Víkurfréttir - 16.01.2020, Qupperneq 9
fræðsludeild safnsins. Seinna þegar
ég fór að læra safnafræði var ég oft að
rekast á kunnugleg nöfn samstarfsfólks
í hinum ýmsu fræðigreinum sem kom
mér skemmtilega á óvart. Ég var sumsé
að vinna með helstu sérfræðingum
í fræðslumálum safna og hafði ekki
hugmynd um það fyrr en löngu síðar.
Í grunnnáminu mínu í Boston fór
ég mikið á söfn enda skólinn minn
staðsettur við hliðina á Isabella Steward
Gardner safninu sem er algjör perla og
stutt frá MFA listasafninu (Museum of
Fine Arts).“
Eftir tíu ára dvöl í Bandaríkjunum
flutti AlmaDís heim með fyrrum eigin-
manni sínum og tveimur börnum sem
þá voru eins árs og fimm ára. Fjöl-
skyldan flutti til Akureyrar og þar starf-
aði hún við Listasafnið á Akureyri og
gerði tvær rannsóknir í meistaranámi
í menntunarfræðum.
„Önnur snéri að samstarfi menn-
ingarstofnanna um sumarlestur fyrir
krakka. Hin snéri að fjölskyldum sem
safngestum og þar með var ekki aftur
snúið. Árið 2006 bauðst síðan drauma-
starfið í Listasafni Reykjavíkur þar sem
ég sá um fræðslumál safnsins ásamt
öðru góðu fólki til 2012. Eftir hrun var
mikil óvissa í gangi svo ég ákvað ég að
bæta aðeins við mig í námi og skráði
mig í safnafræði við Háskóla Íslands
sem var þá nýtt framboð innan félags-
vísinda og kláraði 30 eininga diplóm-
anám árið 2010. Mér fannst eitthvað
svo kjánalegt að gera aðra rannsókn
á meistarastigi svo ég fór fljótlega að
íhuga doktorsnám, sérstaklega þegar
mér varð ljóst hversu lítið íslenskt
safnastarf hefur verið rannsakað þrátt
fyrir að fyrstu söfn landsins hafi verið
stofnuð á 19. öld, “ segir AlmaDís og
bætir við að Þjóðminjasafn Íslands hafi
verið stofnað árið 1863.
Ég sagði upp draumastarfinu
Að sögn ÖlmuDísar var námið dálítið
skrykkjótt í fyrstu.
„Ég þurfti stanslaust að leita leiða
til að láta dæmið hreinlega ganga upp
og var alltaf í vinnu með námi sem ég
mæli ekki með. Ég fékk nokkra styrki
sem hjálpuðu mér við að ná endum
saman en mun oftar var beiðni um styrk
hafnað. Þessi staða þýddi alls konar
fórnir og tilraunastarfsemi. Ég sagði
t.d. upp draumastarfinu í Listasafni
Reykjavíkur og flutti í Stykkishólm og
stýrði þar Byggðasafni Snæfellinga og
Hnappdæla í Norska húsinu í rúm tvö
ár. Á tímabili réði ég mig í vaktavinnu
við sýningagæslu í Safnahúsinu við
Hverfisgötu til að geta skrifað á milli
vakta. Starfið reyndist mjög krefjandi
með alls konar óvæntum flækjum en
með góðu samstarfi við Sigurjón tókst
mér að nýta reynsluna í doktorsverk-
efnið á uppbyggilegan hátt. Ég tók
hluta námsins í Hollandi 2016 sem
var gríðarlega gjöfull og góður tími.
Ég fór greinaleiðina í náminu þ.e.a.s.
skrifaði fjórar vísindagreinar og þrjár
af þeim eru birtar nú þegar í erlendum
tímaritum; Museum Management and
Curatorship 2017, Museum & Society
2018 og Nordisk Museologi 2019 og
sú síðasta er í birtingaferli.“
Það var enginn fjárhags-
legur hvati að baki doktors-
náminu, aðeins ástríða
Hvað gefur doktorsnafnbótin þér?
„Þetta er óskaplega óhagnýtt allt saman
hér á landi og gefur mér í raun voða
lítið annað en formlega viðurkenn-
ingu á því að ég geti stundað rann-
sóknir, skrifað vísindagreinar og kennt
meistaranemum. Erlendis þykir sjálf-
sagðara að meta menntun til launa en
við erum ekki enn komin þangað. Það
var því enginn fjárhagslegur hvati að
baki doktorsnáminu, aðeins ástríða.
Persónulega er þetta afrek í seiglu.
Satt að segja datt mér aldrei í hug að
ég myndi yfirleitt fara í akademískt
háskólanám. Það eru ekki margar
fyrirmyndir í mínu lífi sem hafa farið
þessa leið en áhuginn var til staðar og
hvatningin kom úr ýmsum áttum þann-
ig að ég fór að trúa því sjálf að ég ætti
erindi,“ segir AlmaDís og útilokar ekki
að hún muni skrifa meira um safnamál.
„Að sjálfsögðu. Til þess er leikurinn
gerður. Mig langar til dæmis að skrifa
um fræðslumál safna á íslensku og mig
dreymir um að hanna slíka bók sjálf. Þá
sameina ég aftur hönnun, menntunar-
og safnafræði. “
AlmaDís er dóttir hjónanna Kristins
Þórs Guðmundssonar og Jónu Gunn-
arsdóttur heitinnar og yngst fjögurra
systkina. Faðir hennar er betur þekktur
sem Kiddi í Dropanum en þau hjónin
ráku málningavöruverslunina Dropann
í áratugi.
„Það var auðvitað dálítið skrýtið
að alast upp á heimili þar sem oft var
bankað upp á á kvöldin og um helgar
og einhver úr fjölskyldunni beðinn um
að opna Dropann, því það vantaði einn
lítra af málningu. En svona var þetta
bara og líklega 90% af viðskiptunum
sett í reikning,“ segir AlmaDís og brosir
að minningunni.
„Ég var mikið hjá Sigrúnu móður-
ömmu minni sem bjó að Hafnargötu
39, í hvíta kastalahúsinu, og gott ef
heimilisbragurinn minnti ekki aðeins
á safn þegar ég hugsa út í það. Þar var
röð og regla á öllu og allt á hreinu sem
ég kann svo vel að meta. Ég fór voða oft
til hennar í hádeginu á leið í tónlistar-
skólann og fékk að æfa mig á píanóið
hans afa í sparistofunni.“
Að sögn ÖlmuDísar voru bræður
hennar nokkuð fyrirferðamiklir á
heimilinu.
„Gunni bróðir, sem er elstur, var
fluttur frekar snemma að heiman svo
það voru aðallega Gummi (Guðmundur
Már) og Himmi (Hilmar) sem voru
heima. Þeir voru ægilegir töffarar eins
og pabbi „stælgæi“, orð sem pabbi notar
og okkur systkinunum finnst fyndið.
Ég, mamma og Gunni vorum aðeins
innhverfari manngerðir, held ég, þó
ég geti auðvitað aðeins talað fyrir mig
sjálfa.“
AlmaDís segir að það hafi haft sína
kosti og galla að vera eina stelpan.
„Mér fannst til dæmis rosalega órétt-
látt að ég þyrfti að ganga eitthvað meira
frá í eldhúsinu en bræður mínir af því
að ég var stelpa. Mamma skammtaði
til dæmis sjálfri sér og stundum mér
minna á diskinn en bræðrum mínum
og pabba sem mér fannst glatað en
svona var nú hugsunarhátturinn. Kona
átti að vera matgrönn, sæt og fín og
helst með fullkomið heimili. Það er
nú ekki lengra síðan en þetta,“ segir
AlmaDís með áherslu.
„Mamma var náttúrlega algjör snill-
ingur í höndunum og hennar vett-
vangur var heimilið enda húsmæðra-
skólagengin þessi elska. Ég valdi aðra
leið og sagði stundum við hana á meðan
hún lifði að ég prjónaði texta á meðan
hún prjónaði hverja flíkina á eftir ann-
ari. Pabbi varð áttræður í sumar og er
hress miðað við aldur og fyrri störf.
Hann er góður kall, dugnaðarforkur
og elstur af tólf systkinum.“
Lá vel við höggi sem yngsti
krakkinn og eina stelpan
Að sögn ÖlmuDísar er nokkuð um
fíknvanda í stórfjölskyldunni og oft
mikil meðvirkni í gangi á köflum sem
erfitt sé að vinda ofan af.
„Það var engu að síður mjög mikil
regla á öllu, a.m.k. á yfirborðinu, þegar
ég var að alast upp og mikið lagt upp
úr því að standa sig vel í öllu sem við
tókum okkur fyrir hendur. Ég finn oft
fyrir tilhneigingu í átt að frestunar- og
fullkomnunaráráttu gagnvart verk-
efnum og var með mígreni sem krakki
sem gefur ákveðna vísbendingu um
ástandið á tímabili. Mér hefur samt
tekist að hemja þessa þætti nokkuð vel
og reyni að vera meðvituð um hvaðan
þessir gömlu „draugar“ koma svo hægt
sé að kveða þá niður.“
AlmaDís segir að mikið hafi verið
hlegið á heimilinu þegar hún var að
alast upp og grín gert að öllu mögulegu
og ómögulegu.
„Verst þótti mér þegar grínið beindist
að mér því auðvitað lá ég vel við höggi
sem yngsti krakkinn og eina stelpan.
Það herti mig held ég að þurfa að berjast
fyrir því að á mig væri hlustað.“
AlmaDís segir ákveðna kaldhæðni
vera fólgna í því að hún eigi engar
minningar um safnaheimsóknir úr
æsku, hvorki með skóla eða fjölskyldu
en rannsaki nú safnafræðslu.
„Áhugi á menningu og listum hefur
alltaf verið til staðar, hann fann einfald-
lega ekki farveg fyrr en í framhalds-
skóla og háskóla. Ég man að mamma
og pabbi fóru alltaf á bókamarkað í
Reykjavík og í mörg ár fékk ég að velja
mér bækur. Þar kviknaði áhugi á bókum
í það minnsta og svo voru bíóferðirnar
á fimmtudögum og sunnudögum í
Keflavík ógleymanlegar.“
Man eftir gúanólykt
og miklu roki
Hvernig var að alast upp í Keflavík?
„Ég hef auðvitað lítinn samanburð en
í minningunni var fínt að alast þarna
upp. Ég er reyndar fædd á Siglufirði
þar sem fjölskyldan var á ferðalagi um
verslunarmannahelgi að elta sólina, sem
segir kannski sína sögu um veðurfarið,
“ segir AlmaDís og brosir. „Ég man eftir
gúanólykt sem kom stundum í þvottinn
og rosalega miklu roki. Ég man líka eftir
kanasjónvarpinu og útvarpinu sem var
auðvitað gluggi út í heim sem aðrir höfðu
ekki. Það sama má segja um frumkvöðla-
starf Sambíóanna í Keflavík, það hlýtur
að hafa haft áhrif á samfélagið í heild
sinni sem og öll tónlistin sem sprottin
er úr þessu umhverfi.“
Þegar ég spyr hana hvernig Keflavík
hafi mótað hana segist AlmaDís muna
eftir litlu samfélagi sem hafi verið frekar
einsleitt og dómhart.
„Það þurftu allir að eiga eins íþrótta-
galla og Millet-úlpu annars varstu ekki
með. Þessi hugsunarháttur er líklega
einhverskonar birtingarmynd af óör-
yggi og tilraun til samstöðu. Okkur
finnst þetta kannski fyndið í dag en
það skiptir rosalega miklu máli að fjöl-
breytileikinn fái að blómstra og þá á ég
við að fólk fái bara að vera eins og það
er án dómhörku. Á hinn bóginn þá man
ég líka eftir því að hafa verið alveg týnd
þegar ég fór í Verzló sextán ára gömul.
Þá var allt í einu ekkert öryggisnet í
kringum mig eins og í litlu samfélagi.“
Nafns vitjað í draumi
AlmaDís tekur nafn sitt frá örlaga-
ríkum atburði í sögu Keflavíkur sem
er bruninn í samkomuhúsinu Skildi
árið 1935.
„Já, mömmu dreymdi nafnið mitt
aftur og aftur á meðgöngunni. Hún sá
stelpu á síðum hvítum kjól í síendur-
teknum draumi og alltaf fylgdi þetta
nafn. Mamma sagði Sjönu móðursystur
sinni frá þessum draumi og hún benti
henni á tengslin við brunann. Mamma
var fædd 1938 en Beggi, maður Sjönu,
kom að björgunarstarfinu. Sveinbjörg
Alma (f. 22/12 1925) var ein af þeim
síðustu sem bjargað var úr brunanum
en hún lést af sárum sínum þremur
mánuðum síðar þann 28. mars 1936.
Ég er skírð í höfuðið á henni.“
Hvernig myndir þú vilja fjalla um
þennan bruna og miðla út frá safnaf-
ræðinni?
„Í safnafræði er einmitt fjallað um
mikilvægi þess að búa til sýningar
um erfið mál og minningar sem söfn
í mismunandi samfélögum hafa þurft
að glíma við. Bruninn í Skildi er dæmi
um slíkt. Þarna varð stórslys, gríðarleg
sorg og ákveðin skömm sem fylgdi í
kjölfarið vegna þess að aðaldyr hússins
opnuðust báðar inn í salinn en ekki út.
Í mínum huga þarf hver einasti íbúi
í Reykjanesbæ að þekkja þessa sögu.
Bókin þín er frábær heimild sem hægt
væri að byggja á. Fyrir nokkrum árum
vorum við einmitt nokkrar komnar af
stað í samstarfi við Listasafn og Byggða-
safn Reykjanesbæjar að leita leiða til
að fá styrk í slíkt samstarfsverkefni.
Síðan urðu mannaskipti og verkefnið
fór í dvala en hver veit nema það verði
að veruleika einn góðan veðurdag.“
Það þurftu allir að
eiga eins íþróttagalla
og Millet-úlpu annars
varstu ekki með.
Okkur finnst þetta
kannski fyndið í
dag en það skiptir
rosalega miklu máli
að fjölbreytileikinn fái
að blómstra og þá á
ég við að fólk fái bara
að vera eins og það er
án dómhörku ...
Fjölskyldan á góðum degi en saman eiga AlmaDís og Hlynur Angantýsson sex börn og tvö barnabörn.
Samkomuhúsið Skjöldur þar sem stórbruni varð þann 30. desember 1935.
Þá var verið að halda jólatrésskemmtun og létu tíu manns lífið í brunanum
auk þess sem margir brenndust illa. AlmaDís er skírð í höfuð eins
fórnarlamba brunans.
Stelpuskott í lopapeysu að rugga bátnum.
9 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg. 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR