Fréttablaðið - 14.05.2020, Side 28
Billie Eilish grunaði varla í janúar
að flest fólk í heiminum væri komið
með andlitsverju svo stuttu síðar.
Löngu áður en meirihluti fólks fór að ganga með and-litsverjur vegna COVID-19
mætti söngkonan Billie Eilish með
Gucci-maska fyrir nefi og munni á
Grammy-verðlaunaafhendinguna
í janúar. Fáir hefðu trúað því þá að
andlitsverjan yrði nauðsynlegur
hluti þess sem fólk klæðist stuttu
síðar. Landslagið hefur gjörbreyst
á nokkrum mánuðum og nú hafa
frægustu tískuhönnuðir ekki
undan að sauma andlitsgrímurnar,
jafnt fyrir heilbrigðisstarfsfólk
sem almenning.
Þótt varla verði sagt að andlits-
verjan sé tískuvara þá kappkosta
margir að setja alls kyns tískuútlit
á þær. Þannig sagðist þekkt banda-
rísk áhrifakona á netinu hafa
fengið Prada-andlitsverju með
skónum sem hún pantaði frá fyrir-
tækinu. Sömuleiðis eru Armani
og Fendi að framleiða grímur auk
Saint Lauren og Balenciaga.
Saumastofa Ralph Lauren fram-
leiddi 250 þúsund andlitsverjur
en langflestar fóru til heilbrigðis-
starfsmanna og voru þær gjöf
frá hinum fræga tískuhönnuði.
Einnig hefur stórverslanakeðjan
GAP boðað að þar sé verið að
sauma grímur og sömuleiðis Zara,
Mango og H&M. Þá hefur lúxus-
merkið Canada Goose boðað stóra
sendingu af andlitsmöskum til
heilbrigðisstarfsfólks í Kanada.
Fleiri eru að sauma grímur eins
og Warner Bros sem er að útbúa
Hello Kitty og fleiri andlitsverjur
fyrir börn með þekktum fígúrum
úr teiknimyndum.
Ekki má gleyma að Louis Vuitt-
on er að þróa handsótthreinsi
vegna Covid-19 veirunnar.
Tískumerkin hanna andlitsverjur
Það er notalegt að dekra við hend-
urnar heima fyrir. MYND/GETTY
Á tímum sem þessum er til-valið að dekra við neglurnar heima. Hér eru þrjú góð ráð
sem vert er að hafa í huga.
1) Gefðu nöglunum frí frá akrýl
og geli. Það er mikilvægt að
leyfa nöglunum að jafna sig á
milli meðferða, ekki síst vegna
efnanna sem notuð eru til að
fjarlægja efni. Þá er freistandi að
plokka þegar lakkið losnar sem
getur hreinlega skemmt jafnvel
heilbrigðustu neglur.
2) Notaðu olíur og krem. Það
munar heilmiklu að gæta þess
að neglurnar eða svæðið í kring
sé ekki þurrt. Þetta er ekki síður
áríðandi nú þegar handþvottur
og notkun á sótthreinsivörum
er orðinn stór og órjúfanlegur
hluti af daglegu lífi.
3) Notaðu og vertu með naglaþjöl
meðferðis. Ef neglurnar eru ekki
í góðu ástandi þá er mikilvægt
að halda þeim hæfilega stuttum.
Einnig er gott að geta brugðist
við strax ef það brotnar af nögl
og pússa nöglina niður eins
fljótt og hægt er.
Heilbrigðar
neglur
Það er bæði elegant og smart að
skarta ökklabandi úr glóandi gulli.
Eitt af því heitasta sem hægt er að skreyta sig með í sumar eru ökklabönd af öllu tagi en
ekki síst sem elegant skartgripur
úr gulli, silfri, með eðal steinum
eða perlum. Fagurt og glitrandi
ökklaband setur punktinn yfir
i-ið á fallegum fæti, við kjóla, pils,
stuttbuxur jafnt og síðbuxur, já,
hvar sem skín í sólgullið hörund.
Ökklabönd voru síðast í tísku á
níunda og tíunda áratug síðustu
aldar en nú er sem sagt aftur hæst-
móðins að skreyta fótleggina svo
eftir sé tekið. Sumum henta látlaus
og fínleg ökklabönd en aðrir eru
djarfari og glysgjarnari og nú segja
tískuvitar að það megi sannarlega
skarta ökklaböndum sem líta út
eins og dýrgripir og njóta sumar-
trendsins til fulls.
Tekið á löpp
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R