Fréttablaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 38
SÁLFRÆÐINGUR
VIRK leitar að reyndum sálfræðingi til að vinna í þverfaglegri teymis-
vinnu. Starfið felur meðal annars í sér að skima, greina og kortleggja
vanda einstaklinga sem vísað er í þjónustu útfrá gögnum og samtölum.
Einnig að veita faglegar ráðleggingar til stuðnings við framgang í
starfsendurhæfingu. Sálfræðingur þarf þannig að geta metið hvað hind-
rar atvinnuþátttöku hjá einstaklingi og hvernig best er að styðja hann í
endurkomu til vinnu. Sálfræðingur mun einnig koma að öðrum verkefn-
um innan VIRK sem fela í sér þróun og umbætur á þjónustu.
Helstu verkefni
• Skimun, greining og kortlagning á vanda einstaklinga í þjónustu VIRK
• Gerð áætlana fyrir starfsendurhæfingu
• Rýna framgang mála m.t.t. hindrana hvað varðar þátttöku
á vinnumarkaði
• Samstarf við heilbrigðisstéttir varðandi einstaklinga í þjónustu VIRK
• Ákvarðanataka í málum einstaklinga í þjónustu VIRK
• Þróunar- og umbótastarf
Menntunar- og hæfnikröfur
• Réttindi til að starfa sem sálfræðingur
• Að minnsta kosti fjögurra ára reynsla af klínískri vinnu í sínu fagi
• Jákvæð reynsla af þverfaglegri samvinnu
• Þekking á og reynsla af verkefnastjórnun
• Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
• Reynsla og þekking á sviði starfsendurhæfingar er kostur
• Þekking á vinnumarkaði, heilbrigðis- og félagsþjónustu er kostur
• Framhaldsmenntun á fagsviðinu er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa
með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi
við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með
aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum
og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök
launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði.
VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan
starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menn-
ingu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metn-
aður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um VIRK er að finna á virk.is
Upplýsingar veitir:
Geirlaug Jóhannsdóttir,
geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2020.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá
og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar
sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein
fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir
hæfnikröfur starfsins.
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir
lausa til umsóknar stöðu leiðara í
flautudeild frá og með hausti 2020.
Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til
Unu Eyþórsdóttur, mannauðsstjóra starf@sinfonia.is
Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að
minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnispróf.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar
Íslands www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra
(starf@sinfonia.is) í síma 8985017.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2020.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS er ein stærsta
menningarstofnun landsins með um 100 manna starfslið.
Hljómsveitin heldur úti fjölbreytilegri tónleikadagskrá,
hljóðritar til innlendrar og erlendrar útgáfu, fer í
tónleikaferðir innanlands og utan, auk þess sem hún stendur
fyrir metnaðarfullu fræðslustarfi fyrir börn og fullorðna.
Aðsetur Sinfóníuhljómsveitarinnar er í Hörpu.
www.sinfonia.is
Hæfnispróf fer fram 28. ágúst 2020 í Hörpu.
Einleiksverk:
1) Mozart flautukonsert í G-dúr, 1. kafli
með kadensu
2) Ibert flautukonsert, 2. og 3. kafli
3) Verk að eigin vali
STAÐA LEIÐARA Í FLAUTUDEILD