Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Page 8

Víkurfréttir - 16.01.2020, Page 8
Erlendis þykir sjálfsagðara að meta menntun til launa Dagný Maggýjar ræddi við Kefl- víkinginn ÖlmuDís Kristinsdóttur, doktor í safnafræði Keflvíkingurinn AlmaDís Kristinsdóttir lauk í haust dokt- orsvörn sinni í safnafræði við Háskóla Íslands og náði þar með langþráðu markmiði og segist nú vera á hægri leið niður það stóra fjall. Hún er dóttir Kidda í Drop- anum, yngst fjögurra systkina og eina stelpan – sem oft var pirrandi. Henni datt aldrei í hug að hún myndi feta akademískar brautir þar sem fyrirmyndirnar í þá veruna voru fáar og segir doktorstitilinn vera afrek í seiglu en heldur ópraktískan. Leiðir okkar ÖlmuDísar lágu saman fyrir þó nokkuð löngu þegar ég starfaði sem blaðamaður á Víkurfréttum og tók viðtal við hana þar sem hún starfaði sem hönnuður hjá tæknifyrirtækinu Quark Inc. í Bandaríkjunum. Þá hafði hún nýlokið námi í grafískri hönnun en leiðir hennar í lífinu hafa legið inn á fjölmörg lista- og menningarsöfn þar sem hún hefur starfað um áratugaskeið sem hönnuður, safnkennari og safn- stjóri. Við áttum sameiginleg tímamót á árinu og fögnuðum hálfri öld, það er því óhætt að segja að árið 2019 hafi verið ár tímamóta í lífi hennar. „Ef við ímyndum okkur að markmið sé eins og fjall þá er ég á hægri niður- leið núna, ekki í neikvæðri merkingu heldur einfaldlega að ljúka þessu langa og stranga ferli af eins mikilli skynsemi og mér er unnt. Ég er sumsé hægt og sígandi að komast niður á jörðina eftir þessa stórkostlegu reynslu. Mér skilst á samferðafólki mínu sem hefur fetað þessa leið að það geti tekið dágóðan tíma að ná áttum eftir allt þetta álag og streð en það var hverrar mínútu virði.“ AlmaDís var þessa daga sem við- talið var tekið, á kafi í jólafræðslu Árbæjarsafns ásamt samstarfsfólki í Borgarsögusafni Reykjavíkur. Þess á milli undirbjó hún flutninga og var því voða mikið að taka til heima hjá sér að eigin sögn. „Við tökum á móti um 2500 börnum nokkrum vikum fyrir jól og útbúum fjölskyldusmiðju þar sem fólk getur spreytt sig á að flétta saman jóla- hjörtu að dönskum sið. Við vorum einnig að leggja lokahönd á styrkum- sóknir sem tengjast starfinu á næsta ári og margt spennandi er í bígerð. Borgar- sögusafn er frekar stórt safn á íslenskan mælikvarða, eitt safn á fimm stöðum með rúmlega fjörutíu starfsmenn. Ég er með skrifstofu í Árbæjarsafni núna en flakka dálítið á milli. Hinir staðirnir eru Landnámssýningin í Aðalstræti, Ljós- myndasafn Reykjavíkur, Sjóminjasafnið Granda og Viðey. Við erum sumsé fimm í fræðsluteymi safnsins og ég hef leitt starf þessa teymis sem verkefna- stjóri safnfræðslu frá árinu 2016. Ef ég set á mig kennarahattinn þá er ég að fara yfir lokaverkefni á námskeiði sem ég hef kennt annað slagið í nokkur ár í safnafræði við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands og heitir Söfn sem námsvettvangur. Nám- skeiðið heldur mér á tánum faglega og mér finnst bráðnauðsynlegt að tengja saman fræði og praktík.“ Doktorsvörn ÖlmuDísar fór fram þann 20. september síðastliðinn en verkefnð nefnist: Toward Sustainable Museum Education Practices: A Criti- cal and Reflective Inquiry into the Pro- fessional Conduct of Museum Educa- tors in Iceland eða Horft til framtíðar í fræðslumálum safna: Greining á fag- legri nálgun í íslensku safnfræðslustarfi. Hvernig var að verja, er þetta ekki svolítið sérstakt fyrirbæri? „Þetta var stór dagur og algerlega magnað að fá tækifæri til að kynna og verja eigið doktorsverkefni. Mér var mikið í mun að njóta dagsins og þurfti því að æfa mig töluvert. Að tala í pontu er ekki mitt uppáhald því þrátt fyrir áralanga reynslu við að tala fyrir framan fólk þá er ég feimin í grunn- inn en þetta tókst allt glimrandi vel. Athöfnin fór fram á ensku í hátíðar- sal Háskóla Íslands. Fyrst kynnti ég rannsóknina mína og þurfti svo að svara spurningum frá tveimur utan- aðkomandi andmælendum sem höfðu samþykkt ritgerðina en vildu fá út- skýringar á ýmsum þáttum fyrir framan áheyrendur. Annar andmælandinn er dálítið þekkt nafn í fræðslumálum safna, dr. Lynn Dierking, og það var frábært að hitta hana í eigin persónu ásamt manninum hennar, dr. John Falk. Ég bauð þeim að sjálfsögðu í partýið um kvöldið,“ segir AlmaDís og hlær. Leyfði hjartanu að ráða för Hvað kveikti í þér löngun til að verða doktor? „Ég fór ekki beint hefðbundna leið í mínu námsbrölti en það má segja að ég hafi leyft hjartanu að ráða för. Fyrst lærði ég hönnun hjá Massachu- setts College of Art í Boston, fór síðan í menntunarfræði og er nú nýdoktor í safnafræði og ótrúlega stolt af sjálfri mér. Ég hef lengi unnið við fræðslumál á söfnum og í því starfi sameina ég þessi þrjú fræðasvið; hönnun, kennslu og safnafræði. Doktorsnám snýst að miklu leyti um að stunda rannsóknir og mig langaði að leggja mitt af mörkum í þeim efnum.“ Fyrsta safnastarf ÖlmuDísar var við Listasafnið í Denver (Denver Art Mu- seum) í Koloradófylki í Bandaríkjunum. „Ég var ráðin inn sem yfirhönnuður (Senior Designer) og vann náið með Dagný Maggýjar dagny@vf.is Ég fékk í mörg ár það verkefni að pakka inn jólagjöfum fyrir starfs- fólk Dropans sem var alltaf það sama: konfekt og bók. Það er kannski þess vegna sem mér finnst algjörlega ómiss- andi við jólin að vera í rólegheitum heima, lesa góða bók og hafa kon- fekt innan seilingar ... Ég fór fyrst í Verzló í tvö ár en kláraði stúdentinn frá FG 1990 eftir eins árs skiptinemadvöl. Hér er ég ásamt foreldrum mínum Jónu og Kidda. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Stapakóli – þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi Þjónustukjarni Suðurgötu – deildarstjóri í 80% stöðu Fræðslusvið – sálfræðingur Akurskóli – umsjónarkennari (tímabundin ráðning) Velferðarsvið – starf við liðveislu Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum. Viðburðir í Reykjanesbæ Þróunarsjóður innflytjendamála - kynningarfundur Opinn kynningarfundur um Þróunarsjóð innflytjendamála verður haldinn í Fjölskyldusetrinu Skólavegi 1 miðviku- daginn 15. janúar kl. 14:30-16:00. Fundurinn er hugsaður fyrir þá sem telja sig geta nýtt sjóðinn og hafa mögulega hug á að senda inn umsókn. Á fundinum verður sjóðurinn kynntur og umsóknarferlið skýrt. Bókasafn Reykjanesbæjar - viðburðir framundan Föstudagurinn 17. janúar. Bókabíó kl. 16.30. Kvikmyndin Frosinn sýnd í miðju safnsins. Einn föstudag í hverjum mánuði er barna-, unglinga-, eða fjölskyldumynd sýnd sem tengist bókum á ýmsa vegu. 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.