Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 12
Ólst upp í kirkjunni á Bakkafirði Viðtalið átti að snúast um Brynjar sem dó en reis aftur upp frá dauðum og gerði það í upphafi eða alveg þar til blaðakona áttaði sig á því að eiginkonan er svo tengd manni sínum að hún fékk að henda inn athugasemdum þegar við átti. En fyrst var að spyrja Brynjar hvaðan hann væri. „Ég er fæddur árið 1961 og uppalinn á Bakkafirði, í þorpinu þar. Faðir minn var rafveitustjóri og organisti í kirkjunni í fjörutíu ár. Ég ólst upp í kirkjunni og fór á sjó með pabba á grásleppuveiðar frá því að ég var lítill strákur og hélt áfram með bræðrum hans sem voru einsetumenn. Það má segja að ég sé alinn upp á sjó á sumrin. Í framhaldinu ákvað ég að verða vélfræðingur því ég vildi starfa við sjómennsku og var einnig í rafveitunni með pabba. Ég lék mér líka í fjörunni heima, þar var leikvöllurinn. Á þeim tíma sem ég var að alast upp voru þrír sveitabæir í þorpinu. Síldin kom til Bakkafjarðar og þá var unnið í henni. Á þessum tíma var ekki oft farið í bæjarferð og því var það nauðsynlegasta keypt í stórum pakkningum þegar farið var í verslun. Það voru stórir hveitipokar og sykur- pokar og það nauðsynlegasta, sem hægt var að geyma í langan tíma. Mamma bakaði í stöflum en við vorum sex bræður og ég var sá fimmti í röðinni. Það var nóg að gera á strákaheimili,“ segir Brynjar og nú langar blaðakonu að vita hvernig þau, Brynjar og Svana, hafi kynnnst. Svana skýtur inn að hann hafi komið til Grindavíkur þar sem hún er fædd og uppalin, en hún er tveimur árum yngri en Brynjar. Ekki sammála um hvar þau sáu hvort annað fyrst „Ég var 21 árs þegar ég fór á sjó á Geirfuglinum frá Grindavík, réði mig þangað sem vélstjóri. Svo var ég á mörgum bátum eftir það. Ég sá Svönu í sjoppunni í Grindavík fyrst,“ segir Brynjar og horfir brosmildur á konuna sína, sem svarar strax, enda gustar af henni: „Nei, var það ekki í Hollývúdd, manstu, sem við kynnt- umst?“ Brynjar brosir og samsinnir því og heldur áfram: „En ég sá þig fyrst í sjoppunni og kannski hefur þú ekki tekið eftir mér þá en þar tók ég fyrst eftir þér,“ og þau spjalla aðeins um þetta en svo ryðst blaðakona inn í samtal þeirra og langar að halda áfram með viðtalsþráðinn. Hvað gerðist svo? Svana tekur við: „Við fórum að vera saman. Ég var verkstjóri á sumrin í frystihúsi og ætlaði alltaf að verða íþróttakennari, flug- freyja eða lögfræðingur en að fara í heilsunám til Svíþjóðar togaði líka í mig. Þar langaði mig að læra nudd, það var stefna mín og hann var til í það með mér, langaði með til útlanda. Þetta átti að vera ævintýri sem þróaðist í ævistarf okkar. Við fórum saman til Svíþjóðar þegar ég var 22 ára og hann 24 ára. Við eignuðumst trillu saman sem við gerðum út frá Bakkafirði á sumrin en vorum í Svíþjóð á veturna að læra. Við vorum kornung, þau yngstu í skólanum og ég man einn kennarinn sagði við mig, hvernig verður þú þegar þú ert orðinn eldri þegar þú ert svona ung þegar þú byrjar að læra að taka fólk í meðferð? Þú verður örugglega mögnuð þegar fram líða stundir en mér fannst þetta þá samt svo eðlilegt. Við skildum allt sem fram fór í náminu þrátt fyrir að vera svona ung,“ segir Svana, full af krafti þegar hún segir frá þessu ævintýri þeirra. Lærðu bæði í Svíþjóð „Við fórum bæði að læra heilsumeðferð, mig langaði út með Svönu til Svíþjóðar þrátt fyrir að ég var búinn að læra allt annað áður, þá fann ég að þetta nám höfðaði til mín. Við lærðum bandvefs- nudd þar sem við erum að endurnýja taugakerfið, íþróttanudd, sænskt nudd, kinesiology, eða vöðvatest, og ég byrjaði í osteopatanámi en kláraði það ekki en lærði nóg til að nota með þegar ég meðhöndla. Við kláruðum allt hitt. Við sóttum um þetta nám í Svíþjóð þrátt fyrir að mig vantaði líffræðina á þeim tíma en ákváðum að fara þangað áður en við fengum svar frá skólanum því við vissum að okkur langaði að prófa að búa í Svíþjóð. Við fórum með tvær ferðatöskur með okkur og ekkert annað og fórum með Norrænu yfir hafið. Fyrst gistum við hjá vini okkar í mánuð en svo hittum við örlagavald okkar beggja, íslenska konu sem sagði að við yrðum að fara í nám hjá Göte- borgs Gymnastiska Institut en það voru osteopatar sem áttu þennan skóla sem var útibú frá hinum fræga Axelsons- skóla í Svíþjóð. Við erum ennþá í sam- bandi við eiganda skólans og kennum þar stundum. En svona byrjaði ferill okkar beggja,“ segir Brynjar pollrólegur og yfirvegaður. Fólk vildi ekkert káf Þegar þau koma heim aftur eftir námið í Svíþjóð ákvað Brynjar að fara aftur á sjó því þá gátu þau ekki lifað af því að meðhöndla eins og þau gera í dag. Það var einnig ákveðin feimni í fólki á þessum árum, á níunda áratugnum, við að fara í nudd og svona, sérstaklega í litlu samfélagi eins og Grindavík var á þeim tíma. Hvernig gekk að fá fólk til ykkar? „Ég byrjaði strax að fá fólk í heilsu- meðferð en Brynjar gat það ekki strax því fólk var feimið,“ segir Svana og Brynjar bætir kíminn við: „Nudd! Maður er ekki að fara að láta káfa á sér, sagði fólk fyrst. Nudd var ekki eins algengt þá og það er í dag þegar allir vita hvað það gerir okkur gott og finnst það alls ekkert feimnismál að leggjast léttklædd á nuddbekkinn. Ég ákvað að vera áfram á sjónum fyrst um sinn og nuddaði á milli sjóferða. Þetta gerðum við fyrst. Það var meira að gera hjá okkur á veturna og þá fórum við á trilluna okkar á sumrin og fiskuðum vel. Ég hef alltaf verið mjög fiskinn og þegar við vorum að læra þá fjár- mögnuðum við allt námið og dvölina í Svíþjóð með fiskveiðum á sumrin á Bakkafirði. Svo fór að vera meira og meira að gera hjá okkur í heilsusetrinu okkar litla niður við sjó hér í Grindavík en þar erum við enn með stofu þar sem við tökum á móti fólki. Nú eru það ekki eingöngu Grindvíkingar sem leita til okkar heldur kemur fólk af öllu landinu í meðferð og einnig utan úr heimi,“ segir Brynjar. „Við vinnum mjög mikið saman og þurfum ekkert að segja þegar við vinnum saman, við erum það tengd og vitum hvað þarf að gera með hvern og einn. Það hefur alltaf verið svona hjá okkur þegar við erum að vinna með fólk. Ég man þegar við vorum að læra að þá spurði stundum kennarinn okkur tvö hvernig við myndum gera hlutina, því þeir fundu sambandið á milli okkar, mín og Brynjars,“ segir Svana og nú berst talið að næmleika. Talað hefur verið um næmleika Brynjars í gegnum árin en þau hjónin eru bæði greinilega næm þegar þau vinna. Ertu næmur Brynjar? Næmni getum við öll þroskað með okkur „Ja, ég vissi alltaf hvar fiskurinn var í sjónum,“ svarar Brynjar kankvís til að staðfesta næmi sitt og bætir við: „Já, ég hef alltaf verið næmur enda alinn upp í náttúrunni á Bakkafirði og fæ stundum sýnir sem koma sér vel. Næmni er eitt- hvað sem við getum öll þroskað með okkur og þegar þú ert að meðhöndla fólk eins og við gerum, þá lærirðu að lesa í fólk sem er mjög hjálplegt fyrir alla. Við Svana hjálpumst að við með- höndlunina þegar þarf, ég kem inn til hennar og hún kemur inn til mín þegar þannig stendur á. Sérstaklega þegar losa þarf fólk, liðlosa um spennu í fólki, þá eru fleiri hendur betri. Við bætum hvort annað upp.“ Brynjar sá ljósið Talið berst næst að því hvort Brynjar hafi séð ljósið, hvort það sé satt að hann hafi dáið? „Já, það er satt. Fyrir fjórum árum fann ég fyrir hækkun á blóðþrýstingi, þreytu og mæði eftir hreyfingu en ég hef alltaf stundað líkamsrækt og verið í mjög góðu formi líkamlega. Þetta var því mjög óeðlilegt fannst mér. Ég fór til hjartalæknis og út af sögu í fjöl- skyldu minni þá vildu þeir skoða mig betur. Pabbi minn fór í hjartaþræðingu 53 ára gamall sem leiddi til þess að hann fór í opna hjartaaðgerð og skipt var um fjórar æðar en hann lifði til 89 ára aldurs eftir það. Ég var að bíða eftir að komast í hjartaþræðingu og var búinn að bíða í níu mánuði. Einn daginn fórum við saman á Þorbjörn, ég og Svana, og ég bað hana að labba hægar því mér fannst hún labba ótrú- lega hratt upp fjallið. Þá horfir hún á mig og segist ekki vera að ganga hratt. Eftir þetta ákvað ég að þrýsta á læknana, sagði þeim að ég gæti ekki beðið lengur eftir þræðingu og fékk það í gegn. Þegar ég kom á hjartadeildina tóku tvær kon- ur á móti mér og spurðu mig hvað ég væri að gera þarna því ég leit svo vel út en það kom annað í ljós þegar ég var þræddur. Fremri kransæðin var 90% stífluð og settar voru þrjár fóðringar en það þurfti ekki að skera mig,“ segir Brynjar og Svana bætir við: „Þetta kom okkur algjörlega á óvart því Brynjar hefur alltaf lifað heilbrigðu lífi, passað vel upp á mataræði og hreyfingu alla tíð. Við áttum ekki von á þessum niðurstöðum.“ „Svo er ég að jafna mig inni á stof- unni, Svana var hjá mér, og fæ verki sem er alveg eðlilegt að hluta til. Þá stoppar í mér hjartað og Svana er að nudda á mér hvirfilinn og ekkert að fylgjast með hjartalínuritinu sem var orðið að flatlínu, engin hjartsláttur. Ég var auðvitað bara að hvíla mig, hélt hún,“ segir Brynjar og Svana heldur áfram með frásögnina: „Þá kemur hjúkrunarfræðingur inn í eftirlit og sér strax á mónitórnum að hjartað slær ekki. Hún hrópar upp: Marta Eiríksdóttir marta@vf.isÉg fæ verki sem er alveg eðlilegt að hluta til. Þá stoppar í mér hjartað og Svana er að nudda á mér hvirfilinn og ekkert að fylgjast með hjartalínuritinu sem var orðið að flatlínu, engin hjartsláttur ... Þetta átti að vera ævintýri sem þróaðist í ævistarf okkar. Við fórum saman til Svíþjóðar þegar ég var 22 ára og hann 24 ára. Við eignuðumst trillu saman sem við gerðum út frá Bakkafirði á sumrin en vorum í Svíþjóð á veturna að læra ... Vissi að hann var dáinn: Reis aftur upp frá dauðum Hann fær fólk til sín utan úr heimi, sem vill komast í hendurnar á honum og fólk hvaðan- æva að leitar til hans vegna allskonar krank- leika, orðspor hans fer víða, einnig um landið okkar. Eiginkona hans er ekki síðri í að hjálpa fólki en bæði lærðu þau í Svíþjóð fyrir mörgum árum, eða rétt rúmlega tvítug, og hafa starfað í Grindavík síðan, í heimabæ frúarinnar. Lífið hefur ekki alltaf farið um þau mjúkum höndum og saman hafa þau staðið sterk í gegnum veikindi sonar síns, sem fékk krabba- mein ungur að árum en er frískur í dag, og veikindi eiginmannsins, sem dó en kom aftur því hans tími til að fara var ekki kominn. Víkurfréttir fóru á trúnaðarstigið með Brynjari Péturssyni og Svanhildi Káradóttur eitt síðdegi á ísköldum vetrardegi á hlýlegu heimili þeirra í Grindavík, þar sem þau búa ásamt tveimur sonum sínum. 12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.