Fréttablaðið - 14.05.2020, Page 25
Þuríður Ottesen, eigandi Bóel, segir að það sé sannkallaður sumarblær í versluninni
þessa dagana. „Við fengum nýja
sendingu af Trippen skóm fyrr í
vikunni en það er sumarlína þessa
vinsæla skóframleiðenda. Það er
góð fjárfesting í Trippen skóm því
þeir endast lengi. Sumir viðskipta-
vinir sem koma í verslunina ganga
enn á tuttugu ára gömlum Trippen
sem enn eru flottir og í fullu fjöri,“
segir hún. „Þeir sem hafa kynnst
Trippen skónum vita að þeir
eru nánast ódrepandi fyrir utan
hversu þægilegir þeir eru. Fyrst og
fremst eru þeir fallegir og öðru-
vísi,“ bætir Þuríður við.
Umhverfisvæn framleiðsla
„Trippen skófyrirtækið var stofnað
árið 1990 og hefur haft að leiðar-
ljósi að hanna og gera endingar-
góðan og smart skófatnað sem
sömuleiðis sker sig svolítið frá ann-
arri skóhönnun,“ upplýsir Þuríður.
„Þeir sem velja Trippen skera sig úr
fjöldanum en skórnir undirstrikar
persónuleika þess sem skartar
skónum. Þá hafa umhverfis-
sjónarmið ávallt verið fyrirtækinu
hugleikin og er leðrið til að mynda
litað með jurtalitum. Trippen
hefur verið í samstarfi við helstu
hönnuðu heims á borði við Iris van
Herpen, Issey Miyake og Nicholas
K, Situationist svo einhverjir séu
nefndir.
Handgerðir skór
Allir skór frá Trippen eru hand-
gerðir í verksmiðju fyrirtækisins
sem er staðsett um 60 km frá
Berlín. Við í Bóel höfum selt
Trippen frá því í október en fyrsta
sendingin seldist strax upp. Við
fundum fyrir mikilli ánægju
viðskiptavina okkar sem þekktu
merkið og gátu núna eignast nýja
Trippen skó. Margir líta á Trippen
sem ákveðinn lífsstíl og það er
gaman þegar viðskiptavinir tala
um listaverk í þessu sambandi,“
segir Þuríður.
Vor- og sumarlínan frá Trippen
einkennist af skóm í stálgráum
lit, brons og platínu. Einnig fást
þeir í svörtu og rauðu. „Allir ættu
að eiga eina Trippen skó enda
liggur áherslan um þessar mundir
á að kaupa sjaldnar og velja góð
gæði,“ segir hún og bendir á að nú
sé tækifæri til að eignast Trippen
með 20% afslætti.
Geggjaðir Trippen skór á afslætti
Það er sumarstemming hjá Bóel á Skólavörðustíg og af því tilefni er 20% afsláttur af Trippen sum-
arskóm sem eru nýkomnir til landsins. Margir munu fagna tilboðinu sem stendur frá 14.-18. maí.
Þuríður Ottesen
og Anna María
Jónsdóttir
fyrir utan Bóel á
Skólavörðustíg.
Í versluninni er
að finna mikið
úrval af glæsi-
legum skóm
frá Trippen,
óvenjulegum og
töff fyrir konur
sem vilja vera
öðruvísi. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Skórnir frá Tripper eru til í mörgum litum og gerðum og eru með 20% afslætti til 18. maí. Það verður því hægt að gera góð kaup í Bóel á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Óhefðbundnar leiðir
Trippen fyrirtækið hefur verið
leiðandi í því að fara eigin leiðir í
hönnun og framleiðslu. Skórnir
eru óhefðbundnir og höfða til
vandlátra viðskiptavina. Það má
eiginlega segja að Trippen brjóti
allar tískureglur í skóhönnun sinni
því þeir eru einstakir á sinn hátt.
Skórnir eru tímalausir og sömu-
leiðis ekki bundnir við árstíðir.
Unnið er með mismunandi efni og
liti í hágæða hönnun. Trippen hefur
mikið lagt upp úr góðri vinnu-
aðstöðu fyrir starfsmenn sína.
Samfélagsleg ábyrgð er í fyrirrúmi
hjá fyrirtækinu auk umhverfis-
sjónarmiða. Þá er framleiðsluferlið
vistvænt og nýsköpun mikil.
Stærstu verslanir Trippen eru í
Þýskalandi, París, Bretlandi, Ísrael,
Taívan, Kína, Mongólíu og Banda-
ríkjunum. Að auki selja aðrar 450
verslanir um allan heim Trippen
skó.
Fyrir utan Trippen skó býður
Bóel upp á frjálslegan og töff kven-
fatnað auk snyrtivara.
Verslunin Bóel er á Skólavörðu-
stíg 22, sími 834-1809. Heima-
síðan er boel.is en hún er í vinnslu
og verður fljótlega komin í fulla
notkun. Bóel er bæði á Facebook
og Instagram þar sem hægt er að
fylgjast með nýjum vörum þegar
þær koma í verslunina.
Þeir sem hafa
kynnst Trippen
skónum vita að þeir eru
nánast ódrepandi fyrir
utan hversu þægilegir
þeir eru. Fyrst og fremst
eru þeir fallegir og öðru-
vísi.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 1 4 . M A Í 2 0 2 0