Fréttablaðið - 14.05.2020, Qupperneq 18
NÝIR TÍMAR Í
SAMGÖNGUM
Rafhjólatrygging TM er sérsniðin trygging
fyrir rafknúin farartæki. Kláraðu málið á tm.is.
ÞÚ FÆRÐ RAFHJÓLATRYGGINGU Á TM.IS
HUGSUM Í FRAMTÍÐ
FÓTBOLTI Sadiq Khan, borgarstjóri
Lundúna, er ekki hrifinn af þeirri
hugmynd að fara að spila fótbolta í
höfuðborginni. Ekki meðan hund
ruð manna eru enn að deyja vegna
COVID19. Enska úrvalsdeildin
stefnir að því að byrja að spila um
miðjan næsta mánuð eftir að ríkis
stjórnin gaf grænt ljós á að hefja
æfingar og keppni 1. júní.
„Borgarstjórinn vill að allar
íþróttir hefjist en landið er nú samt í
miðjum COVIDstormi og hundruð
deyja á hverjum degi. Hans skoðun
er að það sé of snemmt að ræða um
endurkomu íþrótta í höfuðborg
inni,“ sagði talsmaður Khans við
Evening Standard.
Fimm úrvalsdeildarfélög eru í
London en borgarstjórinn styður
sjálfur Liverpool og hefur viður
kennt að hann myndi fagna mikið
og jafnvel lengi fari deildin af stað
enda er Liverpool með níu fingur á
bikarnum sem félagið hefur beðið
eftir í 30 ár.
„Deildin getur aðeins farið af stað
þegar það er öruggt og má ekki setja
auka byrðar á herðar fólks í fram
línunni,“ bætti talsmaðurinn við.
Bannað að tækla
Samkvæmt 40 blaðsíðna skýrslu,
sem Sky Sport komst yfir og enska
deildin sendi félögunum munu leik
menn verða prófaðir fyrir COVID
19 tvisvar í viku en mælt við komu
á æfingu hvort þeir séu með hita.
Þeir mega ekki koma saman í bíl
á æfingar og ekki fara saman eftir
þær. Þeir eiga að mæta tilbúnir þar
sem búningsklefarnir eru lokaðir.
Þá þurfa þrjú bílastæði að vera á
milli bíla þeirra. Bannað verður að
tækla og leikmenn munu æfa fimm
saman til að byrja með í hámark
London vill ekki sjá fótbolta
Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, er ekki hrifinn af því að byrja að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Leikmenn hittu forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar í gær þar sem farið var yfir næstu skref.
Mikael Arteta, stjóri Arsenal, með æfingu fyrir faraldurinn. Hann smitaðist
af veirunni. Arsenal er eitt af fimm félögum í London. MYND/GETTY
Næstu dagar
Í dag hittast enska úrvals-
deildin, leikmannasamtökin
og samtök knattspyrnustjóra.
Seinni partinn hittast menn-
ingar- og íþróttamálaráðherra
og knattspyrnuyfirvöld.
Á mánudag er næsti fundur
ensku úrvalsdeildarinnar en þá
mega leikmenn liða snúa aftur
á æfingasvæði félaganna. Þann
25. maí þarf enska úrvalsdeildin
að vera búin að skila til UEFA
hvernig deildin á að byrja á ný
og 1. júní mega leikmenn byrja
að spila samkvæmt tillögum
bresku ríkisstjórnarinnar. Stefnt
er að því að byrja enska boltann
þann 12. júní.
75 mínútur. Leikmenn eru hvattir
til að vera með andlitsgrímur eða
buff fyrir vitunum. Þá verða vellir
og annar æf ingabúnaður sótt
hreinsaðir eftir hverja æfingu. Ef
leikmaður meiðist þarf læknir sem
er með hanska, svuntu og grímu að
sinna honum. Leikmaður sem hefur
dvalist erlendis þarf að fara í 14 daga
sóttkví.
Forseti leikmannasamtakanna
sagði á Sky Sport að leikmenn hefðu
engan áhuga á því að vera einhvers
konar tilraunadýr en veiran hefur
sett yfir 32 þúsund Breta í gröfina.
Leikmannasamtökin og deildin
hittust á fundi í gær þar sem fram
haldið var rætt. BBC greindi frá því
í gær að það hefði heimildir fyrir því
að fjölmargir leikmenn hefðu lítinn
áhuga á því að spila. Sérstaklega
þeir sem hafa asma og aðra undir
liggjandi sjúkdóma.
benediktboas@fretttabladid.is
ÍÞRÓTTIR „Það er ekkert að fjármál
um KR og ég skil ekki alveg hvernig
þessi umræða verður til,“ segir Gylfi
Dalmann Aðalsteinsson, formaður
KR.
Töluvert hefur verið rætt og
ritað um skuldir KR eftir að skýrsla
Reykjavíkurborgar sýndi að félagið
skuldaði 200 milljónir árið 2018. Þá
var fullyrt í hlaðvarpinu Dr. Football
að knattspyrnudeildin stæði höllum
fæti. Gylfi segir að hann sé formaður
aðalstjórnar og sé ekki inni á öllum
fundum deildanna, en KR er með ell
efu deildir innan sinna raða. „Ég hef
ekki heyrt þessa umræðu. Auðvitað
eru mörg félög og margar deildir í
varnarbaráttu þessa stundina en
aðalstjórn KR stendur mjög vel og
þar með félagið allt.“
Hann segir að þegar horft er á
skuldahliðina gleymist oft að horfa
á eignahliðina. „Við erum félag sem
á og rekur eignir á svæðinu. Sum
félög í Reykjavík eiga ekki eignir og
það er hægt að líkja þessu saman
að vera í leiguhúsnæði eða eiga ein
býlishús.“
Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR,
sagði í þættinum Sportið í dag á
Stöð 2 sport, í kjölfar skýrslu borg
arinnar, að KR væri vel rekið félag
og ætti eigið fé upp á einn og hálfan
milljarð í fasteignum eða mann
virkjum. „Geri aðrir betur,“ segir
Gylfi léttur með litlar áhyggjur af
umræðunni.
„KR er Íslandsmeistari í fót og
körfubolta og stóð sig vel kvenna
megin í sömu greinum. Við erum
með frábærar deildir. Þetta er trú
lega 1090 reglan. Ef 10 prósent
gengur ekki vel þá fara 90 prósent
af tímanum að ræða það.“ – bb
Fjármál KR eru í lagi
KR-ingar eru meistarar í fótbolta og körfubolta karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI Alþjóðaíþróttadómstóll
inn hefur sett mál enska knatt
spyrnusambandsins gegn FIFA á
dagskrá hjá sér þann 24. júní. Enska
sambandið er að sækja málið fyrir
hönd Chelsea sem var dæmt í félaga
skiptabann í febrúar árið 2019 fyrir
brot á samningum við yngri leik
menn. Chelsea var bannað að kaupa
leikmenn í tveimur félagaskipta
gluggum en eftir að hafa áfrýjað til
íþróttadómstóls Evrópu var refsing
in milduð. Chelsea byrjaði að nota
unga og efnilega leikmenn í bann
inu sem mörgum sparkspekingum
þótti skemmtileg nýbreytni. – bb
Mason Mount, leikmaður Chelsea.
FÓTBOLTI Emil Hallfreðsson, lands
liðsmaður hjá Padova í Seríu C, segir
í viðtali við hlaðvarpið Steve Dag
skrá að hann útiloki ekki að spila
með FH í sumar þegar samningur
hans við félagið rennur út. Emil
æfir með FH þessa dagana enda
enginn fótbolti spilaður á Ítalíu.
Emil er með samning til 30. júní og
ætlar að taka stöðuna þá. „Ég ætla
að sjá fyrst hvað gerist með deildina
mína. Það er verið að tala um að fara
beint í umspil og ef það er mögu
leiki þá verður það skemmtilegast
í stöðunni. Þetta kemur bara í ljós.
FH er samt alltaf minn klúbbur. Það
er alveg á hreinu,“ sagði Emil meðal
annars. – bb
Hvorki af né á
hjá Emil um FH
FA stefnir FIFA
1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT