Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Page 9

Víkurfréttir - 16.01.2020, Page 9
fræðsludeild safnsins. Seinna þegar ég fór að læra safnafræði var ég oft að rekast á kunnugleg nöfn samstarfsfólks í hinum ýmsu fræðigreinum sem kom mér skemmtilega á óvart. Ég var sumsé að vinna með helstu sérfræðingum í fræðslumálum safna og hafði ekki hugmynd um það fyrr en löngu síðar. Í grunnnáminu mínu í Boston fór ég mikið á söfn enda skólinn minn staðsettur við hliðina á Isabella Steward Gardner safninu sem er algjör perla og stutt frá MFA listasafninu (Museum of Fine Arts).“ Eftir tíu ára dvöl í Bandaríkjunum flutti AlmaDís heim með fyrrum eigin- manni sínum og tveimur börnum sem þá voru eins árs og fimm ára. Fjöl- skyldan flutti til Akureyrar og þar starf- aði hún við Listasafnið á Akureyri og gerði tvær rannsóknir í meistaranámi í menntunarfræðum. „Önnur snéri að samstarfi menn- ingarstofnanna um sumarlestur fyrir krakka. Hin snéri að fjölskyldum sem safngestum og þar með var ekki aftur snúið. Árið 2006 bauðst síðan drauma- starfið í Listasafni Reykjavíkur þar sem ég sá um fræðslumál safnsins ásamt öðru góðu fólki til 2012. Eftir hrun var mikil óvissa í gangi svo ég ákvað ég að bæta aðeins við mig í námi og skráði mig í safnafræði við Háskóla Íslands sem var þá nýtt framboð innan félags- vísinda og kláraði 30 eininga diplóm- anám árið 2010. Mér fannst eitthvað svo kjánalegt að gera aðra rannsókn á meistarastigi svo ég fór fljótlega að íhuga doktorsnám, sérstaklega þegar mér varð ljóst hversu lítið íslenskt safnastarf hefur verið rannsakað þrátt fyrir að fyrstu söfn landsins hafi verið stofnuð á 19. öld, “ segir AlmaDís og bætir við að Þjóðminjasafn Íslands hafi verið stofnað árið 1863. Ég sagði upp draumastarfinu Að sögn ÖlmuDísar var námið dálítið skrykkjótt í fyrstu. „Ég þurfti stanslaust að leita leiða til að láta dæmið hreinlega ganga upp og var alltaf í vinnu með námi sem ég mæli ekki með. Ég fékk nokkra styrki sem hjálpuðu mér við að ná endum saman en mun oftar var beiðni um styrk hafnað. Þessi staða þýddi alls konar fórnir og tilraunastarfsemi. Ég sagði t.d. upp draumastarfinu í Listasafni Reykjavíkur og flutti í Stykkishólm og stýrði þar Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Norska húsinu í rúm tvö ár. Á tímabili réði ég mig í vaktavinnu við sýningagæslu í Safnahúsinu við Hverfisgötu til að geta skrifað á milli vakta. Starfið reyndist mjög krefjandi með alls konar óvæntum flækjum en með góðu samstarfi við Sigurjón tókst mér að nýta reynsluna í doktorsverk- efnið á uppbyggilegan hátt. Ég tók hluta námsins í Hollandi 2016 sem var gríðarlega gjöfull og góður tími. Ég fór greinaleiðina í náminu þ.e.a.s. skrifaði fjórar vísindagreinar og þrjár af þeim eru birtar nú þegar í erlendum tímaritum; Museum Management and Curatorship 2017, Museum & Society 2018 og Nordisk Museologi 2019 og sú síðasta er í birtingaferli.“ Það var enginn fjárhags- legur hvati að baki doktors- náminu, aðeins ástríða Hvað gefur doktorsnafnbótin þér? „Þetta er óskaplega óhagnýtt allt saman hér á landi og gefur mér í raun voða lítið annað en formlega viðurkenn- ingu á því að ég geti stundað rann- sóknir, skrifað vísindagreinar og kennt meistaranemum. Erlendis þykir sjálf- sagðara að meta menntun til launa en við erum ekki enn komin þangað. Það var því enginn fjárhagslegur hvati að baki doktorsnáminu, aðeins ástríða. Persónulega er þetta afrek í seiglu. Satt að segja datt mér aldrei í hug að ég myndi yfirleitt fara í akademískt háskólanám. Það eru ekki margar fyrirmyndir í mínu lífi sem hafa farið þessa leið en áhuginn var til staðar og hvatningin kom úr ýmsum áttum þann- ig að ég fór að trúa því sjálf að ég ætti erindi,“ segir AlmaDís og útilokar ekki að hún muni skrifa meira um safnamál. „Að sjálfsögðu. Til þess er leikurinn gerður. Mig langar til dæmis að skrifa um fræðslumál safna á íslensku og mig dreymir um að hanna slíka bók sjálf. Þá sameina ég aftur hönnun, menntunar- og safnafræði. “ AlmaDís er dóttir hjónanna Kristins Þórs Guðmundssonar og Jónu Gunn- arsdóttur heitinnar og yngst fjögurra systkina. Faðir hennar er betur þekktur sem Kiddi í Dropanum en þau hjónin ráku málningavöruverslunina Dropann í áratugi. „Það var auðvitað dálítið skrýtið að alast upp á heimili þar sem oft var bankað upp á á kvöldin og um helgar og einhver úr fjölskyldunni beðinn um að opna Dropann, því það vantaði einn lítra af málningu. En svona var þetta bara og líklega 90% af viðskiptunum sett í reikning,“ segir AlmaDís og brosir að minningunni. „Ég var mikið hjá Sigrúnu móður- ömmu minni sem bjó að Hafnargötu 39, í hvíta kastalahúsinu, og gott ef heimilisbragurinn minnti ekki aðeins á safn þegar ég hugsa út í það. Þar var röð og regla á öllu og allt á hreinu sem ég kann svo vel að meta. Ég fór voða oft til hennar í hádeginu á leið í tónlistar- skólann og fékk að æfa mig á píanóið hans afa í sparistofunni.“ Að sögn ÖlmuDísar voru bræður hennar nokkuð fyrirferðamiklir á heimilinu. „Gunni bróðir, sem er elstur, var fluttur frekar snemma að heiman svo það voru aðallega Gummi (Guðmundur Már) og Himmi (Hilmar) sem voru heima. Þeir voru ægilegir töffarar eins og pabbi „stælgæi“, orð sem pabbi notar og okkur systkinunum finnst fyndið. Ég, mamma og Gunni vorum aðeins innhverfari manngerðir, held ég, þó ég geti auðvitað aðeins talað fyrir mig sjálfa.“ AlmaDís segir að það hafi haft sína kosti og galla að vera eina stelpan. „Mér fannst til dæmis rosalega órétt- látt að ég þyrfti að ganga eitthvað meira frá í eldhúsinu en bræður mínir af því að ég var stelpa. Mamma skammtaði til dæmis sjálfri sér og stundum mér minna á diskinn en bræðrum mínum og pabba sem mér fannst glatað en svona var nú hugsunarhátturinn. Kona átti að vera matgrönn, sæt og fín og helst með fullkomið heimili. Það er nú ekki lengra síðan en þetta,“ segir AlmaDís með áherslu. „Mamma var náttúrlega algjör snill- ingur í höndunum og hennar vett- vangur var heimilið enda húsmæðra- skólagengin þessi elska. Ég valdi aðra leið og sagði stundum við hana á meðan hún lifði að ég prjónaði texta á meðan hún prjónaði hverja flíkina á eftir ann- ari. Pabbi varð áttræður í sumar og er hress miðað við aldur og fyrri störf. Hann er góður kall, dugnaðarforkur og elstur af tólf systkinum.“ Lá vel við höggi sem yngsti krakkinn og eina stelpan Að sögn ÖlmuDísar er nokkuð um fíknvanda í stórfjölskyldunni og oft mikil meðvirkni í gangi á köflum sem erfitt sé að vinda ofan af. „Það var engu að síður mjög mikil regla á öllu, a.m.k. á yfirborðinu, þegar ég var að alast upp og mikið lagt upp úr því að standa sig vel í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Ég finn oft fyrir tilhneigingu í átt að frestunar- og fullkomnunaráráttu gagnvart verk- efnum og var með mígreni sem krakki sem gefur ákveðna vísbendingu um ástandið á tímabili. Mér hefur samt tekist að hemja þessa þætti nokkuð vel og reyni að vera meðvituð um hvaðan þessir gömlu „draugar“ koma svo hægt sé að kveða þá niður.“ AlmaDís segir að mikið hafi verið hlegið á heimilinu þegar hún var að alast upp og grín gert að öllu mögulegu og ómögulegu. „Verst þótti mér þegar grínið beindist að mér því auðvitað lá ég vel við höggi sem yngsti krakkinn og eina stelpan. Það herti mig held ég að þurfa að berjast fyrir því að á mig væri hlustað.“ AlmaDís segir ákveðna kaldhæðni vera fólgna í því að hún eigi engar minningar um safnaheimsóknir úr æsku, hvorki með skóla eða fjölskyldu en rannsaki nú safnafræðslu. „Áhugi á menningu og listum hefur alltaf verið til staðar, hann fann einfald- lega ekki farveg fyrr en í framhalds- skóla og háskóla. Ég man að mamma og pabbi fóru alltaf á bókamarkað í Reykjavík og í mörg ár fékk ég að velja mér bækur. Þar kviknaði áhugi á bókum í það minnsta og svo voru bíóferðirnar á fimmtudögum og sunnudögum í Keflavík ógleymanlegar.“ Man eftir gúanólykt og miklu roki Hvernig var að alast upp í Keflavík? „Ég hef auðvitað lítinn samanburð en í minningunni var fínt að alast þarna upp. Ég er reyndar fædd á Siglufirði þar sem fjölskyldan var á ferðalagi um verslunarmannahelgi að elta sólina, sem segir kannski sína sögu um veðurfarið, “ segir AlmaDís og brosir. „Ég man eftir gúanólykt sem kom stundum í þvottinn og rosalega miklu roki. Ég man líka eftir kanasjónvarpinu og útvarpinu sem var auðvitað gluggi út í heim sem aðrir höfðu ekki. Það sama má segja um frumkvöðla- starf Sambíóanna í Keflavík, það hlýtur að hafa haft áhrif á samfélagið í heild sinni sem og öll tónlistin sem sprottin er úr þessu umhverfi.“ Þegar ég spyr hana hvernig Keflavík hafi mótað hana segist AlmaDís muna eftir litlu samfélagi sem hafi verið frekar einsleitt og dómhart. „Það þurftu allir að eiga eins íþrótta- galla og Millet-úlpu annars varstu ekki með. Þessi hugsunarháttur er líklega einhverskonar birtingarmynd af óör- yggi og tilraun til samstöðu. Okkur finnst þetta kannski fyndið í dag en það skiptir rosalega miklu máli að fjöl- breytileikinn fái að blómstra og þá á ég við að fólk fái bara að vera eins og það er án dómhörku. Á hinn bóginn þá man ég líka eftir því að hafa verið alveg týnd þegar ég fór í Verzló sextán ára gömul. Þá var allt í einu ekkert öryggisnet í kringum mig eins og í litlu samfélagi.“ Nafns vitjað í draumi AlmaDís tekur nafn sitt frá örlaga- ríkum atburði í sögu Keflavíkur sem er bruninn í samkomuhúsinu Skildi árið 1935. „Já, mömmu dreymdi nafnið mitt aftur og aftur á meðgöngunni. Hún sá stelpu á síðum hvítum kjól í síendur- teknum draumi og alltaf fylgdi þetta nafn. Mamma sagði Sjönu móðursystur sinni frá þessum draumi og hún benti henni á tengslin við brunann. Mamma var fædd 1938 en Beggi, maður Sjönu, kom að björgunarstarfinu. Sveinbjörg Alma (f. 22/12 1925) var ein af þeim síðustu sem bjargað var úr brunanum en hún lést af sárum sínum þremur mánuðum síðar þann 28. mars 1936. Ég er skírð í höfuðið á henni.“ Hvernig myndir þú vilja fjalla um þennan bruna og miðla út frá safnaf- ræðinni? „Í safnafræði er einmitt fjallað um mikilvægi þess að búa til sýningar um erfið mál og minningar sem söfn í mismunandi samfélögum hafa þurft að glíma við. Bruninn í Skildi er dæmi um slíkt. Þarna varð stórslys, gríðarleg sorg og ákveðin skömm sem fylgdi í kjölfarið vegna þess að aðaldyr hússins opnuðust báðar inn í salinn en ekki út. Í mínum huga þarf hver einasti íbúi í Reykjanesbæ að þekkja þessa sögu. Bókin þín er frábær heimild sem hægt væri að byggja á. Fyrir nokkrum árum vorum við einmitt nokkrar komnar af stað í samstarfi við Listasafn og Byggða- safn Reykjanesbæjar að leita leiða til að fá styrk í slíkt samstarfsverkefni. Síðan urðu mannaskipti og verkefnið fór í dvala en hver veit nema það verði að veruleika einn góðan veðurdag.“ Það þurftu allir að eiga eins íþróttagalla og Millet-úlpu annars varstu ekki með. Okkur finnst þetta kannski fyndið í dag en það skiptir rosalega miklu máli að fjölbreytileikinn fái að blómstra og þá á ég við að fólk fái bara að vera eins og það er án dómhörku ... Fjölskyldan á góðum degi en saman eiga AlmaDís og Hlynur Angantýsson sex börn og tvö barnabörn. Samkomuhúsið Skjöldur þar sem stórbruni varð þann 30. desember 1935. Þá var verið að halda jólatrésskemmtun og létu tíu manns lífið í brunanum auk þess sem margir brenndust illa. AlmaDís er skírð í höfuð eins fórnarlamba brunans. Stelpuskott í lopapeysu að rugga bátnum. 9 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg. 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.