Fréttablaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 8
Ef tillagan nær fram
að ganga megi gera
ráð fyrir óæskilegum
áhrifum á fallegt útsýni frá
Foldahverfi og á verðmæti
fasteigna næst smáhýsunum.
Úr athugasemdum íbúa í Grafarvogi
Dagskrá:
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Vakin er athygli á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu
á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs
Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 16. júní kl. 17:00
Gildi–lífeyrissjóður
Ársfundur 2020
▪
Lífeyrissjóður www.gildi.is
SKIPULAGSMÁL Íbúar í Grafarvogi
eru margir afar andsnúnir því
að komið verði fyrir smáhýsum
fyrir heimilislausa við Stórhöfða,
skammt frá Gullinbrú í verslunar-
og skrifstofuhverfinu handan við
voginn.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
hefur undanfarið skoðað ýmsa staði
til að reisa smáhýsi fyrir heimilis-
lausa. Meðal þeirra er auð lóð vest-
an við Stórhöfða 21. Við kynningu
á breytingu á deiliskipulagi vegna
þessa bárust fjölmargar athuga-
semdir, sem skipulagsfulltrúi fjallar
um í umsögn.
Er vitnað til athugasemda frá
íbúum, sem bendi á að smáhýsin
„séu fyrirhuguð í nokkurra metra
fjarlægð frá vinsælu útivistarsvæði
og göngustíg með fram voginum
og Stórhöfða“. Stígurinn sé nýttur í
tómstundir barna og íþróttastarf og
smáhýsin myndu „skemma“ fallega
gönguleið.
„Smáhýsin og íbúar þeirra eigi
ekki góða samleið með þessu úti-
vistarsvæði. Galið sé að setja upp
smáhýsi fyrir óreglufólk inn á mitt
svæðið,“ vitnar skipulagsfulltrúi í
efni bréfa frá íbúunum.
„Ef tillagan nær fram að ganga
megi gera ráð fyrir óæskilegum
áhrifum á fallegt útsýni frá Folda-
hverfi og á verðmæti fasteigna næst
smáhýsunum,“ er áfram vitnað til
athugasemda íbúanna sem telji
smáhýsin „hugsuð fyrir fólk sem
ekki getur búið innan um aðra í
venjulegu íbúðarhúsnæði.“
Enn f remu r telji í bú a r nir
að „hætta sé á að almenningur þori
jafnvel ekki að fara þarna fram hjá,
vitandi af íbúum þarna sem geta
verið í alls konar ástandi“ og að
íbúar í sambærilegum búsetukost-
um eigi það til að stela reiðhjólum.
Eigendur nokkurra fyrirtækja við
Stórhöfða lýsa sig andvíga. „Gerð er
alvarleg athugasemd við tillöguna
þar sem hún gæti rýrt verðgildi
eignarinnar og haft truflandi áhrif
á starfsemi kaffihússins,“ segir um
aðfinnslur Kaffitárs á Stórhöfða 17,
í umsögn skipulagsfulltrúa.
Aðrir ótilteknir eigendur að Stór-
höfða 17 lýsi „fullum skilningi á
vandræðum borgarinnar með að
finna smáhýsunum stað,“ en telji
þessa staðsetningu óheppilega.
Hún geti lækkað verðgildi eignanna
í kring og þeir séu uggandi um að
íbúarnir sanki að sér drasli.
Þórður R. Magnússon í Flísabúð-
inni á Stórhöfða 21, lýsir sig alfarið
mótfallinn smáhýsunum, sem gætu
haft áhrif á rekstur verslunarinnar
vegna mikillar umferðar og vöru-
afgreiðslu. Sjálfur hefði hann hug á
að fá þessum reit úthlutað til bygg-
ingar niðurgrafins vöruhúss.
Elías Gíslason í Stórhöfða 17
segist leigja hluta af fasteign sinni
undir matsölustað og líkur séu á að
leigusamningnum verði „sagt upp,
ef skjólstæðingar velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar gera sig heima-
komna í kringum veitingastaðinn“.
Hverfisráð Grafarvogs óskaði
eftir því að málinu yrði frestað
til haustsins, en skipulagsfulltrúi
hafnar því og var tillagan sam-
þykkt í skipulags- og samgönguráði.
Í umsögninni fjallar skipulagsfull-
trúi um „húsnæði fyrst" - hug-
myndafræðina fyrir heimilislausa
með miklar og f lóknar þjónustu-
þarfir.
„Úthlutun í smáhýsi veitir íbúum
tækifæri á því að lifa sínu lífi, innan
veggja heimilis síns. Með því að
koma upp smáhýsum er verið að
stuðla að öruggu húsnæði fyrir ein-
staklinga með fjölþættan vanda,“
útskýrir skipulagsfulltrúi. Einstakl-
ingar fái öruggt skjól allan daginn, í
stað þess að hafa aðgang að neyðar-
gistingu nótt eftir nótt.
gar@frettabladid.is
Heimilislausir fái ekki athvarf
í smáhýsabyggð við Stórhöfða
Skipulags- og samgönguráð hefur samþykkt nýtt deiliskipulag svo reisa megi smáhýsi fyrir heimilislausa
á Ártúnshöfða. Íbúar í Grafarvogi og fyrirtækjaeigendur við Stórhöfða segjast óttast að eignir þeirra
lækki í verði. Tillagan sé „galin“ og „almenningur“ muni jafnvel ekki þora að fara um svæðið lengur.
Lóðin við Stórhöfða sem ætluð er undir smáhýsi heimilislausra, er á fallegum útsýnisstað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VESTFIRÐIR Göngukort af svæðinu
í kringum Hvalá í Árneshreppi
hefur verið gefið út í fyrsta sinn, en
Hvalársvæðið hefur verið mikið í
umræðunni undanfarið vegna fyr-
irhugaðra virkjanaframkvæmda á
svæðinu. Framkvæmdum við Hval-
árvirkjun hefur nú verið frestað um
óákveðinn tíma.
Svæðið er lítt þekkt gönguland,
en á nýja kortinu er meðal annars
að finna fossa, f lúðir og steingerv-
inga sem nýlega voru uppgötvaðir á
svæðinu. Kortið er gefið út af ÓFEIG
náttúruvernd og kortagerð annaðist
Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræð-
ingur.
Hann segir Hvalársvæðið ein-
stakt og vert fyrir ferðamenn að
skoða. „Á svæðinu er ósnert nátt-
úra og heillandi fossaraðir, en svona
svæði eru ekki eins algeng og maður
myndi halda. Þetta eru dýrmætar
perlur sem þarf að varðveita og
geyma,“ segir Snæbjörn.
Þá segir hann kjörið að heim-
sækja svæðið núna þegar virkj-
anaframk væmdir hafa verið
stöðvaðar. „Nú er rétti tíminn
til að heimsækja svæðið og
njóta þess, þegar það hefur verið
losað undan ógn virkjanafram-
kvæmda, svo er um að gera að
njóta alls þess sem Árneshrepp-
ur hefur upp á að bjóða. Þetta
er hugsað sem framlag okkar til
sveitarinnar.“ –bdj
Kortleggja gönguleið
um Hvalársvæðið
Kortið sýnir fossa, flúðir og stein-
gervinga sem uppgötvuðust nýlega.
VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi í
maímánuði var þrettán prósent,
samkvæmt tölum frá Vinnumála-
stofnun, og minnkaði um tæp fimm
prósentustig frá apríl. Stofnunin
spáir því að atvinnuleysi í júní lækki
enn frekar og verði 11,2 prósent.
Almennt atvinnuleysi breyttist
lítið milli mánaða og var 7,4 pró-
sent í maí. Atvinnuleysi sem tengist
hlutabótaleiðinni lækkaði hins
vegar úr 10,5 prósentum í apríl í 5,6
prósent í maí. Spáin gerir ráð fyrir
að það fari niður í 3,8 prósent í júní.
Alls fengu rúmlega 16 þúsund
manns greiddar almennar atvinnu-
leysisbætur í maí. Rúmlega 17 þús-
und fengu greiddar hlutabætur hjá
um 5.200 fyrirtækjum.
Mesta atvinnuleysið er á Suður-
nesjum en það mældist 19,6 prósent
í maí en var 25,2 prósent í apríl. – sar
Spá áfram
minnkandi
atvinnuleysi
ÍRAK Bandaríkin munu halda áfram
að fækka í herliði í Írak, þrátt fyrir
að aukning hafi verið á umsvifum
hryðjuverkasamtakanna ISIS í land-
inu. Alls eru nú um 5.200 bandarískir
hermenn í landinu, flestir voru þeir
um 160 þúsund árið 2007. Samband
Bandaríkjanna og Íraks versnaði
mikið þegar Bandaríkin réðu íranska
njósnaleiðtogann Qasem Soleimani
af dögum í Bagdad í janúar.
Gaf írakska þingið út þingsálykt-
unartillögu um að herlið Bandaríkj-
anna skyldi yfirgefa landið án tafar,
Bandaríkin gáfu hins vegar út að þau
myndu ekki fara frá landinu fyrr en
Írakar gætu sjálfir tryggt eigið þjóð-
aröryggi. Samkvæmt nýrri rann-
sókn West Point-herskólans hafa ISIS
aukið umsvif sín í landinu. Gerðu
hryðjuverkasamtökin 566 árásir í
Írak á fyrsta ársfjórðungi 2020, sem
er mikil aukning frá mánuðunum á
undan. – ab
Herafli dreginn
saman í Írak
Herliðið hefur verið í Írak frá 2003.
1 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð