Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Side 16

Víkurfréttir - 23.01.2020, Side 16
Er nýja heimilið þitt á Ásbrú kannski hjá okkur? Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is Skuldaviðmið lækkar Á síðasta fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 21. janúar voru samþykkt kaup á fasteignum sem verið hafa í eigu Fasteignar hf. og hafa verið nýtt undir starfsemi sem ekki hefur verið flokkuð sem lögbundin starfsemi sveitarfélaga. Helstu eignirnar eru: Hljómahöllin, Íþróttaakademían, golfskálinn, Hjómahöllin og 88-húsið og er kaupverð þessara eigna tæpir þrír milljarðar króna. Þessi aðgerð í ágætu samræmi við það samkomulag sem gert var við kröfuhafa á sínum tíma og mun hafa verulega jákvæð áhrif á stöðu Reykjanesbæjar. Leiguskuldbindingar lækka Við þetta munu leiguskuldbindingar bæjarsjóðs Reykjanesbæjar lækka og það mun hafa bein áhrif á skulda- viðmið sem mikið er rætt um og ræður miklu um fjárhagslegt sjálf- ræði sveitarfélagsins. Má reikna með að skuldaviðmiðið lækki um allt að 10% í samstæðu- reikningi og15% hjá bæjarsjóði. Skuldaviðmið samstæðu var 137% um síðustu áramót og þessi 10% lækkun mun öll hafa áhrif á skuldaviðmiðið til lækkunar. Þá var rekstur Reykjanesbæjar á ágætu samræmi við áætlanir á árinu og því getum við átt von á því að að sjá talsverða lækkun á skuldaviðmiði í ársreikningi fyrir árið 2019 sem lagður verður fram á vordögum. Guðbrandur Einarsson, oddviti Beinnar leiðar. Þeir hörðustu réru á milli lægða Það fór eins og ég hafði spáð í lok síðasta pistils, að loksins myndi gefa að- eins á sjóinn. Það gerði smá gat á milli lægða og þeir hörðustu gátu róið frá miðvikudegi og fram að laugardegi. Þeir fáu línubátar af minni gerðinni sem gera út frá Grindavík lönduðu reyndar í Þorlákshöfn. Þeir fóru nokkrir þangað og voru að leggja línuna undan Þjórsárósum og aðeins austar. Sævík GK var með 30 tonn í fimm róðrum og voru um 26 tonn af aflanum fengin þar. Daðey GK 22 tonn í fjórum, öllu landað í Þorláks- höfn. Gísli Súrsson GK var líka á sömu slóðum en ekki voru allar aflatölur komnar inn um hann þegar þetta er skrifað. Þó höfðu um tólf tonn í þremur róðrum skilað sér inn, mest 9,1 tonn í róðri. Dúddi Gísla GK hélt sig á miðunum skammt frá Grinda- vík og var með 18,2 tonn í fjórum róðrum. Hraunsvík GK, sem er eini netabáturinn í Grindavík, var að fiska nokkuð vel, var með 18,8 tonn í fimm róðrum. Í Sandgerði var ansi mikið um að vera. Steinunn HF var með 24 tonn í fimm róðrum og mest tæp átta tonn í róðri. Katrín GK 17,4 tonn í þremur og mest níu tonn í róðri. Beta GK með 22,6 tonn í aðeins þremur róðrum og það má geta þess að á Betu GK eru aðeins þrír skipverjar. Gulltoppur GK 11,9 tonn í tveimur en hann rær með bala eins og Katrín GK. Alli GK með tólf tonn í tveimur róðrum. Guð- rún GK um átta tonn í einni löndun. Margrét GK 27 tonn í aðeins þremur róðrum. Óli á Stað GK 30 tonn í fimm róðrum. Óli G GK nítján tonn í þremur róðrum. Nokkrir línubátar réru skammt undan Garðskagavita og meðfram Garðinum, lögðu þar línu og lentu í nokkuð góðri veiði. Þetta svæði er mjög þekkt sem ansi gott handfæra- veiðisvæði og t.d. fengu bátarnir Beta GK, Gulltoppur GK og Guðrún GK allir góðan afla þar. Beta GK kom með um 8,5 tonn þaðan, Gulltoppur GK um 6,5 tonn og Guðrún GK um átta tonn. Síðan gerði enn eina bræluna og fóru þá t.d. Guðrún GK og Beta GK inn í Njarðvík til þess að geta róið inn í flóa í skjóli. Óli G GK fór alla leið inn í Hafnarfjörð. Óli á Stað GK fór líka inn í Njarðvík. Hann hefur reyndar róið tvisvar frá Njarðvík í Garðsjóinn en pistlahöfundi er ekki kunnugt um aflatölur hjá þeim. Netabátarnir frá Sandgerði hafa fiskað ágætlega. Þeir voru að leggja netin skammt undan Hvalsnesi og áleiðis að Reykjanesvita en á laugar- deginum færðu þeir sig allir inn í flóa og lönduðu í Njarðvík. Þá fóru reyndar Halldór Afi GK og Bergvík GK á sjó- inn seinni partinn á sunnudeginum og lönduðu báðir rétt um miðnætti í Keflavík. Halldór Afi GK er kominn með um fjögur tonn í fjórum róðrum. Bergvík GK 1,8 tonn í tveimur. Maron GK fjögur tonn í þremur. Grímsnes GK 26 tonn í níu róðrum og Erling KE 24 tonn í sjö. Sunna Líf GK var svo með um 1,5 tonn í tveimur róðrum. Hjá dragnótabátunum hefur veiðin verið mjög misjöfn. Fyrir það fyrsta hafa þeir lítið getað komist á sjóinn. Benni Sæm GK er með 29 tonn í fimm róðrum. Sigurfari GK 32 tonn í fimm og Aðalbjörg RE 2,2 tonn í tveimur róðrum frá Sandgerði. Enginn drag- nótabátur hefur landað í Grindavík AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Hvatningin: Góðmennska Ég hef alltaf sagt við þá sem koma í jógatíma til mín að fyrst og fremst þurfum við að vera góð, góð við okkur sjálf og góð við aðra. Að vera okkar besti vinur, tala fallega við okkur sjálf, hrósa okkur og sættast við okkur eins og við erum. Einnig að vera góð við aðra. Það gefur okkur alveg ótrú- lega mikið að vera góð við aðra, rétta hjálparhönd og brosa. KÆRLEIKUR, UMHYGGJA OG GÓÐMENNSKA. Gróa Björk Hjörleifsdóttir, grunnskólakennari og jógakennari. Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi STEINGRÍMUR JÓNASSON Heiðarbraut 9c, Reykjanesbæ lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtudaginn 9. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkirkirkju, þriðjudaginn. 28. janúar kl. 13:00 Hermína Jónasdóttir Einar Einarsson Jóhann Jónasson Ómar Örn Jónasson Ingrida Mytting og frændsystkini Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vinarhug vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa SÆVARS BRYNJÓLFSSONAR skipstjóra Pósthússtræti 3, Keflavík Einnig þökkum við öllum þeim sem af alúð og fagmennsku studdu hann í veikindum hans. Ingibjörg Hafliðadóttir Bryndís Sævarsdóttir Einar Þ. Magnússon Hafliði Sævarsson Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir Brynjólfur Ægir Sævarsson Áslaug Ármannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn 16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 23. janúar 2020 // 4. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.