Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Síða 14

Víkurfréttir - 23.01.2020, Síða 14
Stjörnudjass í Sandgerði Jazzfjelag Suðurnesjabæjar stóð fyrir stórskemmtilegum djasstónleikum í Bókasafni Sandgerðis síðasta föstudagskvöld. Á tónleikunum frumflutti samnorræni djass kvart­ ettinn Astra níu frumsamin lög. Astra kvartettinn er skipaður þeim Sigurði Flosasyni (saxófón), Andrési Þór (gítar), Andreas Dreier (kontra- bassa) og Anders Thoren (trommur). Nafn kvartettsins, Astra, hefur beina tilvísun í geiminn og voru öll lögin tengd við geiminn eða himinhvolfið á einhvern hátt. Tónleikarnir mörkuðu upphaf tónleikaraðar Astra og voru ein- göngu frumsamin lög þeirra Andrésar Þórs og Sigurðar Flosasonar á dagskrá. Það má segja að tónleikarnir hafi verið nokkurskonar generalprufa því þetta var í fyrsta sinn sem lögin voru leikin opinberlega og ætlaði kvartettinn að mæta í hljóðver morguninn eftir til að hefja upptökur á nýrri plötu. Ágætlega var mætt á tónleikana og kunnu gestir augljóslega vel að meta það sem boðið var upp á. Bókasafnið hentar ágætlega fyrir uppákomur af þessu tagi og myndaðist afar þægileg stemmning þegar ljúfir djasstónarnir liðu um salinn. Jazzfjelag Suðurnesjabæjar var stofnað í maí á síðasta ári og er til- gangur þess að efla menningu í Suður- nesjabæ og á Suðurnesjum öllum. Ljóst er að félagið er að gera góða hluti og þessu framtaki er vel tekið, framundan eru tvennir djasstónleikar í febrúar á vegum félagsins og ætlar sá sem þetta skrifar ekki að missa af þeim. Þess má geta að það er stefna Jazzfjelagsins er að ávallt sé frítt inn á tónleika á þess vegum. Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Menn höfðu nóg að ræða eftir tónleikana. Húðirnar lamdar og bassinn plokkaður. Gítarleikarinn Andrés Þór lifði sig inn í tónlistina. Sigurður Flosason blæs í saxófóninn. Halldór Lárusson, skólastjóri Tónlistarskóla Sandgerðis, er helsta driffjöður Jazzfjelagsins. Hér ávarpar hann gesti að loknum tónleikum. Fríða Dís með útgáfutónleika í Bergi – Fagnar útgáfu fyrstu sólóplötu sinnar Fyrsta plata Fríðu Dísar, Myndaalbúm, er væntanleg þann 1. febrúar. Á plötunni verður að finna átta frumsamin lög með textum á íslensku og frönsku. Í hverju lagi vinnur hún úr ákveðinni minningu sem raðast saman líkt og ljósmyndir í albúmi. Rödd Fríðu fær að njóta sín í dreymandi hljóðheimi sem er drifinn áfram af hráum en þéttum bassaleik hennar sem á augljósar rætur í fyrstu áratugum rokksins. Með Fríðu koma meðal annars fram Smári Guðmundsson á gítar, Stefán Örn Gunnlaugsson á píanó og syntha, Kristinn Snær Agnarsson á trommur, Óskar Guðjónsson á saxófón, Matthías Stefánsson á fiðlu og gítar og Óskar Þór Arngrímsson sér um áslátt. Platan verður flutt í heild sinni og skyggnst verður á bak við lögin og töfrana sem áttu sér stað í upptökuferlinu. Tónleikarnir verða í Berginu, Hljómahöll, laugardaginn 15. febrúar 2020. Góð stemmning myndaðist þegar ljúfir djasstónarnir fylltu salinn. Súlan - Verkefnastjóri markaðsmála Reykjanesbær óskar eftir að ráða í stöðu verkefnastjóra markaðsmála. Við leitum að skapandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur góða þekkingu á markaðsmálum, er drífandi og metnaðarfullur. Verkefnastjóri markaðsmála ber ábyrgð á undirbúningi og mótun markaðsstefnu bæjarins og þeirri vinnu sem felst í að koma henni í framkvæmd. Hann ber ábyrgð á þróun stafrænna miðla og markaðssetningar til innri og ytri viðskiptavina. Einnig ber honum að vera í samskiptum við fjölmiðla, hönnuði og ýmsa hagsmunaaðila. Helstu verkefni: • Vinnur að og ber ábyrgð á markaðssetningu og jákvæðri ímynd Reykjanesbæjar • Mótun markaðsstefnu Reykjanesbæjar gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum • Ýmis greiningarvinna • Hefur yfirumsjón með öllu kynningarefni sveitarfélagsins og samræmingu þess • Þróun á notkun stafrænna miðla til markaðssetningar • Mótun, framkvæmd og eftirfylgni markaðsáætlunar • Gerð kostnaðaráætlunar markaðsmála Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Staðgóð þekking og reynsla af markaðsmálum • Þekking og reynsla af starfsemi opinberrar stjórnsýslu er kostur • Framúrskarandi samstarfshæfileikar • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð • Skapandi og lausnamiðuð nálgun • Þekking og reynsla af hönnunarforritum • Reynsla af markaðssetningu á samfélagsmiðlum og leitarvélabestun • Þekking á Google Ads, Google Analytics og Facebook Business Manager • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt að viðkomandi endurspegli þá eiginleika í störfum sínum og framkomu. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2020 en sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Frekari upplýsingar veitir Þórdís Ósk Helgadóttir, forstöðukona Súlunnar, í gegnum netfang thordis.o.helgadottir@reykjanesbaer.is eða í síma 421-6725. 14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 23. janúar 2020 // 4. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.