Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 16.01.2020, Qupperneq 10
Þurfa allir að hafa bókhaldið í lagi – segir Harpa Sævarsdóttir hjá Plús ehf. Harpa Sævarsdóttir opnaði nýtt fyrirtæki sem heitir Plús ehf. og sinnir í því bókhaldi og ráðgjöf. Hún er í heilsueflandi umhverfi ef svo má segja því hún deilir skrifstofuhúsnæði með Sigurbjörgu Gunnars- dóttur í Hreyfisporti en þær hófu nýlega rekstur undir sama þaki að Hafnargötu 35 í Keflavík. Harpa sem er með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun, hún hefur að auki 25 ára reynslu í bókhaldi og uppgjöri. Harpa segir að auk þess að taka að sér bókhald og ráðgjöf þá taki hún að sér þjálfun í bókhaldi sem geti hentað mörgum sem séu að hefja rekstur. Hún jánkar því að bókhald sé eitt það mikil- vægasta í rekstri fyrirtækja. „Það þurfa allir að hafa bókhaldið og pappírsmál í lagi í sínum rekstri og vanda til verka,“ segir Harpa.   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-14 alla virka daga Álagningarseðlar fyrir árið 2020 Tilkynning til eigenda fasteigna í Reykjanesbæ um álagningu ársins 2020 Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda eru á rafrænu formi og birtir á íbúavef Reykjanesbæjar, mittreykjanes.is og vefnum island.is Þó geta þeir sem þess óska fengið senda álagningar- og/eða greiðsluseðla með bréfpósti með því að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar í síma 421 6700 eða netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka og eru innheimtar þar, en greiðendur 76 ára og eldri fá þó áfram seðla. Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda Gjöld ársins dreifast á 10 gjalddaga sem eru fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1. febrúar. Fasteignaeigendum er bent á boðgreiðslur með greiðslukortum og beingreiðsluþjónustu bankanna til hagræðis. Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn í síma 421 6700 eða netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is Blaðberi óskast hjá Morgunblaðinu. Upplýsingar veitir Guðbjörg í síma 8609199 Sólrisuhátíð Sunnudaginn 19. janúar 2020 verður Sólrisumessa í Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 14:00. Eldeyjarkórinn syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Sólrisukaffi Kvenfélagsins Hvatar verður í Samkomuhúsinu í Sandgerði eftir messu. Suðurnesjamenn mæta og spila. Eldri borgarar er hvattir til að mæta. Heilsuefling á skrifstofunni – Sigurbjörg Gunnarsdóttir og Björgvin Jónsson stofnuðu fyrir- tækið Hreyfisport og flytja inn heilsueflandi skrifstofulausnir „Þetta er nýtt á Íslandi, kannski næsta bylting á eftir upphækkanlega skrif- borðinu,“ segir Sigurbjörg Gunnarsdóttir en hún og Björgvin Jónsson, byggingatæknifræðingur eiga og reka fyrirtækið Hreyfisport í Reykjanesbæ. Þau stofnuðu fyrirtækið fyrir nokkrum árum með innflutningi á útihreysti- tækjum en hófu nýlega innflutning á heilsueflandi skrifstofulausnum sem má segja að séu byltingakenndar. Sigurbjörg er sálfræðimenntaður íþróttafræðingur en segir að það sem hafi ýtt þeim út í þetta hafi verið að þau voru farin að finna fyrir stoðkerfisó- þægindum. „Við unnum áður bæði líkamlega vinnu, ég sem íþróttakennari og Björgvin sem smiður en við fórum bæði að vinna á skrifstofu og hreyfðum okkur því lítið yfir daginn. Við vorum bæði farin að finna fyrir mjóbaksó- þægindum, vöðvabólgu á herðasvæði og jafnvel höfuðverk og það þótt við værum að lifa heilbrigðum lífsstíl og hreyfa okkur utan vinnutíma. Ég fór þess vegna að skoða hvað við gætum gert og gúggluðum hreinlega þessa lausn sem er alger snilld,“ segir Sigur- björg. Lifespan-skrifstofulausnirnar eru þær mest seldu í Bandaríkjunum í þessum vöruflokki en Sigurbjörg segir að þar séu þessi mál komin lengra en annars staðar. „Mörg af stærstu fyrir- tækjum heims eins og Facebook, Go- ogle og Microsoft bjóða starfsmönnum sínum upp á bestu vinnuskilyrði sem völ er á hverju sinni og hafi notað Lifespan-tækin undanfarin ár, með góðum árangri. Sigurbjörg segir að með Lifespan-tækjunum geti starfsfólk hreyft sig á meðan það stundar vinnu með því að ganga á göngubretti, hjóla eða nota jafnvægisbretti. „Árangurinn kemur fram í lækkun blóðþrýstings og getur dregið úr stoðkerfisóþægindum. Þá bætir þetta auðvitað líkamlega og andlega heilsu og eykur þannig vellíðan og afköst starfsmanna.“ Að sögn Sigurbjargar þá sýni nýleg könnun Gallup að um helmingur Ís- lendinga starfi á skrifstofu. Því sé mikil- vægt að passa upp á hreyfingu sem sé fólki mikilvæg en Lifespan-tækin koma þannig sterk inn í þennan þátt. Aðspurð segir Sigurbjörg að yfirleitt sé fólk fljótt að venjast tækjunum. „Við erum ekki að tala um að fólk eigi að hætta að mæta í ræktina en ég myndi auðvitað vilja sjá svona tæki á öllum skrifstofum. Þú getur sinnt nánast allri vinnu á sama tíma og þú gengur á bretti eða hjólar.“ Fjölmargir heimsóttu Hörpu og Sigurbjörgu á opnunardaginn í nýja húsnæðinu. Sigurbjörg og Harpa í nýja húsnæðinu að Hafnargötu 35 – auðvitað á og við hlaupabretti. Sigurbjörg og Björgvin maður hennar, eigendur Hreyfisports. SIGURBJÖRG VERÐUR Í VIÐTALI NÆSTA FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.