Vinsam-
legast haldið áfram að vera heima“.
Leiðtogar Skotlands, Wales og
Norður-Írlands hafa allir hafnað
boðskap Johnsons. „Fyrir Skot-
land væri það glapræði að hætta
með „Vertu heima“ slagorðið núna,
miðað við hversu viðkvæm staðan
er,“ sagði Nicola Sturgeon, fyrsti
ráðherra Skotlands.
Um 230 þúsund tilfelli hafa
greinst í Bretlandi, og undanfarið
um þrjú þúsund á dag. Dánartíðnin
er óvenju há, 33 þúsund, og aðeins
í Bandaríkjunum hafa f leiri fallið í
valinn. Í gær var tilkynnt um tæp-
lega 500 ný dauðsföll.
Stjórnmálaskýrendur eru farnir
að tala um að þessar ólíku aðferðir
landanna raungeri muninn á hinum
fjórum löndum Stóra-Bretlands
fyrir almenningi. Það sem er löglegt
í einu landi er ólöglegt í öðru. Einnig
að þetta gæti skipt miklu máli fyrir
sjálfstæðissinna. – khg
Bretland gliðnar í afléttingu takmarkana
Launasjóður
listamanna
auglýsir
600 mánaða aukaúthlutun
vegna sérstakra aðgerða ríkisstjórnar Íslands
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Launasjóð listamanna
vegna aukaúthlutunar sem byggir á aðgerðum ríkisstjórnar
til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs
kórónuveiru.
Listamenn geta sótt um 1-6 mánuði til að sinna afmörkuðum
verkefnum, skv. 12. gr. laga um listamannalaun, 2. mgr.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar er að þessu sinni ekki
tekið á móti umsóknum frá listamönnum sem þegið hafa
12 mánaða úthlutun eða meira á árinu 2020.
Umsóknum skal skilað fyrir miðnætti 25. maí 2020.
Skrifstofa Rannís lokar kl. 16.
Samanlögð starfslaun árið 2020 miðast við
2.200 mánaðarlaun:
Starfslaun hönnuða verða 69 mánaðarlaun
- aukaúthlutun 19 mánuðir
Starfslaun myndlistarmanna verða 598 mánaðarlaun
- aukaúthlutun 163 mánuðir
Starfslaun rithöfunda verða 763 mánaðarlaun
- aukaúthlutun 208 mánuðir
Starfslaun sviðslistafólks verða 261 mánaðarlaun
- aukaúthlutun 71 mánuður
Starfslaun tónlistarflytjenda verða 248 mánaðarlaun
- aukaúthlutun 68 mánuðir
Starfslaun tónskálda verða 261 mánaðarlaun
- aukaúthlutun 71 mánuður
Umsóknareyðublað er á vefslóðinni
www.listamannalaun.is
Nota þarf rafræn skilríki við innskráningu.
Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum.
Fyrirspurnum er svarað á listamannalaun@rannis.is
Nánari upplýsingar:
listamannalaun@rannis.is
STJÓRNSÝSLA Ríkisútvarpið náði
ekki lágmarksviðmiðum um kaup
af innlendum sjálfstæðum fram-
leiðendum árið 2019 sem miðað er
við í þjónustusamningi RÚV við
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið. Þetta kemur fram í gögnum
sem Fréttablaðið fékk afhent eftir
úrskurð úrskurðarnefndar um upp-
lýsingamál.
Samkvæmt þjónustusamningn-
um bar RÚV að verja að lágmarki 11
prósentum af heildartekjum sínum
til kaupa á utanaðkomandi fram-
leiðslu. Í ársreikningi RÚV segir
að heildartekjur hafi numið 6,87
milljörðum. Námu kaupin af sjálf-
stæðum framleiðendum 722 millj-
ónum króna í fyrra og er það undir
viðmiðinu.
Fram kemur í ársskýrslu RÚV að
upphæðin sé 766 milljónir króna,
sem er yfir viðmiðinu. Talan sem
gefin er upp í ársskýrslunni er
44 milljónum króna hærri upp á
krónutölu. Engar skýringar hafa
fengist hjá RÚV á þessu misræmi
þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir.
Samningaviðræður standa nú yfir
milli ráðuneytisins og RÚV um
nýjan þjónustusamning til næstu
fjögurra ára.
Fréttablaðið hefur fengið yfirlit
af öllum greiðslum til sjálfstæðra
framleiðenda á árunum 2016 til
2019. Greiðslur fyrir árin 2016 og
2017 hafa verið aðgengilegar á
vef Alþingis frá því síðasta haust.
Ríkisútvarpið lagðist gegn því að
afhenda yfirlitin fyrir árin 2018 og
2019 og bar fyrir sig að í gögnunum
kæmu fram upplýsingar um mikil-
væga fjárhags- og viðskiptahags-
muni viðsemjenda félagsins. Þeim
rökum hafnaði úrskurðarnefndin
og voru gögnin því afhent nú í maí.
Samkvæmt upplýsingum frá fjöl-
miðlanefnd þarf sjálfstæður fram-
leiðandi að vera fyrirtæki til að falla
undir skilgreininguna. Í gögnunum
er að finna fjölmarga einstaklinga
sem skilgreindir eru sem sjálfstæðir
framleiðendur. Fjölmiðlanefnd
hefur fjórum sinnum gert mat á
starfsemi Ríkisútvarpsins. Í nýjasta
matinu, fyrir árið 2017, sem kom út
í lok síðasta árs, eru birtar sömu
tölur og í ársskýrslu RÚV. Segir í
svari nefndarinnar að nefndin byggi
matið á ársskýrslunni og greinar-
gerð frá RÚV en geri ekki sjálfstæða
útreikninga.
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri
hugverkasviðs Samtaka Iðnaðar-
ins, segir að vinnubrögð RÚV orki
tvímælis. „Yfirlitin benda til þess að
verið sé að fella almenn viðskipta-
sambönd og aðkeypta þjónustu frá
hinum ýmsu aðilum undir kaup
á efni frá sjálfstæðum framleið-
endum. Við höfum efasemdir um
að þetta samræmist upprunalegu
markmiði ríkisins um að efla sjálf-
stæða framleiðslu,“ segir Sigríður.
Meðal þess sem er f lokkað sem
sjálfstæð framleiðsla eru greiðslur
til þáttastjórnenda í þáttum sem
framleiddir eru af RÚV.
Sigríður segir að hún voni að nýr
þjónustusamningur ríkisins við
RÚV taki á þessu. „RÚV teygir sig
mjög langt í skilgreiningu á því hvað
telst sjálfstæður kvikmyndafram-
leiðandi. Við teljum að með því sé
vegið að hagsmunum greinarinnar.“
Yfirlit yfir alla sjálfstæða fram-
leiðendur RÚV og greiðslur til þeirra
á árunum 2016 til 2019 má nálgast
í heild sinni á vef Fréttablaðsins,
frettabladid.is. arib@frettabladid.is
Tugmilljóna misræmi
ársskýrslu og gagna
Ríkisútvarpið náði ekki lágmarksviðmiðum ráðuneytis um kaup af sjálfstæð-
um framleiðendum. Tugmilljóna misræmi er milli ársskýrslu og gagna. Sam-
tök iðnaðarins segja skilgreiningar RÚV vega að kvikmyndaframleiðendum.
Ríkisútvarpið lagðist gegn því að yfirlitið um greiðslur til framleiðenda yrði gert opinbert. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fyrir Skotland væri
það glapræði að
hætta með „Vertu heima“
slagorðið núna, miðað við
hversu viðkvæm
staðan er.
Nicola Sturgeon,
fyrsti ráðherra
Skotlands
RÚV teygir sig mjög
langt í skilgrein-
ingu á því hvað telst sjálf-
stæður kvikmyndafram-
leiðandi. Við teljum að með
því sé vegið að hagsmunum
greinarinnar.
Sigríður Mogen-
sen, sviðsstjóri
hugverkasviðs SI
RÚSSLAND Sex sjúklingar með
COVID-19 létust eftir að eldur
kviknaði í gær á gjörgæsludeild
á sjúkrahúsi í St. Pétursborg. Er
þetta annar slíkur bruni í Rúss-
landi á skömmum tíma, um helg-
ina lést einn sjúklingur eftir að
eldur kviknaði á gjörgæsludeild í
Moskvu. Beinast spjótin að önd-
unarvélunum, en báðar deildirnar
notuðu sama búnað. Samkvæmt
CNN er sakamálarannsókn hafin
á eldsvoðunum.
Alls eru 232 þúsund tilfelli stað-
fest í Rússlandi, f lest í Moskvu eða
121 þúsund. Þá eru 2.212 staðfest
dauðsföll í landinu. Vladimír Pútín
Rússlandsforseti hefur verið í sjálf-
skipaðri einangrun á heimili sínu í
Novo-Ogaryovo síðan í apríl.
Lækkun á olíuverði hefur haft
slæm áhrif á efnahag landsins og
hefur Pútin verið gagnrýndur fyrir
að nota ekki varasjóði landsins til
að örva efnahagslífið. Í sjónvarps-
ávarpi á mánudaginn sagði hann
að örvun efnahagslífsins væri hans
helsta forgangsverkefni. – ab
Annar bruni á gjörgæsludeild
Sakamálarannsókn er hafin á tveimur eldsvoðum í Rússlandi. MYND/EPA
1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð