Fréttablaðið - 14.05.2020, Page 32

Fréttablaðið - 14.05.2020, Page 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elskuleg systir okkar og mágkona, Gréta Halldórsdóttir fv. bankaritari, Orrahólum 7, lést á Vífilsstöðum sunnudaginn 10. maí sl. Jarðarförin auglýst síðar. Björn Halldórsson Auður Gilsdóttir Sigrún Halldórsdóttir Hafþór Edmond Byrd Guðmundur Halldórsson Hólmfríður Rögnvaldsdóttir Hrafnhildur Halldórsdóttir John DeMarco og systkinabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Lilja Helga Gunnarsdóttir lést þann 9. maí síðastliðinn. Útför verður auglýst síðar. Ingimundur Magnússon Magnús Ingimundarson Brynhildur Ingvarsdóttir Gunnar Ingimundarson Hrund Sch. Thorsteinsson Bolli Þór Bollason Hrefna Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Auður Linda Zebitz Brúnavegi 9, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Mánateigi, miðvikudaginn 6. maí. Starfsfólki Mánateigs eru færðar alúðar- þakkir fyrir einstaklega góða aðhlynningu. Í ljósi aðstæðna verður eingöngu nánasta fjölskylda viðstödd útförina sem fer fram 18. maí. Ólafur Kristinsson Ásta Ólafsdóttir Kristinn Guðni Ólafsson Ingunn Ingimarsdóttir Guðrún Ólafsdóttir Erlingur Bótólfsson barnabörn og barnabarnabörn. Sýrlendingarnir hafa lent í sömu erfiðleikum og Íslendingar undanfarnar vikur og upp-lifað einangrun, vinnu- og tekjutap, segir Liljana Milan-koska, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Húnaþings vestra í málefnum flóttamanna. Þar settust 23 Sýrlendingar að um miðjan maí 2019 og 21 á Blönduósi. Liljana segir mikla samvinnu hafa verið milli sveitarfélaganna undanfarið. „Við gerðum sameiginlegan Facebook- hóp fyrir sýrlensku fjölskyldurnar og þar hefur túlkur sett inn upplýsingar á arabísku daglega vegna COVID-19,“ nefnir hún sem dæmi. „Til að kynnast íbúum hér, utan hópsins og stuðnings- fjölskyldnanna, hvöttum við flóttafólk- ið í upphafi til að sækja íþróttaæfingar, jóga og sund og umgangast almenning en síðustu mánuði hefur það auðvitað ekki virkað vegna samkomubannsins,“ bendir Liljana á. Eðlilegt að sakna Nú eru sýrlensku fjölskyldurnar að upp- lifa ramadan í fyrsta sinn á Íslandi, frá byrjun til enda, en Liljana segir börnin enn of ung til að fasta. „Hefðin er sú að borða milli klukkan 22.30 til 03.40 en tíminn styttist miðað við sólsetur og sólarupprás á Íslandi og reynsla fólks- ins af ramadan hér er önnur en í gamla heimalandinu,“ segir hún. „Í arabísku löndunum hægist á sam- félaginu á þessu tímabili, fólk þarf meiri svefn yfir daginn, orkan er lítil og skiln- ingur samfélagsins á því er almennur, til dæmis hjá vinnuveitendum. Það er því eðlilegt að fólk finni fyrir heimþrá meðan á þessari stóru hátíð stendur og sakni venja tengdra henni, eins og að skiptast á matarréttum við nágrannana og hafa meiri fjölbreytileika í máltíðum og næringu en ella.“ Vel þekkt er að líðan fólks sem f lýr heimaland sitt og flyst í allt aðra menn- ingu og umhverfi er oft nokkuð góð í byrjun, að sögn Liljönu. Fólkið leggi sig allt fram um að aðlagast samfélaginu og foreldrar kappkosti að styðja börnin í að venjast nýju umhverfi svo þeim vegni sem best bæði í skóla og utan. „En nokkrum mánuðum síðar kemur oft bakslag og dýfa,“ segir hún. Þá getur fólk haft þörf fyrir að vinna úr áföllum og ýmsum vandamálum. Hún tekur fram að í Húnaþingi hafi f lóttamönnunum staðið til boða aðstoð bæði frá íslenskum sálfræðingi sem hafi oft unnið við móttöku f lóttamanna á Íslandi og einnig frá arabískumælandi sálfræðingi frá Palestínu. „Það ætti að auðvelda fólki að opna sig ef það getur rætt á sínu móðurmáli við sálfræðing sem kemur úr sama menningarheimi og umhverfi og það sjálft.“ Upplifir sig heima Liljana kveðst stolt af hópnum sem kom frá Sýrlandi á Hvammstanga og hvernig honum hafi gengið að takast á við erfið- leika, til dæmis ofviðri vetrarins og veiruna illræmdu. „Fólkið er duglegt og samvinnufúst og leggur sig fram um að aðlagast. Það er ánægt með að búa á Hvammstanga og upplifir sig heima hér, svo almennt gengur mjög vel með verkefnið. En mér finnst líka mikilvægt að fólkið finni sig ekki skuldbundið til að vera á Hvammstanga eftir að verkefninu lýkur, ef það langar annað. Ég hef oft sagt við það að um leið og fjölskyldurnar eru nógu sterkar til að geta gert það sem þær vilja, f lytja, fara í nám eða aðra vinnu annars staðar og prófa eitthvað nýtt á Íslandi, þá höfum við náð markmiðum okkar.“ gun@frettabladid.is Sólargangurinn styttir matartímann í ramadan Slétt ár er síðan 44 sýrlenskir flóttamenn settust að í Húnaþingi. Þá eins og nú stóð yfir föstumánuður múslima, ramadan. Fólkinu hefur vegnað vel þrátt fyrir ógnir eins og ofviðri og veiru. Liljana Milankoska hjúkrunarfræðingur fylgist með líðan þess. „Við gerðum sameiginlegan Facebook-hóp fyrir sýrlensku fjölskyldurnar og þar hefur túlkur sett inn upplýsingar á arabísku daglega vegna COVID-19,“ segir Liljana. Lítið eitt um Liljönu Liljana er hjúkrunarfræðingur og lokaritgerð hennar fjallaði um sál- ræna velferð sýrlenskra flóttabarna á Íslandi. Hún stundar nú meistara- nám í heilbrigðisvísindum við HA og leggur áherslu á sálræna líðan, áföll og ofbeldi. Sjálf hefur hún frætt nema í heilbrigðisvísindum við HA um móttöku flóttamanna á Íslandi. Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff gengu í hjónaband þennan mánaðar- dag árið 2003. Þau voru gefin saman af sýslumanninum í Hafnarfirði, Guðmundi Sophussyni, eftir mikla afmælishátíð sem haldin var í Borgar- leikhúsinu í tilefni af sextugsafmæli forsetans. Brúðkaupsathöfnin var látlaus og fór fram í Bessastaðastofu að fjöl- skyldu forsetans viðstaddri. Það var í fyrsta skipti í sögunni sem forseta- brúðkaup fór fram á Bessastöðum. Dorrit vakti strax athygli og vann fljótlega hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar. Hún var áberandi í for- setakosningunum árið 2012, til marks um það var vefslóðin á heimasíðu framboðs Ólafs Ragnars þá olafurog- dorrit.is. Hún tók líka virkan þátt í embættisstörfum Ólafs Ragnars alveg þangað til hann lét af embætti, árið 2016. Þ E T TA G E R Ð I S T: 14 . M A Í 2 0 0 3 Ólafur Ragnar og Dorrit gengu í það heilaga Merkisatburðir 1769 Karl 3. Spánarkonungur sendir trúboða til Kaliforníu og er það upphaf landnáms hvítra manna þar. 1796 Edward Jenner bólusetur átta ára dreng, James Phipps, við kúabólu, það er fyrsta bólusetningin. 1919 Átta klukkustunda vinnudagur var lögfestur í Dan- mörku. 1948 David Ben-Gurion, forsætisráðherra lýsti yfir stofnun Ísraelsríkis. 1955 Varsjárbandalagið er stofnað í Varsjá í Póllandi. Tilgangur þess er að vera mótvægi við Atlantshafsbanda- lagið (NATO). 1965 Fyrsta Fokker Friendship-flugvél Flugfélags Íslands kemur til landsins, 2004 Friðrik krónprins Dana og Mary Elizabeth Donald- son frá Ástralíu eru gefin saman í hjónaband. 1 4 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.