Víkurfréttir - 16.01.2020, Page 10
Þurfa allir að hafa
bókhaldið í lagi
– segir Harpa Sævarsdóttir hjá Plús ehf.
Harpa Sævarsdóttir opnaði nýtt fyrirtæki sem heitir Plús ehf. og sinnir
í því bókhaldi og ráðgjöf. Hún er í heilsueflandi umhverfi ef svo má
segja því hún deilir skrifstofuhúsnæði með Sigurbjörgu Gunnars-
dóttur í Hreyfisporti en þær hófu nýlega rekstur undir sama þaki að
Hafnargötu 35 í Keflavík.
Harpa sem er með meistaragráðu í
reikningsskilum og endurskoðun,
hún hefur að auki 25 ára reynslu í
bókhaldi og uppgjöri. Harpa segir
að auk þess að taka að sér bókhald
og ráðgjöf þá taki hún að sér þjálfun
í bókhaldi sem geti hentað mörgum
sem séu að hefja rekstur. Hún jánkar
því að bókhald sé eitt það mikil-
vægasta í rekstri fyrirtækja. „Það
þurfa allir að hafa bókhaldið og
pappírsmál í lagi í sínum rekstri
og vanda til verka,“ segir Harpa.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Rétturinn
Ljúffengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-14
alla virka daga
Álagningarseðlar fyrir árið 2020
Tilkynning til eigenda fasteigna í Reykjanesbæ um álagningu ársins 2020
Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda eru á rafrænu formi og birtir á
íbúavef Reykjanesbæjar, mittreykjanes.is og vefnum island.is
Þó geta þeir sem þess óska fengið senda álagningar- og/eða greiðsluseðla með bréfpósti
með því að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar í síma 421 6700 eða netfangið
thjonustuver@reykjanesbaer.is
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka og eru
innheimtar þar, en greiðendur 76 ára og eldri fá þó áfram seðla.
Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjöld ársins dreifast á 10 gjalddaga sem eru fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1. febrúar.
Fasteignaeigendum er bent á boðgreiðslur með greiðslukortum og beingreiðsluþjónustu
bankanna til hagræðis.
Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn í síma 421 6700 eða
netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is
Blaðberi
óskast hjá
Morgunblaðinu.
Upplýsingar veitir
Guðbjörg í síma
8609199
Sólrisuhátíð
Sunnudaginn 19. janúar 2020 verður
Sólrisumessa í Safnaðarheimilinu
í Sandgerði kl. 14:00.
Eldeyjarkórinn syngur undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar.
Sólrisukaffi Kvenfélagsins Hvatar verður í
Samkomuhúsinu í Sandgerði eftir messu.
Suðurnesjamenn mæta og spila.
Eldri borgarar er hvattir til að mæta.
Heilsuefling á skrifstofunni
– Sigurbjörg Gunnarsdóttir og Björgvin Jónsson stofnuðu fyrir-
tækið Hreyfisport og flytja inn heilsueflandi skrifstofulausnir
„Þetta er nýtt á Íslandi, kannski næsta bylting á eftir upphækkanlega skrif-
borðinu,“ segir Sigurbjörg Gunnarsdóttir en hún og Björgvin Jónsson,
byggingatæknifræðingur eiga og reka fyrirtækið Hreyfisport í Reykjanesbæ.
Þau stofnuðu fyrirtækið fyrir nokkrum árum með innflutningi á útihreysti-
tækjum en hófu nýlega innflutning á heilsueflandi skrifstofulausnum sem
má segja að séu byltingakenndar.
Sigurbjörg er sálfræðimenntaður
íþróttafræðingur en segir að það sem
hafi ýtt þeim út í þetta hafi verið að þau
voru farin að finna fyrir stoðkerfisó-
þægindum. „Við unnum áður bæði
líkamlega vinnu, ég sem íþróttakennari
og Björgvin sem smiður en við fórum
bæði að vinna á skrifstofu og hreyfðum
okkur því lítið yfir daginn. Við vorum
bæði farin að finna fyrir mjóbaksó-
þægindum, vöðvabólgu á herðasvæði
og jafnvel höfuðverk og það þótt við
værum að lifa heilbrigðum lífsstíl og
hreyfa okkur utan vinnutíma. Ég fór
þess vegna að skoða hvað við gætum
gert og gúggluðum hreinlega þessa
lausn sem er alger snilld,“ segir Sigur-
björg.
Lifespan-skrifstofulausnirnar eru
þær mest seldu í Bandaríkjunum í
þessum vöruflokki en Sigurbjörg segir
að þar séu þessi mál komin lengra en
annars staðar. „Mörg af stærstu fyrir-
tækjum heims eins og Facebook, Go-
ogle og Microsoft bjóða starfsmönnum
sínum upp á bestu vinnuskilyrði sem
völ er á hverju sinni og hafi notað
Lifespan-tækin undanfarin ár, með
góðum árangri. Sigurbjörg segir að
með Lifespan-tækjunum geti starfsfólk
hreyft sig á meðan það stundar vinnu
með því að ganga á göngubretti, hjóla
eða nota jafnvægisbretti. „Árangurinn
kemur fram í lækkun blóðþrýstings og
getur dregið úr stoðkerfisóþægindum.
Þá bætir þetta auðvitað líkamlega og
andlega heilsu og eykur þannig vellíðan
og afköst starfsmanna.“
Að sögn Sigurbjargar þá sýni nýleg
könnun Gallup að um helmingur Ís-
lendinga starfi á skrifstofu. Því sé mikil-
vægt að passa upp á hreyfingu sem sé
fólki mikilvæg en Lifespan-tækin koma
þannig sterk inn í þennan þátt. Aðspurð
segir Sigurbjörg að yfirleitt sé fólk fljótt
að venjast tækjunum. „Við erum ekki að
tala um að fólk eigi að hætta að mæta
í ræktina en ég myndi auðvitað vilja
sjá svona tæki á öllum skrifstofum. Þú
getur sinnt nánast allri vinnu á sama
tíma og þú gengur á bretti eða hjólar.“
Fjölmargir heimsóttu Hörpu og Sigurbjörgu
á opnunardaginn í nýja húsnæðinu.
Sigurbjörg og Harpa í nýja
húsnæðinu að Hafnargötu 35
– auðvitað á og við hlaupabretti.
Sigurbjörg og Björgvin maður hennar,
eigendur Hreyfisports.
SIGURBJÖRG
VERÐUR Í VIÐTALI
NÆSTA FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.