Víkurfréttir - 23.01.2020, Side 1
HEILSUDAGAR Í NETTÓ
23. JANÚAR - 2. FEBRÚAR
KYNNTU ÞÉR ÖLL FRÁBÆRU
TILBOÐIN Í HEILSUBÆKLINGI NETTÓ
Heilsu- &
lífsstílsdagar
25%
AFSLÁTTUR
AF HEILSU- OG
LÍFSSTÍLSVÖRUM
ALLT AÐ
VEGAN KETÓ LÍFRÆNT KR
ÍLIN
HOLLUSTA UPPBYGGING UM
HVERFI
TILBOÐIN GILDA 23. JANÚAR - 2. F
EBRÚAR 2020
Ofurtilboð á
hverjum degi!
að lágmarki 303Mb/sek og 15 stjónvarpsstöðvar innifaldar
Við bjóðum betra
verð í heimabyggð
frá 7.490 kr/mán
Tvær bifreiðar skullu saman í mjög
hörðum árekstri á Sandgerðisvegi
síðasta laugardag. Ökumaður ann-
arrar bifreiðarinnar reyndist undir
áhrifum fíkniefna, var án ökuréttinda
og á stolnum bíl. Kona liggur alvar-
lega slösuð eftir óhappið.
Ökumaður Subaru bifreiðar ók á
miklum hraða þegar lögreglubifreið elti
hann á leið til Sandgerðis og reyndi að
stöðva með þeim afleiðingum að hann
ók framan á Hyundai bifreið sem kom
úr gagnstæðri átt. Í henni voru tvær
konur og slasaðist farþeginn þar mjög
alvarlega. Nota þurfti klippur til að ná
þeim út og voru þær fluttar á Land-
spítalann. Farþeginn liggur þar nú.
Tók nokkurn tíma að ná konunum úr
bílnum og var Sandgerðisvegi lokað í
tvær, þrjár klukkustundir. Ökumaður-
inn sem var valdur að slysinu slapp án
teljandi meiðsla.
Lögreglan sendi frá sér tilkynningu
á mánudag þar sem fram kemur að
maðurinn, sem er á þrítugsaldri, sæti nú
síbrotagæslu. Lögreglumennirnir sem
veittu eftirförina höfðu dregið verulega
úr hraða lögreglubifreiðarinnar áður
en slysið varð.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni að
leysa til sín þeir eignir sem hafa verið
í eigu Fasteignar hf. og nýttar hafa
verið undir starfsemi sem ekki flokk-
ast undir lögbunda starfssemi sveitar-
félaga. Um er að ræða Hljómahöllina,
Íþróttaakademíuna, 88-Húsið, golf-
skálann í Leiru, hús gömlu dráttar-
brautarinnar í Grófinni og Þórustíg 3.
Umsamið kaupverð eru tæpir þrír
milljarðar og lækkar leiguskuldbinding
sveitarfélagsins sem því nemur. Þetta
kemur fram í bókun Guðbrandar
Einarssonar, oddvita Beinnar leiðar
sem hann flutti fyrir hönd meirihluta
bæjarstjórnar á fundi bæjarstjórnar
í vikunni.
Að sögn Guðbrandar má gera ráð
fyrir að skuldaviðmið Reykjanesbæjar
lækki við þessi kaup um 10% hjá sam-
stæðu og um 15% hjá sveitarsjóði. Þá
má einnig gera ráð fyrir að þessi að-
gerð auki möguleika sveitarfélagsins til
endurfjármögnunar á öðrum skuldum
sem einnig gæti hjálpað til við að bæta
rekstur sveitarfélagsins. „Hér er því
stórum áfanga náð sem ber að fagna,“
segir í bókun Guðbrandar.
Frá slysavettvangi á Sandgerðisvegi. VF-myndir/pket.
Kona alvarlega slösuð eftir
ofsaakstur síbrotamanns
Hljómahöllin, Íþróttaakademían og
fleiri fasteignir eru aftur komnar í
eigu Reykjanesbæjar frá Fasteign.
Reykjanesbær leysir til sín
fasteignir fyrir 3 milljarða
- og lækkar skuldaviðmið enn frekar
Lögreglan kom krúttlegum
kópi hringanóra til bjargar við
Skipasmíðastöð Njarðvíkur í síðustu
viku. Kópurinn var vannærður og
einnig með sýkingu í augum. Hann
er nú í fóstri hjá Húsdýragarðinum
sem ætlar að hressa kópinn við
þannig að hann komist á ný út í
náttúruna. Lögreglumaðurinn Atli
Gunnarsson heldur á kópnum.
KRÚTTLEGUR KÓPUR
SUÐURNESJAMAGASÍN Í ÞESSARI VIKU
ÞORRABLÓT
KEFLAVÍKUR
LJÓÐASKÁPUR
GUNNHILDAR
„VERTU
MEMM“
fimmtudag kl. 20:30 á Hringbraut og vf.is
MANNLÍF MENNING
Filoreta Osmani í viðtali
Rappað fjör
yfir súrmat
Rapparinn Emmsjé Gauti tryllti
þorrablótsgesti á Þorrablóti
Keflavíkur í Blue-höllinni síðasta
laugardagskvöld. Tæplega 800
Keflvíkingar þjófstörtuðu þorrblóti
og stórstjörnur úr tónlistarheim-
inum krydduðu skemmtilegt kvöld.
Góður þorramatur frá Réttinum
setti punktinn yfir i-ið. Fleiri myndir
má sjá inni í blaðinu og einnig um
200 ljósmyndir frá kvöldinu á vf.is.
Einnig verður sýnt frá þorrablótinu í
Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta.
VF-mynd/Hermann Sigurðsson.
fimmtudaguR 23. janúaR 2020 // 4. tbl. // 41. áRg.
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum ■ aðalsímanúmer 421 0000 ■ auglýsingasíminn 421 0001 ■ fréttasíminn 898 2222