Fréttablaðið - 13.06.2020, Síða 38

Fréttablaðið - 13.06.2020, Síða 38
SÁLFRÆÐINGUR VIRK leitar að reyndum sálfræðingi til að vinna í þverfaglegri teymis- vinnu. Starfið felur meðal annars í sér að skima, greina og kortleggja vanda einstaklinga sem vísað er í þjónustu útfrá gögnum og samtölum. Einnig að veita faglegar ráðleggingar til stuðnings við framgang í starfsendurhæfingu. Sálfræðingur þarf þannig að geta metið hvað hind- rar atvinnuþátttöku hjá einstaklingi og hvernig best er að styðja hann í endurkomu til vinnu. Sálfræðingur mun einnig koma að öðrum verkefn- um innan VIRK sem fela í sér þróun og umbætur á þjónustu. Helstu verkefni • Skimun, greining og kortlagning á vanda einstaklinga í þjónustu VIRK • Gerð áætlana fyrir starfsendurhæfingu • Rýna framgang mála m.t.t. hindrana hvað varðar þátttöku á vinnumarkaði • Samstarf við heilbrigðisstéttir varðandi einstaklinga í þjónustu VIRK • Ákvarðanataka í málum einstaklinga í þjónustu VIRK • Þróunar- og umbótastarf Menntunar- og hæfnikröfur • Réttindi til að starfa sem sálfræðingur • Að minnsta kosti fjögurra ára reynsla af klínískri vinnu í sínu fagi • Jákvæð reynsla af þverfaglegri samvinnu • Þekking á og reynsla af verkefnastjórnun • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund • Reynsla og þekking á sviði starfsendurhæfingar er kostur • Þekking á vinnumarkaði, heilbrigðis- og félagsþjónustu er kostur • Framhaldsmenntun á fagsviðinu er kostur • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menn- ingu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metn- aður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um VIRK er að finna á virk.is Upplýsingar veitir: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2020. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu leiðara í flautudeild frá og með hausti 2020. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til Unu Eyþórsdóttur, mannauðsstjóra starf@sinfonia.is Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnispróf. Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra (starf@sinfonia.is) í síma 8985017. Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2020. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS er ein stærsta menningarstofnun landsins með um 100 manna starfslið. Hljómsveitin heldur úti fjölbreytilegri tónleikadagskrá, hljóðritar til innlendrar og erlendrar útgáfu, fer í tónleikaferðir innanlands og utan, auk þess sem hún stendur fyrir metnaðarfullu fræðslustarfi fyrir börn og fullorðna. Aðsetur Sinfóníuhljómsveitarinnar er í Hörpu. www.sinfonia.is Hæfnispróf fer fram 28. ágúst 2020 í Hörpu. Einleiksverk: 1) Mozart flautukonsert í G-dúr, 1. kafli með kadensu 2) Ibert flautukonsert, 2. og 3. kafli 3) Verk að eigin vali STAÐA LEIÐARA Í FLAUTUDEILD
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.