Víkurfréttir - 02.01.2020, Page 15
Hvað stendur upp úr í einkalífi þínu
á árinu?
Bætt heilsa eiginmannsins sem hefur
náð sér vel eftir veikindi. Hann greind
ist með krabbamein í lunga og fór í að
gerð í ágúst 2018 þar sem hægra lungað
var að mestu fjarlægt. Um síðustu jól
og áramót var hann mjög slappur eftir
erfiða lyfjagjöf. Við vorum óviss um
framhaldið en á nýju ári fór allt upp á
við og hefur hann náð sér vel af þessum
veikindum. Hann er kominn í líkams
þjálfun hjá Janusi og byrjaður að vinna.
Mér finnst það standa upp úr á árinu.
Auk þess útskrifaðist elsta barnabarnið
sem stúdent og annað fermdist. Það
er þakkarvert að halda heilsu og fá
að njóta þess að fylgjast með barna
börnunum vaxa og dafna.
Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða
byrjaðir þú á einhverju nýju 2019?
Það var mikill áfangi að ná að setja upp
sögusýningu úti í Höfnum um James
townstrandið á Ljósanótt. Sagan um
strandið (árið 1881) og hvað varð um
farm skipsins, sem voru m.a. 100 þús
und viðarplankar, hefur átt hug minn
Hvað stendur upp úr í einkalífi þínu
á árinu?
Margt gott stendur upp úr í einkalífinu
hjá mér á árinu, t.d. heimsóknir fjöl
skyldumeðlima og langömmubarna
til mín í Linz, Austurríki. Heimsókn
74 Oddfellowsystra til mín til Linz.
Tvö fjölskyldubrúðkaup, áttunda lang
ömmubarnið bættist í hópinn.
Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða
byrjaðir þú á einhverju nýju 2019?
Já, ég fagnaði þeim áfanga að verða 73
ára, er með góða heilsu til að ferðast og
njóta þess sem mér þykir best, að vera
með fjölskyldu og vinum. Að geta enn
verið með barnabarnabörnin og að geta
enn farið á skíði mér til skemmtunar.
Hver fannst þér stóra fréttin á
landsvísu?
Opnun nýrra líknaherbergja á HSS
sem var verkefni sem Oddfellowreglan
á Suðurnesjum hefur staðið fyrir og
gaf Suðurnesjamönnum til notkunar.
Strengir þú áramótaheit?
Hef aldrei strengt áramótaheit og kem
til með halda þeirri hefð að eyða ára
mótum með fjölskyldu og vinum og
fagna lífinu.
Hvað stendur upp úr í einkalífi þínu
á árinu?
Elsku pabbi minn vann bug á alvar
legum veikindum sínum, held hann
sé búinn til úr stáli.
Fagnaðir þú ákveðnum áfanga eða
byrjaðir þú á einhverju nýju 2019?
Við fluttum til Bretlands, erum rétt hjá
Oxford og ég eignaðist tvo listdansskóla
þar á grunn og framhaldsskólastigi.
Eigum núna heima þar og á Íslandi!
Hver fannst þér stóra fréttin á
landsvísu?
Brjálað óveður og Ísland ekki í stakk
búið til þess að díla við það!
Hver fannst þér stóra fréttin í
nærumhverfi þínu?
Íhaldsflokkurinn vann og brexit heldur
áfram.
Hvað borðaðir þú um áramótin?
Hangikjöt, rauðkál, brúnaðar kartöflur
og allskonar gúmmelaði, ásamt ís og
eftirrétt.
Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir
hjá þér?
Fara á brennu og skjóta upp flugeldum.
Horfa á árið fjara út ... syngja hástöfum
„Nú árið er liðið“, fella tár af söknuði
yfir þeim sem farnir eru og geta síðan
ekki annað en brosað í gegnum tárin
yfir kampavínskorkadansinum í sjón
varpinu.
Strengir þú áramótaheit?
Halda áfram að elska hvern dag sem
ég lifi og njóta lífsins í botn!
Hvað stendur upp úr í
einkalífi þínu á árinu?
Björn, sonur minn, og Dodda Maggý,
tengdadóttir mín, eignuðust son á
árinu. Það er yndislegt að verða amma,
ólýsanlega góð tilfinning. Hann er
fallegastur allra og heitir Baldur Ómi.
Ég er mjög hamingjusöm. Það sem
stendur líka upp úr eru allar sam
verustundirnar sem ég hef átt með
börnunum mínum, við vinnum mikið
saman og samverustundirnar með fjöl
skyldunni allri, þær gleðja mig mest.
Fagnaðir þú ákveðnum
áfanga eða byrjaðir þú á
einhverju nýju 2019?
Já, ég keypti mér árskort í Borgar
leikhúsinu, það er svo gaman að fara
í leikhús. Það er mikilvægt að njóta
lífsins, listin og lestur góðra bóka gefur
manni mikið.
Hver fannst þér stóra
fréttin á landsvísu?
Þegar vinur minn, Sveinbjörn Gizurar
son, prófessor við Háskóla Íslands,
fékk samþykkt í Bandaríkjunum nýtt
lyf við bráðameðferð við flogaveiki.
Lyfið heitir Nayzilam og er nefúði,
notað við bráðaflogum eða raðflogum
og eykur lífsgæði þeirra sem að glíma
við flogaveiki. Þetta er árangur rann
sókna hans sem hann byrjaði á fyrir
30 árum síðar. Sveinbjörn er héðan
úr Njarðvík, þetta er stórkostlegur
árangur og við bíðum bara eftir því
að fá að selja lyfið hans hér á landi.
Hver fannst þér stóra fréttin
í nærumhverfi þínu?
Már Gunnarsson er stóra fréttin og
vonin okkar á Suðurnesjum, frábær
fyrirmynd í alla staði. Hann sýnir hvað
hægt gera ef að viljinn er fyrir hendi.
Hann er hæfileikaríkur listamaður og
Íþróttamaður ársins. Ólympíumeistari
í sundi. Tónleikaranir sem hann hélt í
Hljómahöllinni á árinu voru stórkost
legir, diskurinn með tónlistinni hans
er yndislegur, ég hef hann í bílnum hjá
mér hlusta á hann alla daga.
Hvað borðaðir þú um áramótin?
Ég er vön að borða heit svið um ára
mótin með rófustöppu. Það var engin
undatekning í ár. Ég fæ alltaf vatn í
munninn við tilhugsunina.
Eru einhverjar áramóta-/
nýárshefðir hjá þér?
Vera saman með fjölskyldunni, fara á
brennu og horfa saman á áramótas
kaupið, skjóta síðan upp flugeldum
sem keyptir hafa verið hjá Björgunar
sveitinni. Fagna og gleðjast saman með
fjölskyldunni.
Strengir þú áramótaheit?
Ekki eiginlega en þó lætur maður
hugann reika, lítur um öxl og hugsar
svo um komandi ár. Nú er ég til dæmis
alveg ákveðin í því að dekra við sjálfa
mig, hreyfa mig, kaupa kort í Massa,
stunda jóga og fara reglulega í sund.
Vera duleg að fara á skíði þá daga
sem leyfa og fara á hestbak, fara í
útreiðatúra á Mánagrundinni með
félögunum þar. Það er mikilvægt að
njóta lífsins með gleði í hjarta og með
virðingu fyrir umhverfinu. Ég ætla að
hafa það að leiðarljósi.
Bryndís Einarsdóttir:
Við fluttum til
Bretlands og
búum rétt hjá
Oxford
Hver fannst þér stóra fréttin í
nærumhverfi þínu?
Guinea Bissau hefur verið notað
sem stökkpallur með hörð eiturlyf
frá SuðurAmeríku til Evrópu. Árið
2019 var mjög árangursríkt við að
ná þessum efnum. Þau fóru ekkert
lengra, voru brennd á staðnum.
Hvað borðaðir þú um áramótin?
Það kom matarboð frá Íslandi.
Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir
hjá þér?
Áramótahefð er einföld ef ég er á
Íslandi; matur, brenna, skaup og svo
eru það raketturnar.
Strengir þú áramótaheit?
Engin áramótaheit en gef mér þó tíma
til að líta nokkur ár til baka, vitandi
að nýi eða framhaldskaflinn sem er
að byrja er ekki sjálfgefinn.
Sigríður Pálína Arnardóttir:
Ólýsanlega góð tilfinning að vera amma
Helga Margrét Guðmundsdóttir:
Að börn mættu til að mótmæla á hverjum föstudegi
undanfarin ár. Af því tilefni afhentum
við í Áhugahópnum sýningargripi til
Byggðasafns Reykjanesbæjar. Ég er
þakklát að hafa slíkt áhugamál og mun
það fylgja mér inn í eftirlaunaárin. Ég
náði einnig þeim áfanga að fara í viku
ferð um Vestfirði þar sem rætur mínar
liggja. Mjög áhugavert var að dvelja
daglangt út í Vigur og kynnast betur
fyrrum byggð á Snæfjallaströndinni
sem er liður í að fræðast meira um
ævi Sigvalda Kaldalóns. Svo má ég nú
til að nefna að ég var svo heppin að fá
að fagna 30 ára afmæli Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna með börnum
20. nóvember sl. á Barnaþingi í Hörpu
þar sem börnin ræddu við fullorðið
fólk um það sem helst brennur á þeim.
Hver fannst þér stóra fréttin á
landsvísu?
Að barnamálaráðherra skuli hafa boðað
breytingar í þágu barna og að börn
hafi mætt á Austurvöll föstudag eftir
föstudag til að láta rödd sína heyrast í
loftlagsmálum. Eða kannski stóra fréttin
sé að eyjan Vigur var seld. Mér finnst
það líka stór frétt að fjárfestir skuli eiga
stórt landsvæði á NorðAusturlandi og
jafnvel svo að ábúendur viti ekki hver á
jörðina sem þeir búa á eða nærliggjandi
veiðiár og jarðir.
Hver fannst þér stóra fréttin í
nærumhverfi þínu?
Það var náttúrlega óvenjugott sumar.
Sunnanlands og vestan telst það í hópi
þeirra hlýjustu og sólríkustu. Held að
það hafi verið það fimmta hlýjasta í
Reykjavík frá upphafi mælinga. Ég var
því óvenju mikið í garðinum mínum.
Svo er gott að sjá vinnu við tvöföldun
Reykjanesbrautar frá Straumsvík að
Kaldárselsvegi. Nokkur alvarleg slys
hafa orðið á þessum kafla og gott að
bæta umferðaröryggið.
Hvað borðaðir þú um áramótin?
Við erum yfirleitt með fylltan kalkún á
gamlársdag. Graflax í forrétt og heima
lagaðan ís með Marssósu í eftirrétt. Við
höfðum þetta bara hefðbundið núna.
Eru einhverjar áramóta-/nýárshefðir
hjá þér?
Hefðirnar felast aðallega í því að fjöl
skyldan er saman. Ég hef lagt það í
vana minn að fara í langan göngutúr
á nýársdag og bjóða nýtt ár velkomið.
En mér finnst stundum erfitt að kveðja
gamla árið og verð oft meyr um mið
nætti og þegar ég heyri lagið „Nú árið
er liðið“ en á nýársdag er nýtt upphaf
og að lokinni göngunni fæ ég mér heitt
súkkulaði og jólasmákökur. Byrja svo
á nýrri dagbók.
Strengir þú áramótaheit?
Nei, löngu hætt að fara í megrun eða
matarkúra. Fer reglulega í sund og
heilsurækt. Ég bara tek á móti nýju
ári með bjartsýni og von um bættan
hag og blóm í haga. Vona að maður
haldi heilsu og hafi sína nánustu sem
lengst og mest hjá sér. Ég er svo heppin
að eiga fjórar yngri systur og gott að
rækta vináttuna. Jú, svo er að læra betur
á snjallúrið, símann og fjarstýringuna
... hæfir það ekki aldrinum vel?
Sigrún Hauksdóttir:
Nýtur þess að ferðast
og fara á skíði
15 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg. 14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR