Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Side 11

Víkurfréttir - 16.01.2020, Side 11
ATVINNA MannauðsfulltrúiSamkaup hf. leitar eftir mannauðsfulltrúa til starfa á skrifstofu Samkaupa, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ. Samkaup hf. rekur 60 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Háskólabúðin, Iceland, Seljakjör og Samkaup strax. Hjá félaginu starfa um 1290 starfsmenn í rúmlega 660 stöðugildum. Helstu verkefni: • Umsjón með mannauðskerfunum, Kjarni. • Umsjón með ráðningarkerfi, eftirfylgni atvinnuauglýsinga, ráðningasamninga og fleira við ráðningu starfsmanna. • Þátttaka í öðrum verkefnum sem snúa að viðburðarstjórnun, stemmningu og fræðslu. • Aðstoð við önnur mannauðsmál í samráði við framkvæmdastjóra mannauðssviðs. Hæfniskröfur: • Haldbær reynsla eða menntun sem nýtist í starfi. • Mjög góð tölvufærni og brennandi áhugi á tækni. • Sjálfstæð vinnubrögð, úrræðahæfni, aðlögunarhæfni, frumkvæði og metnaður í starfi. • Nákvæmni og öguð vinnubrögð. • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. • Þekking á kjarasamningum og vinnurétti er kostur. • Þekking á Kjarna mannauðskerfi er kostur en ekki nauðsyn. Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2020 Nánari upplýsingar veitir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs; gunnur@samkaup.is Umsóknir skulu berast í gengum heimasíðu Samkaupa – www.samkaup.is – Atvinna Og í aflafréttum er þetta helst ... Jæja, það má segja að það sé ekkert í fréttum því það þarf að fara mjög mörg ár aftur í tímann til þess að finna jafn hroðalega byrjun á vetrar- vertíð eins og núna árið 2020. Þegar þetta er skrifað er janúarmán- uður um það bil að verða hálfnaður og bátar hafa lítið sem ekkert komist á sjóinn, margir bátar hafa ekkert komist á sjóinn síðan fyrir áramótin. Ef við kíkjum á hafnirnar þá er aðeins búið að landa 64 tonnum í Grindavík frá áramótum og það að- eins af fimm bátum. Minnsti báturinn sem reyndi að fara á sjóinn var Gísli Súrsson GK sem náði að kroppa upp 1,9 tonn. Í Sandgerði er ennþá verri staða, þar hefur aðeins 22 tonnum verið landað af fimm bátum. Allt eru þetta stórir bátar eins og Grímsnes GK, Erling KE, Benni Sæm GK og Sigurfari GK. Minnsti báturinn að landa þar var Óli á Stað GK sem náði að kroppa upp 2,9 tonnum. Í Keflavík og Njarðvík er búið að landa samtals 30 tonnum og er það aðeins af þremur bátum; Grímsnesi GK, Erlingi KE og Sturlu GK. Skoðum eitt ár aftur í tímann til þess að fá samanburð: Þá var á sama tíma búið að landa nítján tonnum í Keflavík. Í Sanderði á sama tíma var búið að landa um 370 tonnum í 77 róðrum og margir minni bátanna gátu þá róið. Þetta er rosalega mikil munur. Árið 2019 370 tonn og árið 2020 aðeins 22 tonn. Í Grindavík á sama tíma árið 2019 var búið að landa 436 tonnum og er það líka gríðarlega mikill munur. Árið 2019 436 tonn og árið 2020 aðeins 64 tonn. Ef við förum aðeins lengra aftur í tímann og förum til ársins 2000 þá er þetta ennþá meiri munur: Grindavík árið 2020 64 tonn, árið 2019 436 tonn og árið 2000 var land- aður afli á sama tíma 910 tonn. Auk þess var 2600 tonnum af loðnu landað í Grindavík. Ef við skoðum Sandgerði árið 2000 er þetta ennþá meiri munur: Árið 2020 landað 22 tonnum, árið 2019 landað 370 tonnum en árið 2000 voru hvorki meira né minna enn 1.214 tonnum landað á nákvæmlega sama tíma, auk þess var 550 tonnum af loðnu landað. Þetta er ótrúlega mikill munur. Þetta er líka mikill munur þegar horft er á Keflavík og Njarðvík: Árið 2020 landað 30 tonnum, árið 2019 landað nítján tonn en árið 2000 var landaður afli um 515 tonn. Eins og sést á þessum tölum þá er byrjunin á árinu 2020 ein sú allra versta á þessari öld og ef ekki sú allra versta í sögu allrar útgerðar á Suður- nesjum eins langt aftur og menn rekur minni til. Þegar þessi orð eru skrifuð er alls óvíst hvenær bátarnir komast eigin- lega á sjó aftur en ef ég rýni aðeins í veðrið framundan myndi ég giska á að næsta fimmtudag, þann 16. janúar, ætti flotinn að komast á sjó og það yrði þá í fyrsta skipti á árinu 2020 fyrir marga. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Færa seiðaeldið í Vog avík Stofn fisk ur hyggst stækka kyn bóta stöð sína við Voga vík í Vog­ um. Í til lögu að matsáætl un kynn ir fyr ir tækið áform um að auka fram leiðslu lax eld is úr tæp um 300 tonn um í 450 tonn á ári. Inni í þeirri tölu er áfram hald andi eldi á kyn bóta fiski til hrogna­ fram leiðslu og eldi á laxa seiðum sem ætl un in er að hefja í stöðinni. Við und ir bún ing fram kvæmd ar inn ar vakti Skipu lags­ stofn un at hygli á að vatns vinnsla vegna nú ver andi starf semi er rúm lega þre falt meiri en gert var ráð fyr ir í um hverf is mati á sín um tíma. Þá hef ur Um hverf is stofn un gert at huga semd ir við að fram leiðsla í stöðinni sé meiri en þau 200 tonn sem starfs leyfi heim il ar. Frá vik inu verði þó ekki fylgt eft ir á meðan Stofn fisk ur vinn ur að mati á um hverf isáhrif um. INNHEIMTUFULLTRÚI Sveitarfélagið Vogar óskar eftir að ráða sveigjanlegan og þjónustulipran einstakling í stöðu innheimtufulltrúa. Um fullt starf er að ræða. Helstu verkefni felast í daglegri umsjón með innheimtu sveitarfélagsins, greiðslu og út- sendingu reikninga og skjalavistun. Þá leysir innheimtufulltrúi af, aðstoðar starfsmenn þjónustuvers við almenna afgreiðslu í þjón- ustuveri bæjarskrifstofu og vinnur önnur þau verkefni á sviði fjármála- og stjórnsýslu- sviðs sem honum eru falin af sviðstjóra fjár- mála- og stjórnsýslusviðs. Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi, háskólapróf er kostur. Góð tölvukunnátta. Þekking og reynsla af skjalavistunarmálum. Góð íslenskukunnátta, önnur tungumál s.s. enska kostur. Einhver bókhaldskunnátta æskileg. Samviskusemi og skipulagshæfileikar. Reynsla og þekking af sambærilegum verkefnum æskileg. Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Lipurð í mannlegum sam- skiptum. Nánari upplýsingar veitir Einar Kristjánsson bæjarritari í síma 618-0000. Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar nk. og óskast umsóknir sendar á netfangið einar@vogar.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að lokinni ráðningu. 11 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.