Víkurfréttir - 16.01.2020, Qupperneq 6
Helstu verkefni markaðsstjóra eru:
• Umsjón og skipulag sölu- og markaðsstarfs
• Gerð markaðs- og söluáætlana
• Samskipti við viðskiptavini
• Umsjón samskiptamiðla og heimasíðu
• Framkvæmd þjónustukannana
• Innri markaðssetning
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Stjórnunarreynsla
• Reynsla af verkefnastjórnun
og gerð markaðsáætlana
• Reynsla af stafrænni markaðssetningu
• Miklir samskipta- og skipulagshæfileikar
• Sjálfstæði, frumkvæði
og brennandi áhugi á markaðsmálum
• Lausnamiðuð hugsun og jákvæðni
• Afburða leiðtoga- og stjórnunarhæfni
Skólamatur ehf. er
fjölskyldufyrirtæki
sem býður upp á
hollan, ferskan mat
– eldaðan frá grunni
fyrir leik- og grunn-
skóla. Fyrirtækið
þjónustar um fimm-
tíu mötuneyti á suð-
vesturhorni landsins
og eru starfsmenn
þess rúmlega eitt-
hundrað og tuttugu.
Skólamatur ehf. auglýsir eftir umsóknum í stöðu markaðsstjóra.
Um er að ræða nýja stöðu innan fyrirtækisins.
Starfsstöð markaðsstjóra er í Reykjanesbæ og æskilegt er að umsækjendur búi á Suðurnesjum
en allar umsóknir verða skoðaðar. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Umsókn fylgi starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2020.
Fyrirspurnir um starfið og umsóknir berist til Fannýjar Axelsdóttur mannauðsstjóra fanny@skolamatur.is.
Markaðsstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum Skólamatar og er hluti af stjórnendateymi fyrirtækisins.
MARKAÐSSTJÓRI
Reykjanesbær laus
undan sérstöku eftirliti
> Nú frjálst að stýra fjármálum sveitarfélagins án
sérstaks samráðs við eftirlitsnefnd með fjármálum
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur tilkynnt Reykjanesbæ að
við yfirferð nefndarinnar á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir tímabilið
2020–2023 sé ekki annað að sjá en að sveitarfélagið uppfylli þegar fjár-
hagsleg viðmið 64. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og áformi á tímabili
fjárhagsáætlunarinnar að viðmiðin verði uppfyllt áfram. Þetta kemur fram
í bréfi sem nefndin hefur sent Reykjanesbæ.
Með þessu sé aðlögunaráætlun Reykja-
nesbæjar fallin úr gildi og bæjarstjórn
ekki lengur skylt að bera undir eftir-
litsnefndina óskir um breytingar á að-
lögunaráætlun heldur starfi sveitar-
félagið nú eftir almennum ákvæðum
sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Þetta þýðir að nú er bæjaryfirvöldum
frjálst að stýra fjármálum sveitarfélag-
ins án sérstaks samráðs við eftirlits-
nefnd með fjármálum sveitarfélaga svo
fremi sem áætlanir standist og viðmið
og ákvæði í fjármálareglum sveitar-
stjórnarlag verði áfram uppfyllt.
„Fyrir Reykjanesbæ eru þetta sérstak-
lega ánægjuleg tíðindi sem stefnt hefur
verið að í langan tíma eða allt frá því að
aðgerðaráætlunin „Sóknin“ var sett af
stað í árslok 2014. Sóknin samanstóð
af margvíslegum aðgerðum í rekstri
og gerði ráð fyrir að þessu markmiði
yrði náð í árslok 2022. Styrk fjármála-
stjórn, skynsamlegar aðhaldsaðgerðir
og hagstæðar ytri aðstæður, m.a. aukin
flugumferð um Keflavíkurflugvöll, hátt
atvinnustig og fjölgun íbúa, sem leitt
hafa til tekjuaukningar bæjarsjóðs, hafa
gert það að verkum að markmiðið næst
tveimur árum fyrr en áætlað var,“ segir
í tilkynningu frá Reykjanesbæ.
Bæjarstjórn mun nú í framhaldinu
leggjast yfir framtíðaráætlanir bæjar-
félagsins en fjölmörg stór verkefni eru á
teikniborðinu í uppbyggingu skóla- og
íþróttamannvirkja, ýmissa fjárfestinga
og framkvæmda. Það er því bjartara
framundan fyrir íbúa Reykjanesbæjar
sem hafa mátt þola hærri álögur undan-
farin ár vegna erfiðrar stöðu bæjarins.
„Um leið og bæjaryfirvöld fagna
þessum merka áfanga eru íbúum og
starfsmönnum Reykjanesbæjar færðar
bestu þakkir fyrir gott samstarf sem
nú hefur skilað góðum árangri,“ segir
ennfremur í tilkynningunni.
VANTAR VANAN
HANDFLAKARA
TIL STARFA
POTRZEBNY
FILECIARZ
Næg vinna framundan
Upplýsingar í síma 7746908.
N.G. fish ehf. Sandgerði.
Óvissa varðandi horfur á vinnumarkaði
Í nóvember 2019 var atvinnuleysi í Reykjanesbæ 9,2% og á
Suðurnesjum 8,2%. Töluverð óvissa er varðandi horfur á vinnu-
markaði vegna þeirrar stöðu sem er í flugrekstri. Fundað hefur
verið með atvinnurekendum á svæðinu í þeim tilgangi að auka
samstarf á milli þeirra og Vinnumálastofnunar. Þetta kom fram
á fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar í síðustu viku.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, Karl Sigurðsson, sér-
fræðingur hjá Vinnumálastofnun, og
Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðu-
maður Vinnumálastofnunar á Suður-
nesjum, mættu á fundinn og fóru yfir
stöðu og horfur á vinnumarkaði og
úrræði sem í boði eru fyrir fólk í at-
vinnuleit.
Boðið er upp á starfstengd námskeið
fyrir fólk í atvinnuleit í samstarfi við
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
og Fisktækniskóla Íslands í Grindavík
og er reynt að miða þau við atvinnu-
lífið á svæðinu. Markmiðið er að ná til
sem flestra og eru haldin námskeið á
íslensku, ensku og pólsku.
á timarit.is
ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG
6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.