Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.01.2020, Page 14

Víkurfréttir - 02.01.2020, Page 14
Anna Lóa Ólafsdóttir: Byrjaði á bók árið 2019 sem kemur út á nýju ári Hvað stendur upp úr í einkalífi þínu á árinu? F-in 3, fjallgöngurnar, ferðalögin (fór í fjórar óvæntar ferðir á árinu) og felli- bylurinn á Spáni. Var í jógaferð og hef sjaldan upplifað annan eins óróa eins og þegar stærðarinnar tré lenti á húsinu sem ég dvaldi í. Best var að nágranni minn hélt að ég hefði dottið úr rúminu! Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða byrjaðir þú á einhverju nýju 2019? Byrjaði á bók, draumurinn minn er að rætast og þrammaði upp á fjöll eins og enginn væri morgundagurinn. Hver fannst þér stóra fréttin á landsvísu? Óveðrið um daginn, að heimili og bæir séu án rafmagns í marga daga árið 2019 hlýtur að þykja fréttnæmt. Hver fannst þér stóra fréttin í nærumhverfi þínu? Hundurinn Dexter sem bættist í fjöl- skylduna. Er enn pínu hrædd við hann en hlýtur að gilda það sama og með fólk, slatti af þolinmæði, aga og kær- leika og við verðum bestu vinir. Hvað borðaðir þú um áramótin? Kalkún með fyllingu og sætum kart- öflum, sykurpúðasalati og dásamlegri sósu. Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir hjá þér? Fjölskyldan er saman á miðnætti. Við fylgjumst með gamla árinu fjara út og tökum á móti því nýja. Óskum hvort öðru gleðilegs nýs árs og grátur og/eða hlátur aldrei langt undan. Strengir þú áramótaheit? Já, geri það oft. Núna bíð ég spennt eftir bókinni minni (áætluð 20.02.20) og kem til með að fylgja henni eftir. Annars hafa áramótaheitin síðustu árin verið að segja oftar JÁ, sem hefur gert það að verkum að ég hef gert ótrúlega mikið af skemmtilegum hlutum. Þetta verður því áfram ár JÁ-sins! Hvað stendur upp úr í einkalífi þínu á árinu? Að takast á við alveg nýtt hlutverk sem er vandasamt, ábyrgðarmikið, skemmtilegt, gefandi og tilfinn- ingaríkt þar sem hamingjan marg- faldast. Ég er sem sagt að tala um afahlutverkið! Að kynnast nýjum ein- staklingi, tengjast og sjá afastrákinn þroskast og dafna og ekki síður for- eldrana blómstra í hlutverkum sínum. Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða byrjaðir þú á einhverju nýju 2019? Já, ég var kjörinn í stjórn KSÍ í febrúar en knattspyrna er ástríða mín. Af- skaplega skemmtilegt og gefandi áhugamál og gaman að komast á völlinn og hitta fólk í hreyfingunni. Hver fannst þér stóra fréttin á landsvísu? Samherjamálið slær öllu öðru við. Hver fannst þér stóra fréttin í nærumhverfi þínu? Að Grindavík, ÍBV og Ipswich Town féllu öll og Mývetningur varð bikar- meistari (utandeildarliða á Norður- landi). Hvað borðaðir þú um áramótin? Við erum ansi sveigjanleg með gaml- ársdag og höfum bara það sem okkur dettur í hug hverju sinni. Við vorum með léttreyktan lambahrygg í fyrra sem mæltist vel fyrir. Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir hjá þér? Já, yfirleitt hefur stórfjölskyldan í Grindavík verið saman á gamlárs- kvöld, þá er líf og fjör. Stundum hafa verið gerð áramótamyndbönd þar sem yngri kynslóðin fer á kostum. Fyrsta myndbandið var gert árið 2000 og hét Maðurinn sem stal ár- þúsundinu! Strengir þú áramótaheit? Að verða víðsýnni og ærlegri en árið áður! Þorsteinn Gunnarsson: Afahlutverkið stendur upp úr á nýliðnu ári Birgitta Jónsdóttir-Klasen: Súrkál með pylsum færir góða lukku Hvaða stendur upp úr í einkalífi þínu á árinu? Að vera ennþá á lífi. Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða byrjaðir þú á einhverju nýju 2019? Í raun ekki mikið, ég var bara ánægð að fá meðhöndlun við krabbameini, með- ferð sem heldur væntalega áfram árið 2020 til að klára þá meðferð. Kannski fer ég til Spánar eftir það. Hver fannst þér stóra fréttin á landsvísu? Samherji, starfsfólk hér á landi sem átti ekki að standa í þessu. Hver fannst þér stóra fréttin í nærumhverfi þínu? Að Ljósanótt er orðin tuttugu ára og hvað það er allaf gaman að taka þátt. Hvað borðaðir þú um áramótin? Súrkál með pylsum, það er sagt færa góða lukku fyrir nýja árið, búin að gera það nú þegar í 45 ár! Hefur virkað í þrjátíu ár. Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir hjá þér? Að fara snemma að sofa. Strengir þú áramótaheit? Já, ég geri það. Heilsa mín er fyrst og fremst aðalatriðið. Svo er ég að klára þriðju bókina mín en í þetta skipti fyrir þýskan markað. Ég vona að bókin komi á markað árið 2020. Svo langar mig að ferðast hringinn í kringum Ísland og kannski ferðast til Spánar. Hvaða stendur upp úr í einkalífi þínu á árinu? Safari ferðalag um Úganda með stóra bróður og fjöldskyldu. Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða byrjaðir þú á einhverju nýju 2019? Flutti frá Mið-Afríkulýðveldinu í enda árs 2018 og byrjaði í nýju starfi í Guinea Bissau fyrir sama vinnu- veitanda með tilheyrandi áskorunum. Hver fannst þér stóra fréttin á landsvísu? Ísland og sjávarútvegurinn í Namibíu. Elvar Þór Ólafsson: Byrjaði að æfa þríþraut í haust Hvað stendur upp úr í einkalífi þínu á árinu? Að ég hafi lést um 20 kg síðan í sumar. Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða byrjaðir þú á einhverju nýju 2019? Já, ég byrjaði að æfa þríþraut í haust. Hver fannst þér stóra fréttin á landsvísu? Er alltaf jafn hissa að fólk skuli ennþá aðhyllast Miðflokkinn. Hver fannst þér stóra fréttin í nærumhverfi þínu? Að Skálmöld séu að fara í pásu eftir tíu ára stuð. Hvað borðaðir þú um áramótin? Nauta-Ribeye í trufflusmjöri. Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir hjá þér? Er nýbyrjaður að fara Klemmann á gamlársdag. Stefni á að fara hann aftur í ár, a.m.k. hluta af honum. Strengir þú áramótaheit? Nei, man ekki eftir því að hafa gert það í gegnum tíðina. Birgir Guðbergsson: Stóra fréttin er Ísland og sjávarút- vegurinn í Namibíu UPPGJÖR VIÐ ÁRAMÓT Marta Eiríksdóttir marta@vf.is 14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.