Víkurfréttir - 16.01.2020, Síða 1
Átt þú rétt á
slysabótum?
Við hjálpum þér
að leita réttar þíns
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
HAFÐU SAMBAND 511 5008
UMFERÐASLYS
VINNUSLYS
FRÍTÍMASLYS
Fyrsta barn ársins á Suðurnesjum fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
á þrettándanum, 6. janúar. „Þetta verður skemmtilegur afmælisdagur hjá
drengnum í framtíðinni,“ sögðu ungu foreldrarnir, þau Marín Hrund
Jónsdóttir og Jón Aðalgeir Ólafsson, en þau áttu fyrir eina dóttur, Glódísi
Lind, þriggja ára. Hún fæddist sama dag og þegar Ísland vann England á
EM í knattspyrnu. Það var því tvöfaldur fögnuður þann daginn.
Fæðingin núna gekk vel hjá Marín sem fór á fæðingardeildina í Keflavík um
kl. 18 og stráksi var kominn í heiminn um fjórum klukkustundum síðar.
Hún vildi koma þakklæti á framfæri til fæðingardeildarinnar. „Það var
yndislegt að fæða í Keflavík og svo eru konurnar frábærar eins og allir vita,“
sagði Marín Hrund.
„Skemmtilegur afmælis-
dagur hjá drengnum“
– Fyrsta barn ársins fæddist á þrettándanum
Ljósmóðir á fæðingardeild Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja segir að
heilsufarsleg vandamál þjóðfélagsins
séu stærri í dag en áður með vaxandi
tíðni offitu, sykursýki og hjarta- og
æðasjúkdóma. Fæðingum hefur
fækkað mikið á fæðingardeild HSS
á undanförnum árum, m.a. vegna
lokunar skurðstofu. Um jólin 1982
voru þrettán fæðingar á deildinni á
HSS. Nú voru þær þrjá síðustu tvær
vikur desembermánðar.
„Við erum að sjá hærra hlutfall
kvenna með meðgöngusykursýki og
háþrýsting sem krefst nánara eftirlits
á meðgöngu. Heilsufarsleg vandamál
kvenna á meðgöngu eru því mun stærri
í dag en áður,“ segir Heiða B. Jóhanns-
dóttir, ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, í viðtali við Víkurfréttir.
Nánari umfjöllun er á blaðsíðu 4 þar
sem við rifjum við upp metfjölda fæð-
inga og fleira á HSS.
Heilsa verðandi
mæðra verri
180 fengu næturstað í íþróttahúsi
Um 180 ferðamenn gistu í fjöldahjálparstöð í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík aðfaranótt mánudags vegna
ófærðar og röskunar á samgöngum á sunnudagskvöld. Rauði krossinn á Suðurnesjum sá um fjöldahjálparstöðina og
sagði Hannes Friðriksson, formaður, að ferðalangarnir sem leituðu skjóls í fjöldahálparstöðinni hafi farið þokkalega
ánægðir frá Reykjanesbæ. Fjallað er nánar um óveðrið og samgöngur á Suðurnesjum í blaðinu í dag. Myndina tók
Páll Ketilsson í fjöldahálparstöðinni þegar næturgestirnir voru að pakka saman farangri sínum og halda heim á leið.
Keilir hefur óskað
var eftir því að
Samband sveitar-
félaga á Suður-
nesjum kaupi
40% hlut í skóla-
húsnæði Keilis.
Vegna þessa hefur
stjórn S.S.S. lagt
til að bæjarráð allra aðildarsveitarfélaga
Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
fundi ásamt framkvæmdastjóra Keilis
til að fara yfir erindið.
Eignist 40% í skóla-
húsnæði Keilis
Í desember 2019 fengu 118 einstakl-
ingar greiddan framfærslustyrk frá
Reykjanesbæ, alls voru greiddar
17.134.428 krónur. Í sama mánuði
2018 fengu 86 einstaklingar greiddan
framfærslustyrk.
Alls fengu 197 einstaklingar greiddan
sérstakan húsnæðisstuðning sveitar-
félagsins í desember, samtals 2.691.602
krónur. Í sama mánuði 2018 fengu 149
einstaklingar greiddan sérstakan hús-
næðisstuðning sveitarfélagsins.
Fleiri fá styrk
til færslu
Opnunartími Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
Opnum snemma
lokum seint
Fljótlegt og þægilegt!
Þykkvabæjar Plokkfiskur
600 gr
MS Smjörvi
400 gr
Stellu Rúgbrauð
999
kr/pk
áður
1.399 kr
29%
fimmtudagskvöld kl. 20:30
á Hringbraut og vf.is
„Vertu me“í Reykjanesbæ
MEÐAL EFNIS Í ÞESSARI VIKU
Djúpsteikt svið
með Bernaise!
LÍKAMSRÆKT
VIÐ SKRIFBORÐIÐ
fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222